Bandaríkin efla heri í Evrópu - Varðstaða gegn Rússum

Bandaríkjaher hefur ákveðið að efla heri í Austur-Evrópu með því að leggja þeim til skrið­dreka, vopn og mannskap, til að efla varðstöðu við Rússland. Ashton Carter, varnarmála­ráðherra Banda­ríkjanna, tilkynnti um þetta í dag á blaðamanna­fundi, en aðstoðin mun einkum koma til í Eystrasalts­ríkjunum Eistlandi, Lettlandi og Litháen en einnig munu Pólland, Búlgaría og Rúmenía fá aðstoð. Þetta kemur fram á vef breska ríkis­útvarpsins BBC.

Banda­ríkin gera þetta í samvinnu við Atlantshafs­bandalagið NATO, og er ákvörðunin byggð á mati um að Rússar, með Vladímir Pútín forseta í broddi fylkingar, séu að sækja fram inn í Evrópu, einkum í Úkraínu, og ógni öryggi Evrópu­þjóða með framgöngu sinni.

Carter sagði í opinberri heimsókn til Tallin, höfuð­borgar Eistlands, að herstuðningur Banda­ríkjanna yrði mikil­vægur til að efla öryggi í heiminum öllum, þar með talið Banda­ríkjunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár