Vindmyllur Danaveldis uppfylltu raforkuþörf landsins í hvassviðri - umframorkan úr landi

Vindmyllu­garðar uppfylltu alla raforku­þörf Danmerkur í hvassviðri sem gekk yfir landið á fimmtudaginn, og var umfram­orkan sem vind­myllurnar beisluðu úr vind­orkunni seld til Þýska­lands, Noregs og Svíþjóðar. Breski frétta­miðillinn The Guardian greinir frá málinu.

Á fimmtudags­kvöldið fram­leiddu vind­myllur Dana­veldis rafmagn sem samsvarar 116 prósentum af raforku­þörf landsins. Klukkan 03:00 aðfara­nótt föstudagins, þegar eftir­spurn eftir rafmagni dettur jefnan niður yfir hánóttina, hækkaði framleiðslu­getan upp í 140 prósent umfram eftir­spurn.

Um 80 prósent af umfram­orkunni var skipt bróður­lega á milli Þýska­lands og Noregs, sem hafa yfir búnaði að ráða sem getur varðveitt orkuna til notkunar síðar. Svíþjóð tók fimmtungs­hlutinn sem eftir var.

Engir draumórar að endurnýjanleg orka sjái jörðinni fyrir rafmagni


„Þetta sýnir að hug­myndir um að end­ur­nýj­an­legir orku­gjafar sjái jörð­inni fyrir orku eru engir draum­órar,“ hefur The Guardian eftir Oliver Joy tals­manni evr­ópsku vind­orku­sam­tak­anna (The European Wind Energy Association). „Vindorka og aðrir end­ur­nýj­an­legir orku­gjafar geta verið lausnin við kolefn­islosun heims­ins, og tryggt orku­ör­yggi þegar mikið liggur við.“

Upplýsingarnar um áður­nefnda raforku­framleiðslu vind­myllanna voru fyrst birtar á vefsíðu Energinet, sem rekur danska raforku­flutnings­kerfið, en þar er hægt að sjá hlutfall endurnýjanlegrar orku í raforku­kerfinu í rauntíma. Þar má sjá að vindmyllu­garðar Dana­veldir voru meira að segja ekki á fullum afköstum, sem eru 4,8 gígawött, þegar hvassast var á fimmtudaginn og aðfara­nótt föstu­dagsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár