FBI: Mistök við bakgrunnsskráningu gerðu Roof kleift að kaupa byssu

Hinn 23 ára gamli Dylann Storm Roof, sem er ákærður fyrir að hafa myrt níu svarta kirkju­gesti í Charleston þann 17. júní síðastliðinn, hefði ekki átt að geta keypt sér byssu sem hann notaði við ódæðið, ef glæpur sem hann framdi skömmu fyrir morðin hefði verið rétt skráður í bakgrunns­gagnabanka. Þetta sagði James Comey yfirmaður bandarísku alríkis­lögreglunnar (FBI), en BBC greinir frá málinu.

Seljendum skotvopna er skylt samkvæmt lögum að fletta hverjum þeim upp í gagna­bankanum sem hefur áhuga á að kaupa sér skotvopn, til að kanna hvort þeir séu til þess bærir að kaupa byssu.

Comey fullyrti í samtali við blaðamenn í dag að Dylann Roof hefði aldrei átt að geta keypt sér byssu eftir að hann var gripinn með fíkniefni í fórum sínum nokkrum vikum fyrir voða­verkið í kirkjunni í Charleston. Roof játaði sekt sína í fíkniefna­málinu.

Yfirmaður FBI sagði að játning Roof hefði ein og sér átt að nægja til að koma í veg fyrir að hann gæti keypt sér skotvopn, en málið hefði verið vitlaust fært inn á sakaskrá hans. Það þýddi að greinandi hjá FBI, sem kannaði bakgrunn Roof sá ekki fíkniefna­málið. „Ef hún hefði séð þetta lögreglumál, þá hefðu þessi byssukaup aldrei átt sér stað,“ sagði Comey á blaðamanna­fundinum í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár