„Alger óþarfi að stjórnvöld fari á taugum og vilji koma böndum yfir Bitcoin“

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins telur það snið­ugt að nýta orku í gagna­ver og hvetur stjórn­völd til að láta fólk og fyr­ir­tæki í friði – og treysta þeim til að gera það sem þau telji best, innan skýrs lag­ara­mma.

Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Bryndís Har­alds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

„Bitcoin-bólan bólgnar nú sem aldrei fyrr. En er þetta bóla? Margir töldu inter­netið bólu en sú bóla er alla vega orðin nauð­syn­legur hluti af lífi mínu. Hvort sem Bitcoin reyn­ist bóla eða ekki er alger óþarfi að stjórn­völd fari á taugum og vilji koma böndum yfir Bitcoin eða aðrar raf­myntir og banna þær.“

Þetta sagði Bryndís Har­alds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í gær.

Telur hún að eðli­legra væri að Alþingi trygg skýran og ein­faldan lag­ara­mma utan um alla atvinnu­starf­semi.

Þing­mað­ur­inn sagði að auð­vitað ætti að fylgj­ast grannt með þróun raf­mynta. „Ef ein­hverjar holur eru í lögum okkar þegar að raf­myntum kemur þarf að bregð­ast við því. En göngum ekki fram af hræðslu, boðum og bönnum eins og það sé okkar hér að stýra öllu sem ger­ist í sam­fé­lag­inu.“

Spurði hún enn fremur hvers vegna, þegar talað er fyrir því að banna eigi námu­gröft eftir slíkum myntum, að það sé sóun á orku. „Sóunin er alla­vega ekki meiri en svo að raf­myntin Bitcoin hefur hækkað um 75 pró­sent frá ára­mótum. Sóunin er ekki meiri en svo að hinn frægi frum­kvöð­ull Elon Musk, stofn­andi Teslu, hefur keypt mynt­ina fyrir um 1,5 millj­arða doll­ara og alla­vega fimm fyr­ir­tæki á Fortune 500 list­anum hafa gert það sama,“ sagði Bryndís.

Benti hún á að sumir vildu alls ekki að orkan væri nýtt í álf­ram­leiðslu og að þá væri snið­ugt að nýta hana í gagna­ver. „Við þurfum jú öll á staf­rænum skýjum að halda. En eigum við allt í einu núna að segja: Nei, það má ekki grafa eftir raf­eyri.

Forseti. Ég segi nei. Látum fólk og fyr­ir­tæki í friði og treystum þeim til að gera það sem þau telja best, innan skýrs lag­ara­mma,“ sagði þing­mað­ur­inn að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár