Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, segir Öldu Hrönn Jóhannsdóttur, yfirlögfræðing lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, hafa framið lögbrot með meðferð sinni á einkapósti sem hún fékk í hendur fyrir slysni. Með því að áframsenda einkapóst sem vinir sendu sín á milli, og hún fékk fyrir mistök, „til einhverra ráðherra og þjóðleikhúsráðs“ hafi hún gerst brotleg við 9. málsgrein 47. greinar fjarskiptalaga. Þetta fullyrðir Jón Steinar í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag, en hún ber yfirskriftina „Hnýsni í einkamál annarra“. Lögin kveða á um allt að tveggja ára refsingu við brotum sem þessum. „Jú jú, ég er að benda á að þarna er lagaákvæði sem er augljóslega brotið og hún gerði það,“ segir Jón Steinar í samtali við Stundina.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir