Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, hefur sent inn fyrirspurn um Orku Energy málið til Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra í gegnum þingfundasvið Alþingis að sögn Aðalheiðar Ámundadóttur, starfsmanns Pírata. Fyrirspurnin til Illuga byggir á tölvupósti frá Birgittu til Aðalheiðdar frá 12. ágúst síðastliðinn en Stundin hefur séð þann tölvupóst. Þá var Alþingi í sumarfríi og ekki hægt að leggja fram fyrirspurnir. Eftir að þingið kom saman aftur láðist að senda fyrirspurnina til þingfundasviðs en það hefur nú verið gert að sögn ráðherra.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir