Segir viðbrögð VR við vaxtahækkun muni ekki fara framhjá neinum

Formaður VR segir ákvörðun Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna að hækka breyti­lega verð­tryggða vexti sína vera blauta tusku framan í verka­lýðs­hreyf­ing­una. Brugðist verði form­lega við ákvörð­un­inni í næstu viku, en VR skipar fjóra stjórn­ar­menn í stjórn sjóðs­ins.

VR, stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins, hefur kallað eftir skrif­legum skýr­ingum frá Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna um ákvörðun sjóðs­ins um að hækka breyti­lega verð­tryggða vexti sína á hús­næð­is­lánum úr 2,06 pró­sent í 2,26 pró­sent, eða um tíu pró­sent, frá og með 1. ágúst næst­kom­andi.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir að það sé mjög þungt hljóð í stjórn­ar­mönnum VR vegna máls­ins. Ákvörðun sjóðs­ins sé blaut tuska framan í verka­lýðs­hreyf­ing­una og vinni gegn mark­miðum hennar. „Við munum bregð­ast form­lega við þessu í næstu viku. Þau við­brögð munu ekki fara fram­hjá neinum.“

Stjórn VR til­nefnir helm­ing stjórn­ar­manna í Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna en sam­tök ýmissa atvinnu­rek­enda hinn helm­ing­inn. Á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili er stjórn­ar­for­mað­ur­ sjóðs­ins, Ólafur Reimar Gunn­ars­son, úr röðum þeirra sem VR til­nefn­ir.

Ragnar ræddi þær áherslur sem hann og stjórn VR muni tala fyrir í stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins, sem er einn stærsti fjár­festir á Íslandi, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í febr­úar. Þar sagði hann meðal ann­ars að þeim til­mælum yrði beint til stjórnar að haga sínum fjár­fest­ingum með þeim hætti að það verði ekki fjár­fest í fyr­ir­tækjum sem eru með kaup­rétt­ar­samn­inga eða ofur­laun eða bónusa. „Eða haga sér með þeim hætti eins til dæmis eins og Almenna leigu­fé­lag­ið, að beina við­skiptum sínum frá slíkum félög­um. Það verða skýr skila­boð sem við munum senda nýrri stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzl­un­ar­manna.[...]Það eru skila­boð sem mig langar að senda út inn í fjár­mála­kerf­ið, að menn skulu þá hugsa sig tvisvar um þegar þeir fara gegn hags­munum launa­fólks með þessum hætti, að við munum beita okkur með rót­tækri hætti heldur en áður hefur ver­ið.“

Stjórnin ákveður vexti

Kjarninn greindi frá því á mánu­dag að Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna hefði ákveðið að hækka breyti­lega vexti verð­tryggðra lána til sjóðs­fé­laga frá og með 1. ágúst næst­kom­andi úr 2,06 pró­sentum í 2,26 pró­sent.

Vextir sjóðs­ins nú eru þeir lægstu sem standa íbúða­kaup­endum á Íslandi til boða. Eftir breyt­ing­una munu bæði Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn (2,15 pró­sent) og Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn (2,18 pró­sent) bjóða sínum félögum upp á lægri breyti­leg vaxta­kjör á verð­tryggðum lán­um.

Í stað­inn fyrir að ávöxt­un­ar­krafa ákveð­ins skulda­bréfa­flokks stýri því hverjir vext­irnir eru mun stjórn sjóðs­ins ákveða þá. Frá þessu er greint í frétt á vef Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna í síð­ustu viku. Þar kom einnig fram að vextir sjóðs­ins á föstum verð­tryggðum vöxtum frá og með föstu­deg­inum 24. maí úr 3,6 pró­sentum í 3,4 pró­sent. Vextir á slíkum lánum hald­ast óbreyttir út láns­tím­ann.

Fastir verð­tryggðir vextir hafa verið umtals­vert hærri en breyti­legir vextir. Ef sjóðs­fé­lagi hjá Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna tæki til að mynda 40 ára verð­tryggð lán hjá sjóðnum upp á 30 millj­ónir króna, miðað við 3,3 pró­sent verð­bólgu­spá, í dag þá myndi við­kom­andi greiða 94,9 millj­ónir króna í heild­ar­greiðslu ef hann tæki fasta vexti með jöfnum afborg­unum. Ef við­kom­andi myndi hins vegar velja breyti­lega vexti með jöfnum afborg­unum, og þeir myndu hald­ast óbreyttir eða lækka að með­al­tali á láns­tím­anum, þá myndi við­kom­andi greiða 81,8 millj­ónir króna í heild­ar­greiðslu miðað við sömu for­sendur.

Vextir mun lægri en hjá bönkunum

Frá því að Líf­eyr­i­s­jóður­ verzlunarmanna hóf end­ur­komu sína inn á íbúða­lána­markað að alvöru haustið 2015, með því að hækka veð­hlut­fall lána, lækka vexti og lækka lán­töku­gjald, hafa vextir lána hans ákvarð­ast í sam­ræmi við breyt­ingu á ávöxt­un­ar­kröfu ákveð­ins skulda­bréfa­flokks Íbúða­lána­sjóðs (HFF150434.). Á und­an­förnum árum hafa við­skipti með þau bréf dreg­ist veru­lega saman með þeim afleið­ingum að ávöxt­un­ar­krafan hefur dreg­ist mikið sam­an.

Afleið­ing þess hefur verið sú að vextir Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna hafa lækkað mjög mikið á skömmum tíma. Haustið 2015 voru vextir á breyti­legum verð­tryggðum lánum sjóðs­ins til að mynda 3,6 pró­sent en þeir eru nú 2,06 pró­sent og hafa aldrei verið lægri. Vext­irnir í dag eru því 42,7 pró­sent lægri en árið 2015.

Stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa allir reynt að draga úr eft­ir­spurn í íbúða­lán hjá sér und­an­farin miss­eri, m.a. með því að lækka veð­hlut­fall úr 75 í 70 pró­sent. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna gerði það strax vorið 2017.

Þeir sem eiga rétt á að taka íbúða­lán hjá líf­eyr­is­sjóðum lands­ins eru þó enn í mun betri stöðu en þeir sem þurfa að taka lán hjá við­skipta­bönk­un­um. Ef íbúð­ar­kaup­anda dugar að fá 70-75 pró­sent lán þá getur hann tekið slík hjá líf­eyr­is­sjóðum sem hann hefur greitt til og fengið breyti­lega verð­tryggða vexti sem eru frá 2,96 pró­sent (Gildi) til 2,06 pró­sent (Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna) eins og staðan er í dag.

Við­skipta­bank­arnir þrír bjóða hins vegar upp á hærra veð­hlut­fall, eða 80 til 85 pró­sent af virði þeirrar eignar sem verið er að kaupa. Íslands­banki býður upp á lægstu breyti­legu verð­tryggðu vext­ina upp að 70 pró­sent af virði fast­eign­ar, sem eru 3,40 pró­sent. Ef við­kom­andi þarf að taka hærra lán þá þarf hann að bæta við sig við­bót­ar­láni á hærri vöxt­um. Þannig er málum einnig háttað hjá Lands­bank­anum og Arion banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár