Farnir að skoða „aðrar leiðir“ til að leysa úr deilunni

Ögur­stund er komin upp í kjara­deilu sjó­manna og útgerða.

„Ég get stað­fest það að menn eru farnir að tala um að við verðum að fara að reyna að finna ein­hverja leið út úr þessu sem yrði með öðrum for­merkjum en hingað til, en ég má ekki segja frá því hver sú leið er,“ segir Val­mundur Val­munds­son, for­maður Sjó­manna­sam­bands­ins, við­tal við Morg­un­blaðið í dag. 

Þar kemur fram að við­semj­endur líti svo áð nú sé komin upp ögur­stund í deilu sjó­manna og útgerð­ar­manna, en verk­fall hefur staðið frá 14. des­em­ber með til­heyr­andi tjóni fyrir íslenska hag­kerfið. 

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, lét hafa eftir sér í Silfrinu á RÚV í gær, að hún von­að­ist til þess að samið yrði sem allra fyrst. „Gjörið svo vel, viljið þið elsku vinir fara að semja. Ég er ekki að fara að setja lög á sjó­manna­deil­una,“ sagði Þor­gerður Katrín.

Gauti Jóhann­es­son, for­maður sam­taka sjáv­ar­út­vegs­sveit­ar­fé­laga, sagði í aðsendri grein á vef Kjarnans að ekki væri í boði fyrir stjórn­völd að sitja lengur hjá. Tjónið væri mikið og það þyrfti að höggva á hnút­inn.

Að sögn Val­mundar munu aðilar í sam­tökum innan Sjó­manna­sam­bands­ins hitt­ast á fundi í dag, að því er fram kemur í Morg­un­blað­inu.

Í Bret­landi hafa menn vax­andi áhyggjur af áhrifum verk­falls­ins hér á landi og skorti á ferskri ýsu og þorski, sem þangað er fluttur inn frá Íslandi. Hefur hann leitt til upp­sagna starfs­fólks fisk­mark­að­ar­ins í Grimsby og við­búið að verð hækki, segir í Morg­un­blað­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár