Stríð ríkisstjórnarinnar við serranó-skinkuna broslegt

Þing­maður Við­reisnar spurði á þingi í dag hvort almenn­ingi staf­aði „mögu­lega ein­hver hætta af parma­skinku“ sem Íslend­ingar könn­uð­ust ekki við.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar, segir að íslensk mat­væla­fram­leiðsla verð­s­kuldi vita­skuld stuðn­ing og að búa við aðstæður og umgjörð til að blómstra en að stríð rík­is­stjórn­ar­innar við serranó-skink­una sé dálítið bros­legt. Varn­ar­múr stjórn­valda á landa­mær­unum sé ógn­ar­hár.

Þetta kom fram í máli hennar undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Hóf hún mál sitt á að benda á að þegar sam­keppn­is­lög komu fyrst fram á sjón­ar­sviðið í Banda­ríkj­unum árið 1890 hefði til­gang­ur­inn verið að vernda neyt­endur gegn háu verði ann­ars vegar og tak­mörk­uðu fram­boði hins vegar.

„Hæsti­réttur Banda­ríkj­anna hefur sagt sam­keppn­is­lög og sam­keppn­is­lög­gjöf jafn mik­il­væg fyrir efna­hags­legt frelsi og sjálf stjórn­ar­skráin er fyrir vernd mann­rétt­inda. Sam­keppni er enda verk­færi til að stuðla að fjöl­breytt­ara fram­boði og lægra vöru­verði í þágu almenn­ings. Nú um ára­mótin var tekin upp aðferð við úthlutun toll­kvóta á erlendar land­bún­að­ar­vörur sem felst í því að inn­flutn­ings­heim­ildum er úthlutað til hæst­bjóð­anda. Inn­flytj­endur þurfa að greiða útboðs­gjald til að fá að flytja inn vörur án tolla,“ sagði hún.

Breytingin muni að líkindum leiða til verðhækkana á matvöru

Vísaði Þorbjörg Sigríður í orð fram­kvæmda­stjóra Félags atvinnu­rek­enda, Ólafs Steph­en­sen, sem sagt hefur að útboðs­gjaldið hafi um nokk­urt skeið farið lækk­andi, en um ára­mótin hafi verið tekin upp ný aðferð, eða raunar eldri, við að ákvarða gjöldin og þá hafi það hækkað á ný.

„Þessi breyt­ing mun auð­vitað að lík­indum leiða til verð­hækk­ana á mat­vöru. Þarna er til dæmis 65 pró­sent hækkun á toll­kvóta fyrir nauta­kjöt, 115 pró­sent hækkun fyrir líf­rænt ali­fugla­kjöt og til að fá að flytja inn ákveðna teg­und af skinku, parma­skinku eða serranóskinku, 29-fald­ast útboðs­gjaldið. Ef til­gang­ur­inn var sá að vernda íslenskan land­búnað, hefði þá ekki mátt gera það með þeim hætti að bændur sjálfir hefðu notið góðs af? Aðgerðir stjórn­valda núna byggj­ast nefni­lega ekki á beinum stuðn­ingi við rekstr­ar­að­ila heldur ein­göngu á því að skerða stöðu keppi­nauta,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Hún sagði þetta vera á skjön við aðrar stuðn­ings­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar þar sem aðgerð­irnar hefðu einmitt verið fólgnar í beinum stuðn­ingi. „Íslensk mat­væla­fram­leiðsla verð­skuldar vita­skuld stuðn­ing og að búa við aðstæður og umgjörð til að blómstra, en stríð rík­is­stjórn­ar­innar við serranóskink­una er dálítið bros­legt. Varn­ar­múr stjórn­valda á landa­mær­unum er ógn­ar­hár. Stafar almenn­ingi mögu­lega ein­hver hætta af parma­skinku, sem við ekki þekkjum? Er þetta eitt­hvert örygg­is­mál? Eða hvers vegna er rík­is­stjórnin ein­huga í því mark­miði að draga úr sam­keppni, hækka verð og fækka val­mögu­leikum almenn­ings?“ spurði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár