Hlutdeild olíufélaga í hverjum seldum lítra af bensíni hefur rúmlega tvöfaldast síðan í maí

Þrátt fyrir að lík­legt inn­kaupa­verð olíu­fé­laga á bens­íni hafi lækkað um þriðj­ung síðan í júní hefur við­mið­un­ar­verð á bens­íni á Íslandi ein­ungis lækkað um 7,5 pró­sent.

Það hefur verið dýrt að fylla á bíllinn á árinu 2022.
Það hefur verið dýrt að fylla á bíll­inn á árinu 2022. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Við­mið­un­ar­verð á bens­íni hefur nú lækkað skarpt tvo mán­uði í röð og er 315,2 krónur á lítra. Það er 26,7 krónum lægra en það var um miðjan júlí­mánuð. Verðið hefur því lækkað um 7,8 pró­sent frá þeim tíma. Við­mið­un­ar­verðið hækk­aði við­stöðu­laust milli mán­aða framan af ári. Einu skiptin sem það hefur lækkað er milli júlí og ágúst og nú milli ágúst og sept­em­ber.

Verðið í júlí var það hæsta sem það hefur nokkru sinni verið í krónum talið, eða 341,9 krónur á lítra. Það hafði þá hækkað um 71 pró­sent á tveimur árum og um 28 pró­sent frá því í jan­ú­ar. Upp­­­­­reiknað miðað við þróun vísi­­­tölu neyslu­verðs á bens­ín­lítr­inn þó nokkuð í land með að ná sínu hæsta verði, en það náð­ist í apríl 2012.

Þetta má lesa út úr nýj­­­ustu bens­ín­vakt Kjarn­ans.

Innkaupaverð olíufélaga lækkað um þriðjung

Verð­lækk­unin er þó ekki í neinum takti við þá þróun sem hefur orðið á heims­mark­aði með olíu, en heims­mark­aðs­verðið á tunnu af hrá­olíu hefur lækkað um tæp­lega 30 pró­sent síðan í júní. Á sama tíma hefur verðið lækkað um 7,5 pró­sent hér­lend­is.

[adspot]Lík­legt inn­kaupa­verð olíu­fé­lag­anna á lítra af bens­íni er nú 99,71 krónur sam­kvæmt útreikn­ingum bens­ín­vakt­ar­innar, sem ákvarð­ast einkum ann­ars vegar af heims­mark­aðs­verði á olíu og hins vegar gengi krón­unnar gagn­vart banda­ríkja­dal. Þetta er í fyrsta sinn síðan í febr­úar, áður en stríði í Úkraínu skall á, sem lík­legt inn­kaupa­verð hefur verið undir 100 krónum á lítra. Frá því að það náði hámarki á þessu ári, í júní, hefur lík­legt inn­kaupa­verð lækkað um þriðj­ung.

Olíufélögin farin að taka meira til sín

Þetta þýðir að olíu­fé­lögin eru að taka meira til sín í álagn­ingu af hverjum seldum lítra en þau gerðu fyrr á þessu ári. Hlutur þeirra er nú 65,08 krónur og hefur ekki verið hærri í krónum talið síðan í apríl 2020. Alls taka olíu­fé­lögin nú til sín tæp­lega 21 pró­sent af sölu­and­virði hvers selds lítra. Til sam­an­burðar tóku þau til sín 48 krónur í júlí, eða 14 pró­sent af hverjum seldum lítra. Hlutur olíu­fé­lag­anna í krónum talið hefur rúm­lega tvö­fald­ast frá því í maí síð­ast­liðnum, þegar 31,24 krónur af hverjum seldum lítra fór til þeirra.

Að hluta til má skýra þessa breyt­ingu með því að olíu­fé­lögin voru ekki að velta hækk­­unum á heims­­mark­aðs­verði að fullu út í verð­lag­ið framan af ári. Með því héldu þau að ein­hverju leyti aftur af hækk­unum og minnk­uðu hagnað sinn af elds­neyt­is­sölu. Þetta hefur breyst síð­ustu mán­uði. Samhliða því að inn­kaupa­verðið hefur lækkað hafa olíu­fé­lögin kroppað til baka þá álagn­ingu sem þau gáfu eftir fyrr á árinu 2022.

Álögur ríkisins hækka á næsta ári

Hlutur rík­­­is­ins í hverjum seldum bens­ín­lítra, sem sam­anstendur af virð­is­auka­skatti, almennu og sér­­­­­stöku bens­ín­gjaldi og kolefn­is­gjaldi er nú 150,41 krónur á hvern lítra af seldu bens­íni og fer lækk­andi í krónum talið en hlut­falls­lega hækk­andi. Það þýðir að 47,7 pró­­­sent af hverjum lítra fer í rík­­­is­­­sjóð.

Bif­reið­ar­eig­endur geta búist við því að greiða meira í rík­is­sjóð á næsta ári en þeir gera í ár. Samkvæmt fjár­laga­frum­varpi næsta árs er áætl­­­að að tekjur rík­­­is­­­sjóðs vegna vöru­gjalda af öku­tækjum auk­ist um 2,7 millj­arða króna og verði 8,2 millj­arðar króna á næsta ári.

Vöru­gjöld af bens­íni aukast um 440 millj­ónir króna milli ára og verða 9,3 millj­arðar króna, kolefn­is­gjöld aukast um 560 millj­ónir og verða 7,5 millj­arðar króna og olíu­gjaldið eykst um tæpan millj­arð króna og verður rúm­lega 13,5 millj­arðar króna.

Kíló­metra­gjald mun skila rúm­lega 1,6 millj­arð króna í rík­is­sjóð og bif­reiða­gjöld 10,6 millj­örðum króna.

Gögn og aðferða­fræði

Hér að ofan er birt nið­­ur­­staða útreikn­inga og áætl­­unar á því hvernig verð á lítra af bens­íni skipt­ist milli aðila í fram­­setn­ingu GRID.

  • Við­mið­un­­ar­verð er fengið frá hug­­bún­­að­­ar­­fyr­ir­tæk­inu Seið ehf. sem meðal ann­­ars heldur úti síð­­unni Bens­ín­verð.is og fylgst hefur með bens­ín­verði á flestum bens­ín­­stöðum lands­ins dag­­lega síðan 2007. Miðað er við næst­lægstu verð­­tölu í yfir­­lit­inu til að forð­­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­­ar­verðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíu­­­fé­lags­ins en reikna má með að raunin sé með­­al­talið af öllu seldu bens­íni á land­inu.
  • Hlutur rík­­is­ins liggur ljós fyrir út frá sköttum sem eru ýmist fastir og hlut­­falls­­leg­­ir. Upp­­lýs­ingar um breyt­ingar á skatta­lögum eru fengnar frá Við­­skipta­ráði sem fylgst hefur með slíkum breyt­ingum um ára­bil.
  • Lík­­­legt inn­­­kaupa­verð er reiknað útfrá verði á bens­íni til afhend­ingar í New York-höfn í upp­­hafi mán­aðar frá banda­rísku orku­­stofn­un­inni EIA og mið­­gengi doll­­ars gagn­vart íslenskri krónu í yfir­­stand­andi mán­uði frá Seðla­­banka Íslands. Í þessum útreikn­ingum kann að skeika nokkru á hverjum tíma­­punkti vegna lag­er­­stöðu, skamm­­tíma­­sveiflna á mark­aði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bens­íni til afhend­ingar í Rott­er­dam, en verð­­upp­­lýs­ingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagna­veit­­um. Mis­­munur á verði í New York og Rott­er­dam er þó yfir­­­leitt mjög lít­ill.
  • Hlutur olíu­­­fé­lags er loks reikn­aður sem afgangs­­stærð enda hald­­góðar upp­­lýs­ingar um ein­staka kostn­að­­ar­liði olíu­­­fé­lag­anna ekki opin­ber­­ar. Hafa ber í huga að þar sem við­mið­un­­ar­verð er með lægstu verðum á hverjum tíma er þessi liður ef til vill ein­hverju hærri sé litið til heild­­ar­við­­skipta með bensín á Íslandi.

Verð­­upp­­lýs­ingar mið­­ast við verð­lag hvers tíma. Gögnin eru upp­­­færð mán­að­­ar­­lega í kringum 15. hvers mán­að­­ar. Fyr­ir­vari er gerður um skekkju­­mörk sem þó ættu í mesta lagi að nema fáeinum krónum á útreikn­aða liði. Ábend­ingar um vill­­ur, lag­­fær­ingar og betrumbætur skal senda á gogn@kjarn­inn.is og er tekið fagn­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bensínvakt

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár