Segir kominn tíma á stjórn án Sjálfstæðisflokks

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar segir tími til komin að hætta að láta Sjálf­stæð­is­flokk­inn velja sér dans­fé­laga og stjórna á eigin for­sendum.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Birgir Þór Harðarson


Það er kom­inn tími til að hætta að láta Sjálf­stæð­is­flokk­inn enda­laust velja sér nýja dans­fé­laga eftir kosn­ingar og stjórna eftir eigin geð­þótta. Þetta sagði Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, í umræðum um stöð­una í stjórn­málum í byrjun árs og verk­efnin framundan á Alþingi í dag.

„Nú er kom­inn tími sam­stilltrar, djarfrar og víð­sýnnar stjórnar, án Sjálf­stæð­is­flokks­ins - fyrir allt fólkið í land­inu og kom­andi kyn­slóðir. Stjórn sem leggur alla áherslu á rík­ara félags­legt rétt­læti og hefur á sama tíma meiri sköp­un­ar­kraft, fram­sýni og hug­rekki,“ sagði Logi enn­fremur og til­tók að Sam­fylk­ingin væri til­búin í það verk­efni.

Í ræðu sinni fjall­aði Logi einnig um að allar kann­anir bentu til þess að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra væri kol­fallin. Talsmenn hennar stærðu sig gjarnan að því að hafa ráð­ist í viða­mikla lífs­kjara­sókn, inn­viða­upp­bygg­ingu og unnið stóra­frek í aðgerðum gegn lofts­lags­breyt­ingum. Raun­veru­leik­inn sýni þó aðra nið­ur­stöðu.

Hag­vöxtur sé horf­inn og atvinnu­leysi hefur tvö­fald­ast, neyð­ar­á­stand ríki á bráða­mót­tök­unni og heil­brigð­is­kerfið allt sé van­fjár­magnað, losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hafi auk­ist, mál­efni útlend­inga séu í ólestri, veiði­leyfagjöld séu orðin helm­ingi lægri en þegar rík­is­stjórnin tók við, öryrkjar og eldri borg­arar hafi dreg­ist enn lengra aftur úr öðrum hópum, dóms­kerfið væri í upp­námi og Ísland væri á gráum lista.

Mikið talað fyrir ákveðnu ríkisstjórnarmynstri

Um er að ræða nokkuð kunn­ug­legt stef í ræðum Loga und­an­farin miss­eri.

Í við­tali við Mannlíf í jan­úar í fyrra sagði Logi að hann vildi rík­is­stjórn með Viðreisn, Pírötum og Vinstri grænum. „Ég held að við gætum náð mjög mörgum skemmti­legum og góðum málum á dag­skrá ef við myndum mynda rík­is­stjórn frá miðju til vinstri þar sem Sam­fylk­ingin væri kjöl­festu­flokkur og við hefðum svo Við­reisn og Pírata öðrum megin við okkur og Vinstri græn hinum megin við okk­ur.“

Á flokk­stjórn­ar­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar sem fór fram í mars 2019 sagði hann að Ísland þyrfti ekki jafn­vægi Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem byggði á því að örfáir sitja öðru megin á vega­salt­inu, með þorra gæð­anna en allur almenn­ings héldi jafn­vægi hinum meg­in.

Á öðrum flokk­stjórn­ar­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar sem hald­inn var í októ­ber í fyrra fjall­aði hann meðal ann­ars um, í ræðu sinni þar, hversu stór tíð­indi ný staða Sjálf­stæð­is­flokks­ins vegna minnk­andi fylgis væri og að aðrir flokkar þurfi að bregð­ast við þessum nýja veru­leika sem blasti við í íslenskum stjórn­mál­um. Hann sagði þetta vera sögu­legt tæki­færi fyrir Sam­fylk­ing­una til að fylkja saman umbóta­öfl­unum í land­inu og sýna að það sé til betri val­kostur fyrir íslenskan almenn­ing en núver­andi rík­is­stjórn. 
„Næsta stóra verk­efni okkar er þetta: Við verð­um, og segjum það bara skýrt, við verðum að fella þessa rík­is­stjórn í kosn­ing­unum 2021, til að mynda betri, djarfari og víð­sýnni stjórn fyrir fólkið í land­inu og kom­andi kyn­slóðir - við verðum að rísa undir þeirri ábyrgð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár