Hlutur olíufélaga í hverjum seldum bensínlítra aldrei verið hærri

Á einum mán­uði hefur lík­legt inn­kaupa­verð olíu­fé­laga á bens­ín­lítra lækkað um meira en 60 pró­sent. Sú lækkun, sem er til­komin vegna hruns á olíu­verði á heims­mark­aði, hefur ekki skilað sér til íslenskra neyt­enda.

Á einum mán­uði hefur lík­legt inn­kaupa­verð olíu­fé­laga á bens­ín­lítra lækkað um meira en 60 pró­sent. Sú lækkun, sem er til­komin vegna hruns á olíu­verði á heims­mark­aði, hefur ekki skilað sér til íslenskra neyt­enda, enda bens­ín­verð nán­ast það sama nú og það var um miðjan mars. Hlutur íslensku olíu­fé­lag­anna í hverjum seldum lítra er hins vegar 78 pró­sent hærri en hún var í mars.

Inn­kaupa­verð á olíu er lægra en það hefur nokkru sinni verið og hlutur íslensku olíu­fé­laga í hverjum seldum lítra hér­lendis hefur aldrei verið hærri en hann er nú um stundir. Um miðjan síð­asta mánuð kost­aði einn lítri af bens­íni á Íslandi 209,8 krónur og af honum fóru 18,52 pró­sent til olíu­fé­lag­anna. Nú, eftir að heims­mark­aðs­verð á olíu hefur hrunið um tugi pró­senta á nokkrum vikum, hefur við­mið­un­ar­verð á bens­íni hér­lendis nán­ast staðið í stað. Það er 208,9 krónur sem er ein­ungis 0,4 pró­sent lægra verð en var um miðjan mars. Hlutur olíu­fé­lag­anna í hverjum seldum lítra er hins vegar nú 32,96 pró­sent, eða 78 pró­sent hærri en hann var um miðjan mars.

Þetta má sjá í nýj­ustu Bens­ín­vakt Kjarn­ans sem unnin er í sam­vinnu við Bens­ín­verð.is og var birt í dag.

Bens­ín­vakt Kjarn­ans reiknar út lík­­­­­legt inn­­­­­kaups­verð á bens­íni út frá verði á lítra til afhend­ingar í New York í upp­­­hafi hvers mán­aðar frá banda­rísku orku­­­stofn­un­inni EIA og mið­gengi Banda­ríkja­dals gagn­vart íslenskri krónu í yfir­­­stand­andi mán­uði frá Seðla­­­banka Íslands.

Í þessum útreikn­ingum kann að skeika nokkru á hverjum tíma­­­punkti vegna lag­er­­­stöðu eða skamm­­­tíma­­­sveiflna á mark­aði. Nákvæmara væri að miða við verð á bens­íni til afhend­ingar í Rott­er­dam, en verð­­­upp­­­lýs­ingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagna­veit­­­um. Mis­­­munur á verði í New York og Rott­er­dam er þó yfir­­­­­leitt mjög lít­ill.

Hrun á heimsmarkaði

Samkvæmt nýj­ustu útreikn­ingum hefur lík­legt inn­kaupa­verð á hvern lítra af bens­íni lækkað um tæp­lega 61 pró­sent milli mars og apríl. Það er nú 19,92 krónur á lítra en var 50,65 krónur á lítra í mars­mán­uði.

Ástæðan fyrir þessum miklu lækkum eru tví­þættar. Sú fyrri er miklu minni eft­ir­spurn, meðal ann­ars vegna þess að flug­ferðir hafa að mestu verið aflagðar. Raunar er um að ræða mesta sam­drátt í eft­ir­spurn á olíu sem átt hefur sér stað, nokkru sinni.

Viðmiðunarverð á bensíni hérlendis stendur nánast í stað milli mánaða þrátt fyrir að líklegt innkaupaverð hafi hríðfallið.
Við­mið­un­ar­verð á bens­íni hér­lendis stendur nán­ast í stað milli mán­aða þrátt fyrir að lík­legt inn­kaupa­verð hafi hríð­fallið.

Hin ástæðan er ákvörðun Sádí-Arabíu, stærsta olíu­fram­leið­anda í heimi, mars­mán­aðar að stór­auka fram­leiðslu sína í stað þess að draga úr henni til að reyna að ná verðum aftur upp. Þetta gerður Sádar til að meðal ann­ars vegna þess að ekki náð­ist sam­komu­lag við Rússa um að þeir myndu tak­marka olíu­fram­leiðslu sína.

Sam­komu­lag náð­ist milli helstu olíu­fram­leiðslu­ríkja heims um að draga úr fram­leiðslu um síð­ustu helgi en það virð­ist ekki hafa dugað til að hífa heims­mark­aðs­verðið upp á ný, enda fram­leiðslan enn langt umfram eft­ir­spurn.

Á móti hefur íslenska krónan veikst um 3,11 pró­sent gagn­vart Banda­ríkja­dal síð­ast­lið­inn mánuð og alls um 17,65 pró­sent á árinu. Það gengi hefur umtals­verð áhrif á þróun elds­neyt­is­verðs hér­lendis þar sem að inn­kaup á elds­neyti fara fram í döl­u­m.

Þrátt fyrir þessa miklu lækkun á heims­mark­aði þá hefur bens­ín­verð hér­lendis svo gott sem staðið í stað milli mán­aða. Við­mið­un­ar­verð á bens­íni sam­kvæmt Bens­ín­vakt Kjarnans fer úr 209,8 krónum á lítra í 208,9 krónur á lítra. Hlut­deild olíu­fé­lag­anna í hverjum seldum lítra fer úr því að vera 18,52 pró­sent í mars í að vera 32,96 pró­sent í apríl. Hún hefur aldrei verið hærra en lægst fór hún í tæp­lega ell­efu pró­sent í júní 2009.

Hér má sjá hvernig hver seldur bensínlítri skiptist á milli ríkisins (gulu svæðin), innkaupaverðs (dökkbláa svæðið) og olíufélaganna (ljósbláa svæðið).
Hér má sjá hvernig hver seldur bens­ín­lítri skipt­ist á milli rík­is­ins (gulu svæðin), inn­kaupa­verðs (dökk­bláa svæðið) og olíu­fé­lag­anna (ljós­bláa svæðið).

Við­mið­un­ar­verðið er fengið frá hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Seið ehf. sem meðal ann­ars heldur úti síð­unni Bens­ín­verð.is og fylgst hefur með bens­ín­verði á flestum bens­ín­stöðum lands­ins dag­lega síðan 2007. Miðað er við næst­lægstu verð­tölu í yfir­lit­inu til að forð­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­ar­verðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíu­fé­lags­ins en reikna má með að raunin sé með­al­talið af öllu seldu bens­íni á land­inu.

Hlutur olíu­fé­lags er reikn­aður sem afgangs­stærð þegar búið er að draga frá hlut­deild rík­is­ins í hverjum seldum bens­ín­lítra og lík­legt inn­kaup­verð á honum frá reikn­uðu við­mið­un­ar­verði, enda hald­góðar upp­lýs­ingar um ein­staka kostn­að­ar­liði olíu­fé­lag­anna ekki opin­berar. 

Hlutur rík­­is­ins í hverjum lítra 57,5 pró­­sent

Íslenska ríkið tekur til sín stóran hluta af hverjum seldum lítra af bens­íni. Þannig fór 21,11 pró­­­sent af verði hans um miðjan apríl í sér­­­stakt bens­ín­gjald, 13,09 pró­­­sent í almennt bens­ín­­­gjald og 3,93 pró­­­sent í kolefn­is­­­gjald. Þá er ótalið að 19,35 pró­­­sent sölu­verðs er virð­is­auka­skatt­­­ur.

Sam­an­lagt fór því 120,12 krónur af hverjum seldum lítra til rík­­­is­ins, eða 57,5 pró­­­sent. Hæstur fór hlutur rík­­­is­ins í 60,26 pró­­­sent í júlí 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bensínvakt

Mest lesið undanfarið ár