Hefur séð „líkmenn í jarðarför glaðlegri“ en ráðherra Sjálfstæðisflokksins

Þing­maður Mið­flokks­ins telur mis­vísandi skila­boð hafa borist frá Sjálf­stæð­is­flokknum varð­andi sótt­varna­að­gerðir – ann­ars vegar þau sem koma með beinum hætti frá rík­is­stjórn­inni og hins vegar hvernig ráð­herrar flokks­ins tjá sig þess utan.

Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins.
Bergþór Ólason þing­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Bergþór Ólason þing­maður Mið­flokks­ins og Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra áttu orða­stað um sótt­varna­að­gerðir í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag.

Þing­mað­ur­inn spurði ráð­herr­ann meðal ann­ars hvers væri að vænta frá stærsta stjórn­ar­flokknum á næstu vikum og dögum í aflétt­ingu sótt­varna­að­gerða.

Bergþór hóf mál sitt á að segja að þau hefðu verið mis­vísandi skila­boðin sem bær­ust frá Sjálf­stæð­is­flokknum „ann­ars vegar þau sem koma með beinum hætti úr rík­is­stjórn­inni, þær ákvarð­anir sem kynntar voru síð­ast­lið­inn föstu­dag, og síðan það með hvaða hætti ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins tjá sig á tröppum Ráð­herra­bú­stað­ar­ins eða í við­tölum“.

„Við heyrum hæst­virtan fjár­mála­ráð­herra, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tala á þeim nótum að hann telji laga­for­sendur vera brostnar fyrir þeim sótt­varna­að­gerðum sem við nú erum und­ir­orpin. Hæst­virtir ráð­herrar, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir og Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, hafa talað, að ég met með skyn­sam­legum hætti, í við­tölum og utan rík­is­stjórnar, en síðan ger­ist ekki neitt. Það sem kynnt var hér síð­ast­lið­inn föstu­dag er auð­vitað ekk­ert annað en fram­leng­ing­ar­á­ætlun.“

Hann sagði að áætlun stjórn­valda væri ekki aflétt­ing­ar­á­ætlun. „Það er verið að fram­lengja þá stöðu sem er í sótt­vörnum hér á landi án þess að nokkrar for­sendur séu til. Og meira að segja með þeim hætti að for­maður stærsta stjórn­ar­flokks­ins, hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra Bjarni Bene­dikts­son, telur laga­for­sendur vera brostnar fyrir núver­andi aðgerðum.“

Spurði Bergþór hvers væri að vænta frá stærsta stjórn­ar­flokknum á næstu vikum og dögum í þessum efnum, eins og áður segir. „Við vitum að ef ein­hver situr í gæslu­varð­haldi og í ljós kemur að engar for­sendur eru til slíkrar vist­unar þá er við­kom­andi sleppt hið snarasta, innan dags­ins. En nú er sam­fé­lag­inu haldið í þess­ari stöðu og kynnt með pompi og prakt að við­halda skuli slíkum óþarfa­að­gerðum í sjö vikur. Ég hef séð lík­menn í jarð­ar­för glað­legri en ráð­herrana sem sátu undir kynn­ingu for­sæt­is­ráð­herra síð­ast­lið­inn föstu­dag.“

Telur skoðanaskiptin heilbrigð

Þórdís Kolbrún svar­aði og sagð­ist gleðj­ast yfir því að fá tæki­færi til að fara yfir þetta mál þótt hún, eins og örugg­lega flestir aðrir, væri orðin mjög leið á því að tala um það.

„Ég gleðst þess vegna líka yfir þeim teiknum, gögnum, ekki bara vís­bend­ingum heldur tölum, stað­reyndum og orðum sem streyma um að við séum á leið­inni út úr COVID-far­aldr­inum eins og við höfum þekkt hann og að ómíkron-afbrigðið, sem nán­ast allir eru að smit­ast af í dag, sé í raun og veru ann­ars eðlis heldur en það sem áður hefur verið. Ég hef sagt það margoft og ítreka það hér að mér finnst þau skoð­ana­skipti sem birt­ast við rík­is­stjórn­ar­borðið, inni á fundum, úti á tröppum, í við­tölum og annað ein­fald­lega heil­brigð. Mér finnst það styrk­leika­merki frekar en veik­leika­merki og mér finnst ágætt að það sé eitt­hvert pláss og svig­rúm fyrir slíkar spurn­ingar og fyrir slíkt sam­tal.

Mér finnst okkur í rík­is­stjórn­inni líka hafa gengið ágæt­lega að geta tek­ist á og geta átt sam­tal og stundum verið ósam­mála um eitt stærsta verk­efni sem rík­is­stjórn og sam­fé­lag hefur þurft að takast á við. Ég hef sjálf reynt að tala af yfir­vegun um þessi mál. Ég er ósam­mála þing­mann­inum um að þetta sé fram­leng­ing­ar­á­ætlun. Þetta er hrein og klár aflétt­ing­ar­á­ætlun sem ég von­ast þó til að hægt verði að taka í stærri skrefum ef við höldum áfram að sjá þá þróun sem blasir við okkur nú. Það skiptir líka máli að við sýnum því skiln­ing að við erum á mis­mun­andi stað gagn­vart þessu. Við erum líka sem fólk í þessu landi missmeyk gagn­vart þessum sjúk­dómi og þessu verk­efni. Að því leyt­inu til reyni ég að sýna því skiln­ing að við séum missmeyk og við þurfum mis­langan tíma til þess að vera viss í þeirri trú að þetta sé allt að verða búið eins og við höfum þekkt það. Og ég trúi því svo sann­ar­lega,“ sagði hún.

Bergþór sagði í fram­hald­inu að honum þætti svarið „heldur lint“ vegna þess að það væru ekki nema nokkrir dagar síðan Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefði sagt að með orðum sínum og fram­göngu væru ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins að grafa undan mark­miðum sótt­varna­að­gerð­anna.

Spurði hann hvernig þau orð ráð­herr­ans slægju Þórdísi Kolbrúnu.

Bindur miklar vonir við að hægt verði að taka stærri skref

Þórdís Kolbrún svar­aði í annað sinn og sagði að þetta verk­efni sner­ist ekki um þá flokka sem standa saman að rík­is­stjórn eða ein­hverja ákveðna leik­endur þar inni.

„Þetta verk­efni snýst um að ná jafn­vægi í því að tryggja það að sótt­varnir séu nægar til að vernda líf og heilsu fólks og að við séum með þær efna­hags­að­gerðir sem þarf til að mæta því. En ég ítreka það hér sem ég hef áður sagt, mér finnst við vera komin á þann stað núna að ef við værum að taka við ómíkron-afbrigði og þeirri hættu sem í því felst þá sé ég ekki fyrir mér að við værum að ræða þær sam­fé­lags­legu tak­mark­anir sem við erum með í dag.

Í mínum huga er það alltaf kjarni máls og við eigum að miða okkur og máta okkur við það. Þess vegna fagna ég því að við séum að taka þau skref sem við erum að taka og ég bind mjög miklar vonir við að hægt verði að taka stærri skref innan þess tíma sem lagt var upp með, enda er ekki hægt að festa aflétt­ingar við dag­setn­ingar vegna þess að við þurfum á hverjum tíma að vera viss um að við séum innan ramma lag­anna þegar kemur að heim­ild okkar til að beita slíkum tak­mörk­unum,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár