Bensínlítrinn lækkaði í fyrsta sinn á þessu ári en hlutdeild olíufélaganna í hverjum seldum lítra eykst

Framan af ári voru olíu­fé­lögin ekki að velta miklum hækk­unum á bens­íni út í verðið sem neyt­endum var boðið upp á. Nú þegar heims­mark­aðs­verð hefur lækkað umtals­vert eru félögin að sama skapi að velta lækk­unum hægar út í verð­lagið en til­efni er til.

Við­mið­un­ar­verð á bens­íni lækk­aði í fyrsta sinn í langan tíma milli mán­aða, sam­kvæmt nýj­ustu Bens­ín­vakt Kjarnans. Það stendur nú í 328,4 krónum og lækk­aði alls um 17,1 krónur milli mán­aða, eða fimm pró­sent. Þetta er í fyrsta sinn á þessu ári sem við­mið­un­ar­verðið lækkar milli mán­aða.

Verðið í síð­asta mán­uði var það hæsta sem það hefur nokkru sinni verið í krónum talið, eða 341,9 krónur á lítra. Það hafði þá hækkað um 71 pró­sent á tveimur árum og um 28 pró­sent frá því í jan­úar. Upp­­­reiknað miðað við þróun vísi­­tölu neyslu­verðs á bens­ín­lítr­inn þó nokkuð í land með að ná sínu hæsta verði, en það náð­ist í apríl 2012.

Þetta má lesa út úr nýj­­ustu bens­ín­vakt Kjarn­ans.

Verð­lækk­unin er þó ekki í neinum takti við þá þróun sem hefur orðið á heims­mark­aði með olíu, en heims­mark­aðs­verðið á tunnu af hrá­olíu hefur lækkað um rúm­lega næstum 30 pró­sent á rúmum tveimur mán­uðum. Á sama tíma hefur verðið lækkað um tæp fimm pró­sent hér­lendis.

Á sama tíma hefur gengi krónu gagn­vart Banda­­­­ríkja­­­dal veikst um tæp sex pró­sent, en það gengi hefur umtals­verð áhrif á þróun elds­­­neyt­is­verðs hér­­­­­lendis þar sem að inn­­­­­kaup á elds­­­neyti fara fram í döl­u­m. Því dýr­ari sem dal­ur­inn er, því meira borgum við fyrir bens­ín.

Mik­il­vægt er að hafa í huga að við­mið­un­­­ar­verðið miðar við næst­lægstu verð­­­­­­­tölu í yfir­­­­­­­lit­i síð­­­­­­unnar Bens­ín­verð.is, sem hug­­­bún­­­að­­­ar­­­fyr­ir­tækið Seiður heldur úti, til að forð­­­­­­­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­­­­­­­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­­­­­­­ar­verðið er þó ætið með lægstu verð­­­­­­um.

Lækkun olíuverðs temprar verðbólgu

Félag íslenskra bif­reið­ar­eig­enda (FÍB) gagn­rýndi á heima­síðu sinni í síð­ustu viku að bensín- og dísel­verð væri enn óeðli­lega hátt hér­lendis þrátt fyrir miklar lækk­anir á heims­mark­aðs­verði síð­ustu tvo mán­uði. Í umfjöllun þess er bent á bensín í Danmörku lækkað um 18,4 pró­sent og dísil­olía um 16,8 pró­sent á meðan að lækk­unin hér­lendis er örfá pró­sent. „Bens­ín­verð á Íslandi og í Danmörku var svipað í báðum löndum snemma í júní. Núna er verð­mun­ur­inn á milli land­anna yfir 55 krónur á hvern lítra af bens­íni. Elds­neyti ber háa skatta á Íslandi og ekki minni skatta í Danmörku. Hlut­falls­leg lækkun nær ekki til krónu­tölu­skatta bæði hér heima og í Danmörku. Þennan mikla mun á verð­lækkun milli landa er engan vegin hægt að rétt­læta.“

Verð­bólga mælist mælist 9,9 pró­sent og stefnir í tveggja stafa tölu. Til að reyna að hemja verð­bólg­una hefur Seðla­banki Íslands hækkað stýri­vexti sína skarpt á skömmum tíma, upp í 4,75 pró­sent, og vænt­ingar eru um að það hækk­un­ar­ferli haldi áfram í næsta mán­uð­i. Þetta hefur haft mikil áhrif á ráð­stöf­un­ar­tekjur heim­ila, enda flest nauð­synja­vara dýr­ari með auk­inni verð­bólgu auk þess sem afborg­anir lána aukast mikið.

Í umfjöllun FÍB er bent á að elds­neyt­is­verð vegi þungt í vísi­tölu neyslu­verðs og þar með í verð­bólgu. „Olíu­fé­lögin hafa mikil áhrif á afkomu heim­ila og fyr­ir­tækja langt umfram lítra­verðið. Lækkun olíu­verðs temprar verð­bólgu en hátt verð kyndir verð­bólgu­bálið.“

Þá gagn­rýnir félagið það harð­lega að for­stjóri Skelj­ungs hafi sagt við RÚV í byrjun síð­ustu viku að olíu­fé­lögin hafi haldið aftur af verð­hækk­unum. „Rökin voru þau að fram­legðin af hverjum seldum lítra væri lægri um þessar mundir en hún var fyrir Covid-19. Það er athygl­is­vert að for­stjóri Skelj­ungs talar fyrir hönd allra olíu­fé­lag­anna sem eiga að heita að vera í sam­keppni. Síðan er það fram­legðin sem getur ekki verið hlut­fallstala í eðli­legri sam­keppni þegar um er að ræða vöru sem tekur miklum verð­sveiflum og er mjög hátt skatt­lögð.“

Hlutur olíufélaga að aukast að nýju

Bens­ín­vakt Kjarnans skoðar einmitt þetta, hvernig krón­urnar sem neyt­and­inn greiðir fyrir bens­ín­lítr­ann skipt­ist milli ríkis, olíu­fé­laga og ann­arra. Líklegt inn­kaupa­verð á lítra af bens­íni er nú 115,1 krónur á lítra, og hefur lækkað um 22,5 pró­sent á tveimur mán­uðum.

Þegar þær tölur eru skoð­aðar sést að hlutur olíu­­­fé­laga í hverjum seldum lítra fylgdi ekki þeim miklu hækk­­unum á inn­kaupa­verði sem urðu framan af ári. Það þýðir að félögin voru ekki að velta hækk­unum á heims­mark­aðs­verði að fullu út í verð­lag­ið. Það er nú að breyt­ast.

Hann er nú 57,4 krónur eða um 17,7 pró­­sent af hverjum seldum lítra. Í júlí var hann 48 krónur eða 14 pró­sent af hverjum seldum lítra. Hlutur olíu­fé­lag­anna í hverjum seldum lítra jókst því um 19 pró­sent milli júlí og ágúst­mán­aða og um 55 pró­sent á síð­ustu tveimur mán­uðum.

Sam­an­lagt fer því 172,54 krónur af hverjum seldum lítra til ann­­arra en rík­­is­ins, þ.e. þeirra sem selja smá­­sölum á elds­­neyti vör­una og til smá­sal­anna sjálfra.

Hlutur rík­­is­ins í hverjum seldum bens­ín­lítra, sem sam­anstendur af virð­is­auka­skatti, almennu og sér­­­stöku bens­ín­gjaldi og kolefn­is­gjaldi er nú 152,56 krónur á hvern lítra af seldu bens­íni og fer lækk­andi í krónum talið en hlut­falls­lega hækk­andi. Það þýðir að 46,9 pró­­sent af hverjum lítra fer í rík­­is­­sjóð.

Gögn og aðferðafræði

Hér að ofan er birt nið­ur­staða útreikn­inga og áætl­unar á því hvernig verð á lítra af bens­íni skipt­ist milli aðila í fram­setn­ingu GRID.

  • Við­mið­un­ar­verð er fengið frá hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Seið ehf. sem meðal ann­ars heldur úti síð­unni Bens­ín­verð.is og fylgst hefur með bens­ín­verði á flestum bens­ín­stöðum lands­ins dag­lega síðan 2007. Miðað er við næst­lægstu verð­tölu í yfir­lit­inu til að forð­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­ar­verðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíu­fé­lags­ins en reikna má með að raunin sé með­al­talið af öllu seldu bens­íni á land­inu.
  • Hlutur rík­is­ins liggur ljós fyrir út frá sköttum sem eru ýmist fastir og hlut­falls­legir. Upp­lýs­ingar um breyt­ingar á skatta­lögum eru fengnar frá Við­skipta­ráði sem fylgst hefur með slíkum breyt­ingum um ára­bil.
  • Líklegt inn­kaupa­verð er reiknað útfrá verði á bens­íni til afhend­ingar í New York-höfn í upp­hafi mán­aðar frá banda­rísku orku­stofn­un­inni EIA og mið­gengi doll­ars gagn­vart íslenskri krónu í yfir­stand­andi mán­uði frá Seðla­banka Íslands. Í þessum útreikn­ingum kann að skeika nokkru á hverjum tíma­punkti vegna lag­er­stöðu, skamm­tíma­sveiflna á mark­aði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bens­íni til afhend­ingar í Rott­er­dam, en verð­upp­lýs­ingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagna­veitum. Mismunur á verði í New York og Rott­er­dam er þó yfir­leitt mjög lít­ill.
  • Hlutur olíu­fé­lags er loks reikn­aður sem afgangs­stærð enda hald­góðar upp­lýs­ingar um ein­staka kostn­að­ar­liði olíu­fé­lag­anna ekki opin­berar. Hafa ber í huga að þar sem við­mið­un­ar­verð er með lægstu verðum á hverjum tíma er þessi liður ef til vill ein­hverju hærri sé litið til heild­ar­við­skipta með bensín á Íslandi.

Verð­upp­lýs­ingar mið­ast við verð­lag hvers tíma. Gögnin eru upp­færð mán­að­ar­lega í kringum 15. hvers mán­aðar. Fyr­ir­vari er gerður um skekkju­mörk sem þó ættu í mesta lagi að nema fáeinum krónum á útreikn­aða liði. Ábend­ingar um villur, lag­fær­ingar og betrumbætur skal senda á gogn@kjarninn.is og er tekið fagn­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bensínvakt

Mest lesið undanfarið ár