Framsókn og Sjálfstæðisflokkur bæta við sig - Píratar enn langstærstir

Píratar mæl­ast með 32 pró­sent fylgi sam­kvæmt nýbirtri skoð­ana­könnum Gallup sem gerð var dag­ana 28. maí til 29. júní og mælist stærsti flokkur lands­ins. Flokk­ur­inn dalar líti­lega á milli mán­aða en hann mæld­ist með 34 pró­sent fylgi í maí. Frá þessu var greint í fréttum RÚV í kvöld.


Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir bæta báðir við sig fylgi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 11,3 pró­sent fylgi en var með níu pró­sent fylgi í maí. Flokk­ur­inn mælist þó með tæp­lega helm­ing þess fylgis sem hann fékk í kosn­ing­unum vorið 2013, þegar 24,4 pró­sent atkvæða fóru til Fram­sóknar. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir einnig líti­lega við sig og mælist nú með 24,5 pró­senta fylgi. Það er þó tölu­vert frá kjör­fylgi flokks­ins, en hann fékk 26,7 pró­sent atkvæða vorið 2013. Það var næst versta nið­ur­staða hans í kosn­ingum frá upp­hafi.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina eykst um fimm pró­sent á milli kann­ana. Í maí studdu 31 pró­sent hana en í júní mælist stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina um 36 pró­sent.






Sam­fylk­ingin heldur áfram að tapa fylgi sam­kvæmt könnun Gallup og mælist með 11,4 pró­sent.Vinstri grænir mæl­ast með 10,3 pró­sent og Björt fram­tíð með 6,4 pró­sent fylgi.





Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár