Enn ein tilraun gerð til að semja um verndun úthafanna

Stjórn­völd á Íslandi, í Rúss­landi og Kína vilja að fisk­veiðar verði ekki settar inn í samn­ing þjóð­ríkja um verndun hafs­ins. Stærstur hluti úthaf­anna er alþjóð­legt haf­svæði. Innan við 2 pró­sent þess nýtur verndar.

Leið­togar þjóða heims munu hitt­ast í New York síðar í mán­uð­inum til að reyna að kom­ast að sam­komu­lagi til að draga úr ofnýt­ingu úthaf­anna. Áratugur er lið­inn síðan Sam­ein­uðu þjóð­irnar reyndu fyrst fá sér­stakan samn­ing um verndun úthaf­anna sam­þykktan en að hefur hingað til reynst árang­urs­laust.

Ef það mun takast á fund­inum sem hefst í New York 26. ágúst næð­ist sam­staða um að gera um 30 pró­sent af höfum heims­ins að vernd­ar­svæðum fyrir árið 2030. Með samn­ingnum yrði dregið úr ofveiði og öðrum skað­legum athöfnum mann­anna í sjónum.

Tveir þriðju hlutar heims­haf­anna eru í dag álitnir alþjóð­leg haf­svæði sem þýðir að öll ríki hafa rétt til veiða í þeim, að sigla um þau og vinna þar að rann­sóknum. En aðeins 1,2 pró­sent úthaf­anna njóta verndar, segir í frétt BBC um málið.

Þetta hefur orðið til þess að auka hættu á ofnýt­ingu af ýmsu tagi, m.a. ofveiði og gríð­ar­lega mik­illi umferð skipa.

Þótt mann­kynið sé löngu farið að skoða geim­inn er enn mikil vinna eftir við að kort­leggja vist­kerfi hafs­ins sem sum hver eru mjög við­kvæm en sér­stak­lega mik­il­væg öllu líf­ríki. Alþjóð­leg rann­sókn sem birt var fyrr á þessu ári þykir benda til að milli 10 og 15 pró­sent teg­unda sem lifa í haf­inu séu í útrým­ing­ar­hættu.

Alþjóð­legu nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin, IUCN, segja að sú brota­kennda stjórnun sem er á nýt­ingu alþjóð­legra haf­svæða hafi leitt til ofnýt­ingar og komið í veg fyrir að vernd­ar­mark­mið hafi náðst.

Ef leið­tog­arnir kom­ast að sam­komu­lagi gætu mörg haf­svæði orðið hluti af neti vernd­ar­svæða. Í kjöl­farið þyrfti svo mat á umhverf­is­á­hrifum áður en starf­semi af hvers kyns toga yrði þar leyfð.

Veiðar er ekki eina starf­semin sem ógnar líf­ríki hafs­ins, langt í frá. Mikil ásókn er nú orðin í námu­vinnslu af hafs­botni enda ýmsar auð­lindir á landi að ganga til þurrðar. Meðal jarð­efna sem gríð­ar­leg eft­ir­spurn er nú eftir er kóbalt. Slíkt er m.a. unnið úr jörðu í Austur-Kongó en nú vilja námu­fyr­ir­tækin vinna þau úr hafs­botni. Kóbalt er m.a. notað í marg­vís­leg raf­tæki, vind­myllur og raf­bíl­araf­hlöður svo fáein dæmi séu nefnd. Vinnsla kóbalts er meng­andi iðn­aður og ótt­ast er að hún geti haft mjög skað­leg áhrif á líf­ríki hafs­ins. Sérstök stofnun, International Seabed Aut­hority, hefur umsjón með útgáfu leyfa til námu­vinnslu á alþjóð­legum haf­svæðum. Frá því í mars í ár hefur hún gefið út 31 leyfi til rann­sóknar á hafs­botni vegna áform­aðrar námu­vinnslu.

Vilja undanþágu

Í frétt BBC um málið segir að nokkrar þjóðir, þar á meðal Rússar og Íslend­ingar, hafi farið fram á að fisk­veiðar verði und­an­þegnar skil­málum sam­komu­lags­ins um verndun úthaf­anna. Fram kemur að íslensk stjórn­völd hafi bent á mik­il­vægi fisk­veiða fyrir efna­hag lands­ins. Kín­verjar og Rússar hafa tínt til sömu rök.

Í mars var ákveðið að þjóð­ar­leið­togar myndu gera fimmtu og síð­ustu til­raun­ina til að ná sam­komu­lagi um verndun úthaf­anna. Sá fundur verður í New York líkt og fyrr segir en frestur hefur verið gef­inn út þetta ár til að kom­ast að nið­ur­stöðu.

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins segir að ef ekki tak­ist að ná sam­komu­lagi ætli hún sér að þrýsta á áfram­hald­andi til­raunir. „Grípa þarf til aðgerða til að tryggja verndun og sjálf­bæra nýt­ingu hafs­ins fyrir núver­andi og kom­andi kyn­slóðir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár