Katrín: Kólnun en ekki skyndileg djúpfrysting

Heil­brigð­is­mál, atvinnu­leysi, kaup­máttur, nátt­úru­öfl og inn­viða­fjár­fest­ingar eru meðal þess sem for­sæt­is­ráð­herra ræddi um í ræðu sinni við upp­haf þings í dag.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra ræddi um efna­hags­mál í umræðum um stöð­una í stjórn­málum í byrjun árs og verk­efnin framundan á Alþingi í dag. Þar sagði hún að kólnun væri í hag­kerf­inu og að allt benti til þess að sam­dráttur á síð­asta ári hefði verið 0,2 pró­sent. Lífs­kjara­samn­ing­arnir sem gerðir voru í apríl hefðu, og myndu áfram, hjálpa til við mjúka lend­ingu í efna­hags­líf­inu. Verð­bólga væri til að mynda undir mark­miðum en helstu afleið­ing­arnar væru helst á atvinnu­mark­aði þar sem atvinnu­leysi hefur auk­ist veru­lega á skömmum tíma. „Þetta er kólnun en ekki skyndi­leg djúp­fryst­ing eins og við höfum séð oft áður.“

Atvinnu­leysi mælist nú hærra en það hefur verið frá árinu 2013. Alls mæld­ist það 4,1 pró­sent í nóv­em­ber 2019. Mest var það á Suð­ur­nesjum, þar sem það mæld­ist 8,4 pró­sent. Atvinnu­leysið bitnar helst á erlendum rík­is­borg­urum, sem fjölgað hefur veru­lega hér­lendis á und­an­förnum árum, en 39 pró­sent allra sem voru án atvinnu voru slíkir í nóv­em­ber. Á Suð­ur­nesjum voru til að mynda fleiri Pól­verjar án atvinnu en Íslend­ingar.

Katrín ræddi einnig um efna­hags­mál síð­ustu miss­eri og minnt­ist á að vef­inn Tekju­sagan.is. Hún sagði að sá vefur hefði nýverið verið upp­færður fyrir árið 2018 og að þar kæmi fram ráð­stöf­un­ar­tekjur án fjár­magnstekna hefur auk­ist á því ári og hefðu aldrei verið hærri hjá mörgum hópum. „Það eru jákvæð teikn á lofti þegar við skoðum stöð­una árið 2018.“

Í máli Katrínar kom fram að það blasi við krefj­andi áskor­anir í efna­hags­málum. Ekki bara vegna kóln­unar í hag­kerfi heldur vegna upp­safn­aðrar þarfar fyrir fjár­fest­ingu í innviðum. Þegar búið væri að ráð­ast í auknar opin­berar fjár­fest­ingar en enn þurfi að bæta þar í. Stóru málin sem framundan séu teng­ist svo heil­brigð­is­málum.

„Nátt­úru­öflin eru okkur áfram ofar­lega í huga,“ sagði Katrín í ræðu sinni. Þar á hún við bæði óveðrið sem gekk yfir í des­em­ber og snjó­flóðin sem féllu á Flateyri og í Súg­anda­fjörð nýverið.

Í tengslum við Ofan­flóða­sjóð, sem mikið hefur verið ræddur und­an­farið, rifj­aði Katrín upp að hann hefði upp­haf­lega verið settur á fót árið 1996 og að verk­efni hans hefðu átt að klár­ast árið 2010. Í fjöl­miðlum und­an­farið hefur komið fram að um 21 millj­arður króna sem greitt hefur verið í sjóð­inn með sér­tækri tekju­öflun hefur ekki verið not­aður í þau verk­efni sem hann átti að vinna að.

Katrín sagði að þetta væri á ábyrgð nokk­urra rík­is­stjórna. Til að mynda hefði hægt á fjár­veit­ingum til verk­efna Ofan­flóða­sjóðs á árunum 2004 til 2007 til að sporna við þenslu, meðal ann­ars vegna virkj­ana­fram­kvæmda. Síðan var gefið í en aftur dregið úr eftir hrun.

Það væru um það bil 20 millj­arða fram­kvæmdir sem þurfi að ráð­ast í til að ofan­flóða­varnir verði í lagi. Fjármála- og efna­hags­ráð­herra og umhverf­is­ráð­herra muni leggja fram nýja áætlun í nán­ustu fram­tíð um hvernig verður staðið að þeirri upp­bygg­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár