Leggja til að maki geti einhliða krafist skilnaðar

Þingmenn úr Viðreisn, Sam­fylk­ing­unni, VG og Pírötum vilja jafna rétt fólks til lög­skiln­aðar óháð því hvort hann er að kröfu ann­ars hjóna eða beggja.

Lagt hefur verið fram frum­varp á Alþingi til laga um breyt­ingar á hjú­skap­ar­lögum. Fyrsti flutn­ings­maður er Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar og með honum eru tíu þing­menn úr hans eigin flokki, Sam­fylk­ing­unni og Vinstri grænum og Pírötum.

Mark­miðið með frum­varp­inu er að jafna rétt fólks til lög­skiln­aðar óháð því hvort hann er að kröfu ann­ars hjóna eða beggja. Þá er í frum­varp­inu lagt til að lág­marks­tími frests til að krefj­ast lög­skiln­aðar í kjöl­far sam­vistaslita vegna ósam­lyndis hjóna verði styttur.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að hjú­skapur sé lög­bundið og form­lega stað­fest sam­komu­lag tveggja ein­stak­linga til að verja líf­inu saman og deila ábyrgð á heim­ili og börnum sín á milli. Hjúskap fylgi jafn­framt skyldur til trú­mennsku og fram­færslu sem og réttur til erfða falli annað hjóna frá. Grund­völlur hjú­skapar sé sam­komu­lagið og sé við­ur­kennt á Vest­ur­löndum að fólk geti fallið frá því sam­komu­lagi.

Samkvæmt gild­andi hjú­skap­ar­lögum er lög­skiln­aður kræfur hálfu ári frá því að leyfi hefur verið gefið út til skiln­aðar að borði og sæng séu hjón á einu máli um að leita skiln­aðar en ári frá slíku leyfi sé skiln­aðar kraf­ist af hálfu ann­ars hjóna. Hafi hjón slitið sam­vistir vegna ósam­lyndis, án þess að leyfi til skiln­aðar að borði og sæng hafi verið veitt, getur hvort hjóna kraf­ist lög­skiln­aðar þegar sam­vista­slit hafa staðið í tvö ár hið skemmsta.

Of þröng heimild til að krefjast lögskilnaðar

Í grein­ar­gerð­inni kemur enn fremur fram að áhrif þess­ara reglna séu meðal ann­ars þau að í til­vikum þar sem annað hjóna leit­ast eftir því að losna úr hjú­skap þar sem and­legu eða lík­am­legu ofbeldi hefur verið beitt þá hafi hitt í hendi sér að tefja skiln­að­inn í langan tíma. Í hjú­skap­ar­lögum sé þröng heim­ild til að krefj­ast lög­skiln­aðar ef annað hjóna hefur orðið upp­víst að lík­ams­árás eða kyn­ferð­is­broti sem bitnar á hinu eða barni sem býr hjá þeim. Annað hjóna geti þá kraf­ist lög­skiln­aðar að því skil­yrði upp­fylltu að verkn­aður hafi verið fram­inn af ásettu ráði og valdið tjóni á lík­ama eða heil­brigði þess er fyrir verður ef lík­ams­árás er til að dreifa.

Þessi heim­ild sé ann­ars vegar háð erf­iðri sönn­un­ar­stöðu þess maka sem krefst lög­skiln­aðar og hefur mögu­lega orðið fyrir ofbeldi og taki hins vegar ekki til and­legs ofbeldis. Leiða verði líkur að því að and­legt ofbeldi sé algeng­ara í sam­böndum en lík­am­legt og að sama skapi erf­ið­ara eða ómögu­legt að gera að skil­yrði í lögum, sem hægt sé að sýna fram á að sé full­nægt með hlut­lægum hætti.

Vilja rýmka rétt hjóna til að krefjast lögskilnaðar

Flutn­ings­menn telja því nauð­syn­legt að rýmka rétt hjóna til að krefj­ast lög­skiln­aðar. Er því ann­ars vegar lögð til sú breyt­ing á ákvæðum hjú­skap­ar­lag­anna að réttur hjóna til skiln­aðar sé hinn sami óháð því hvort annað þeirra krefj­ist skiln­aðar eða bæði. Lagt er til að sam­kvæmt lög­unum geti maki ein­hliða kraf­ist skiln­aðar. Þá er lagt til að bæði hjón eða maki geti kraf­ist lög­skiln­aðar að und­an­gengnum skiln­aði að borði og sæng þegar liðnir eru sex mán­uðir frá því að leyfi var gefið út til skiln­aðar að borði og sæng eða dómur gekk. Hins vegar er lögð til sú breyt­ing með frum­varp­inu að lág­marks­tími frests til að krefj­ast lög­skiln­aðar í kjöl­far sam­vistaslita vegna ósam­lyndis verði styttur úr tveimur árum í eitt ár.

„Töl­fræði­gögn Hagstofu Íslands sýna að um 85 pró­sent skiln­aða að borði og sæng ljúki með lög­skiln­aði. Engin gögn eru til um það á hvaða tíma­bili skiln­aðar að borði og sæng þau 15 pró­sent hjóna sem ekki óska lög­skiln­aðar taki saman á ný. Þá eru engar opin­berar upp­lýs­ingar um hversu hátt hlut­fall hjóna sem slíta sam­vistir vegna ósam­lyndis krefj­ast lög­skiln­aðar. Ætla verður að hálft ár í kjöl­far skiln­aðar að borði og sæng og heilt ár í kjöl­far sam­vistaslita vegna ósam­lyndis dugi fólki til sátta sé á annað borð grund­völlur fyrir sáttum. Sé grund­völlur fyrir sáttum er fólki einnig heim­ilt að taka lengri tíma til að ná sáttum en þann lág­marks­tíma sem kveðið er á um í lögum.“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Tímamörk núgildandi hjúskaparlaga ekki réttlætanleg

Að mati flutn­ings­manna eru tíma­mörk hjú­skap­ar­laga, sé þeim ætlað að fækka lög­skiln­uðum, ekki rétt­læt­an­leg miðað við ann­ars vegar þung­ann og þján­ing­una sem ein­stak­lingur fastur í ofbeld­is­sam­bandi þurfi að þola meðan hann bíður eftir heim­ild til lög­skiln­aðar, og hins vegar miðað við valdið sem ger­andi í slíku sam­bandi hafi yfir maka sínum á meðan skiln­aður er ekki geng­inn í gegn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár