Þorgerður Katrín: Viljið þið elsku vinir fara að semja

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra segir ekki koma til greina að grípa til sér­tækra aðgerða í sjó­manna­deil­unni. Frekar eigi að skoða almennar aðgerðir og ein­földun á skatt­kerf­inu.

„Gjörið svo vel, viljið þið elsku vinir fara að semja. Ég er ekki að fara að setja lög á sjó­manna­deil­una,“ sagði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, í Silfrinu á RÚV í morgun.

Þor­gerður Katrín segir ekki koma til greina að stjórn­völd komi að lausn sjó­manna­deil­unnar með sér­tækum hætti eins og dag­pen­ingum. Hins vegar muni stjórn­völd fara yfir mögu­leik­ana á því að liðka fyrir með almennum hætti. Hún vill einnig að farið verði í end­ur­skoðun á skatt­kerf­inu almennt. „Nú erum við í ein­stöku tæki­færi til þess að gera skatt­kerfið ein­fald­ara, við eigum að ein­falda skatt­kerfið, ekki flækja það.“ Hún segir að krafan um það að sjó­mann fái dag­pen­inga bygg­ist á for­dæmi frá flug­liðum og flug­mönnum, en það sé ekki heppi­legt dæmi.

Hún sagði að það yrði að vera ljóst að það sé nú verið að krefj­ast þess með beinum hætti að ríkið komi að því að styrkja sjáv­ar­út­veg­inn með kröfum um skatt­frjálsa dag­pen­inga. Þetta telur Þor­gerður Katrín verða að setja í sam­hengi við þá kröfu og umræðu fyrir kosn­ingar að sjáv­ar­út­veg­ur­inn eigi að greiða sann­gjarnt og aukið afgjald fyrir notkun á fisk­veiði­auð­lind­inni.

Hún segir að ef ríkið eigi að koma að deil­unni þá vilji hún miklu frekar skoða að gera það í gegnum almennar aðgerðir. Hún vilji frekar að fjár­magn fari beint í bæj­ar­fé­lögin sem verst verða úti í verk­fall­inu heldur en að það fari í nið­ur­greiðslur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár