Mynd: Heiða Helgadóttir

Ríkisstjórnin vill veikja tekjustofna og draga úr húsnæðisstuðningi en stórauka útgjöld til heilbrigðis- og samgöngumála

Útgjöld og tekjur hins opinbera munu standa í stað sem hlutfall af vergri lands­framleiðslu næstu árin samkvæmt fyrstu fjármála­áætlun ríkis­stjórnar Katrínar Jakobs­dóttur.

Útgjöld og tekjur hins opinbera munu standa í stað sem hlutfall af vergri lands­framleiðslu næstu árin samkvæmt fyrstu fjármála­áætlun ríkis­stjórnar Katrínar Jakobs­dóttur sem birtist á vef Alþingis í dag.

Dregið verður úr skatt­byrði þrátt fyrir útgjalda­aukningu til flestra mála­flokka. Fyrir vikið verður heildar­afkoma ríkis­sjóðs lægri en gert var ráð fyrir í fjármála­áætlunum fyrri ríkis­stjórna.

Tekju­ráðstafanir til lækkunar verða um 25 milljarðar líkt og Stundin hafði áður reiknað út á grund­velli fyrir­heita sem fram komu í stjórnar­sáttmála ríkis­stjórnarinnar. Þarna vega þyngst lækkun tekju­skatts einstaklinga og lækkun trygginga­gjalds fyrir­tækja. 

Samhliða lækkun skatt­prósent­unnar í neðra þrepi tekju­skatt­kerfisins er stefnt að heildar­endurskoðun tekju­skatts einstaklinga og bótakerfa „með það að markmiði að unnt verði að draga úr skatt­byrði og koma á fót heild­stæðu og einfaldara kerfi, ekki síst í þágu tekju­lægri hópa“.

Trygginga­gjald mun lækka úr 6,85% í 6,6% árið 2019 og verður virðis­aukaskattur á bækur afnuminn sama ár. Loks verður sérstaki banka­skatturinn lækkaður úr 0,376% í 0,145%.

Þá stendur enn til að breyta reikni­reglu fjármagns­tekju­skattsins í því skyni að verja fjármagns­eigendur sérstak­lega fyrir verðbólgu­áhrifum.

Þetta gæti skipt miklu fyrir fjár­sterkustu hópa íslensks samfélags ef rætist úr áhyggjum Seðla­bankans og annarra aðila af því að minna aðhald í ríkis­fjármálum muni kynda undir verðbólgu á næstu árum.

Hækkun kolefnis­gjalds verður miklu minni en Benedikt Jóhannesson, fyrirrennari Bjarna Benedikts­sonar á stóli fjármála­ráðherra, stefndi að.

Í tíð síðustu ríkis­stjórnar var lagt upp með tvöföldun kolefnis­gjaldsins. Ný ríkis­stjórn ákvað í staðinn að hækka það um helming. Ofan á þá hækkun, sem tók gildi í upphafi árs, mun gjaldið aðeins hækka um 10% til viðbótar árið 2019 og aftur 10% árið 2020 þrátt fyrir að ríkis­stjórnin hafi sett fram háleit markmið um kolefnis­hlutlaust Ísland. 

Fjár­festingar vaxa umtals­vert á árinu 2019 eða um 13 milljarða og ná hámarki á árinu 2021. Aukningin er einna mest í samgöngu- og fjar­skiptamálum en þar verður uppbyggingin meðal annars fjár­mögnuð með arðgreiðslum frá fjármála­fyrirtækjum í eigu ríkisins. 

Hér má sjá áætl­aða útgjalda­þróun næstu ára í sam­hengi við tölur úr fjár­lögum áranna 2017 og 2018.

Framlög til heilbrigðis­mála verða í lok tíma­bilsins um 249 milljarðar á ári og munu þá hafa aukist uppsafnað um 40 milljarða frá fjárlögum 2018, eða rúmlega 19% að raunvirði. Uppsöfnuð aukning framlaga til félags-, húsnæðis- og trygginga­mála nemur 28 milljörðum á tíma­bilinu. Framlög til háskóla­stigsins hækka um ríflega 2,8 milljarða á tíma­bilinu sem á að duga til að framlög á hvern nemanda hækki.

Húsnæðis­stuðningur dregst saman frá fjárlögum ársins 2018 úr 13,4 milljörðum niður í 11,7 milljarða árið 2023. Þetta er einkum vegna þess að framlög til byggingar leigu­íbúða munu lækka um helming þegar sérstöku átaki frá 2016 lýkur á næsta ári.

Útgjöld til lista, menningar, íþrótta- og æskulýðs­mála dragast lítillega saman og jafnframt framlög til lýðheilsu­mála. Þá er ekki gert ráð fyrir sérstökum viðbótar­framlögum til barna- og vaxta­bóta­kerfisins. Hækkun útgjalda til málefna aldraðra samræmist kerfis­lægum vexti bóta­greiðslna vegna fjölgunar elli­lífeyrisþega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár