Flokkur

Fólk

Greinar

Endurskilgreining lífsins eftir áfallið
Viðtal

End­ur­skil­grein­ing lífs­ins eftir áfallið

Óvissan um líf Stefáns Karls Stef­áns­sonar færir honum og Stein­unni Ólínu Þor­steins­dóttur nýja heims­sýn. Tíminn er hugs­an­lega tak­mark­aður og þau ætla að nota hann vel. Þau segja frá því hvernig er að vakna til lífs­ins á skurð­borð­inu, hver til­gangur lífs­ins er, hvernig maður segir börn­unum sínum að maður sé með sjúk­dóm sem getur leitt til dauða og hvernig við­brögð fólks við veik­ind­unum eru hluti af lækn­ing­unni.
Alvarlegar athugasemdir gerðar við starfsemi Sólheima
FréttirÁstandið á Sólheimum

Alvar­legar athuga­semdir gerðar við starf­semi Sólheima

Rétt­inda­málum fatl­aðra er veru­lega ábóta­vant á Sól­heimum, ef athuga­semdir rétt­inda­gæslu­manns fatl­aðs fólks á Suð­ur­landi eiga við rök að styðj­ast. Rétt­inda­gæslu­mað­ur­inn til­kynnti vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu um málin í fyrra­haust. Lítið var gert til að bregð­ast við gagn­rýn­inni, enda vís­aði fram­kvæmda­stjóri Sólheima henni nær alfarið á bug og taldi með því mál­inu lokið.
Bjarni segir Íslendinga aldrei hafa haft það eins gott: „Ekkert efni í eitthvert rifrildi hér“
FréttirKjaramál

Bjarni segir Íslend­inga aldrei hafa haft það eins gott: „Ekkert efni í eitt­hvert rifr­ildi hér“

Bjarni Bene­dikts­son, starf­andi fjár­mála­ráð­herra, var­aði Íslend­inga við þegar hann kynnti nýtt fjár­laga­frum­varp í Kast­ljósi í gær. Hann ótt­ast kröfur fólks um kjara­bætur og segir hættu á að Íslend­ingar „kunni sér ekki hóf þegar vel árar“. Æðstu ráða­menn þjóð­ar­innar fengu nýlega mikla launa­hækkun, kenn­arar hætta vegna kjara­bar­áttu og börn í Breið­holti alast upp til var­an­legrar fátæktar.
Ætlaði aldrei að afsala  sér föðurhlutverkinu
ViðtalAð gefa barnið sitt

Ætlaði aldrei að afsala sér föð­ur­hlut­verk­inu

Hugi Ingi­bjarts­son stóð frammi fyrir þeirri spurn­ingu hvort hann ætti að fá for­ræði yfir dóttur sinni og ala hana upp sem ein­stæður faðir eða gefa hana alfarið frá sér. Hann ákvað að gefa hana í trausti þess að hjá fóst­ur­for­eldrum myndi hún eign­ast betra líf en hann gæti gefið henni. Hann var hins vegar ekki til­bú­inn til þess að afsala sér föð­ur­hlut­verk­inu og stóð í þeirri trú að hann gæti haldið umgengni við dóttur sína. Hann seg­ist hafa verið svik­inn um það, þegar hann fær aðeins að taka hana tvisvar í mán­uði, fimm tíma í senn. Nú vill hann fá hana aftur.
„Ég þekki aðeins að vera móðir í 300 daga“
ViðtalAð gefa barnið sitt

„Ég þekki aðeins að vera móðir í 300 daga“

Hugrún Sig­ur­jóns­dóttir hafði verið full­vissuð af lækni að hún væri komin á aldur þegar hún varð óvart ólétt 45 ára gömul. Hún ákvað að eign­ast barnið, en eftir erf­iða með­göngu, erf­iða fæð­ingu og stöðugan grátur í marga mán­uði, gafst hún upp og gaf barnið frá sér til fólks sem hafði lengi þráð að eign­ast barn. Hún hefur aldrei séð eftir því.
Flúðu grimmilegar árásir talibana: Fá ekki vernd á Íslandi
ViðtalBörn í leit að alþjóðlegri vernd

Flúðu grimmi­legar árásir tali­bana: Fá ekki vernd á Íslandi

Sjö manna fjöl­skyldu frá Afganistan verður vísað úr landi á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar á næstu dögum. Þeirra á meðal er stúlka sem var barin til óbóta af tali­bönum þriggja ára gömul. Fjöl­skyldan flúði ofsóknir og árásir tali­bana á síð­asta ári, en þeir réð­ust á fjöl­skyld­una þegar fjöl­skyldu­fað­ir­inn, Mir Ahmad Ahmadi, neit­aði að ganga til liðs við þá. Mir missti tennur í árásinni og fimm ára sonur hans hand­leggs­brotn­aði illa. Stúlkan er í dag lömuð öðrum megin í and­lit­inu og á erfitt með að tjá sig, en hefur tekið ótrú­legum fram­förum eftir að hún kom til Íslands. Fjöl­skyld­unni hefur verið gert að yfir­gefa eina landið þar sem þau hafa fundið til öryggis.
Týndi heilu ári þegar hugurinn þoldi ekki meir
Viðtal

Týndi heilu ári þegar hug­ur­inn þoldi ekki meir

Átta ára gömul var hún hætt að gráta og trúa á Guð. Þrett­ánda ald­ursárið er henni horfið. Það var þá sem faðir hennar lok­aði hana af niðri í kjall­ara og mis­þyrmdi í þrjá sól­ar­hringa. Árið 2005 steig Thelma Ásdís­ar­dóttir fram og sagði frá því hvernig faðir hennar gerði hana út í skipu­lögðu barna­vændi. Enn eru að birt­ast henni gamlar og áður grafnar minn­ingar, sem hún segir nú frá í fyrsta sinn.

Mest lesið undanfarið ár