Gjörgæsluálagið vegna COVID-19 með því mesta á Norðurlöndunum

Ísland hefur færri gjör­gæslu­rými á höfða­tölu en öll hin Norð­ur­löndin. Vegna þess var mun hærra hlut­fall þeirra und­ir­lagt af COVID-19 sjúk­lingum hér­lendis þegar far­ald­ur­inn var í hæstu hæðum heldur en í Noregi, Danmörku og Finn­landi.

Frá gjörgæsludeildinni á Landspítalanum.
Frá gjör­gæslu­deild­inni á Land­spít­al­anum. Mynd: Þorkell Þorkelsson

Alls voru rúm 70 pró­sent af reglu­legum gjör­gæslu­rýmum hér­lendis und­ir­lögð af COVID-19 sjúk­lingum á hápunkti far­ald­urs­ins, en sam­bæri­legt hlut­fall var helm­ingi minna í Noregi, Danmörku og Finn­landi. Fjöldi gjör­gæslu­rýma á hvern íbúa á Íslandi er einnig minni en á öllum hinum Norð­ur­lönd­unum, en Land­spít­al­inn segir að skortur á sér­mennt­uðu starfs­fólki standi helst í vegi fyrir að þeim sé fjölgað.

Fæst á Norðurlöndum

Í sam­tali við Kjarnann segir Anna Sigrún Bald­urs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri á skrif­stofu for­stjóra Land­spít­al­ans, að fjöldi gjör­gæslu­rýma sé sveigj­an­legur eftir atvikum. Venju­lega séu rýmin 14 tals­ins, en hægt væri að fjölga þeim tíma­bundið þegar mikið álag er á spít­al­anum. Á sjúkra­hús­inu á Akureyri eru svo alla­jafna þrjú rými, hægt væri að fjölga upp í fimm þegar mikið liggur á.

Samtals eru því reglu­leg gjör­gæslu­rými hér­lendis 17 tals­ins, eða um 4,5 á hverja 100 þús­und íbúa. Þetta er lægra hlut­fall en á öllum hinum Norð­ur­lönd­unum, líkt og sjá má á mynd hér að neðan. Í Finn­landi og Noregi eru í kringum fimm gjör­gæslu­rými á hverja 100 þús­und íbúa, en í Danmörku og Svíþjóð eru þau sjö tals­ins, sem er helm­ingi meira en fjöld­inn hér­lendis.

Svipað álag og í Svíþjóð

Vegna lít­ils fjölda gjör­gæslu­rýma hefur mikið álag verið á heil­brigð­is­kerfið hér­lendis í heims­far­aldr­inum, þrátt fyrir að fjöldi smita hafi verið til­tölu­lega lít­ill. Alls voru 12 gjör­gæslu­rými und­ir­lögð af COVID-19 sjúk­lingum í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins, en það sam­svarar 71 pró­sent af reglu­legum gjör­gæslu­rýmum.

Þetta er mun hærra álag en mæld­ist á hápunkti far­ald­urs­ins í Noregi, Danmörku og Finn­landi, en þar var hlut­fall COVID-19 sjúk­linga af reglu­legum gjör­gæslu­rýmum aldrei hærra en 35 pró­sent. Álagið var þó sam­bæri­legt í Svíþjóð, þar sem fjöldi gjör­gæslu­rýma vegna COVID-19 var á tíma­punkti 77 pró­sent af heild­ar­fjölda reglu­legra gjör­gæslu­rýma í land­inu.

Hjúkrunarfræðingar eins og úraníum

Samkvæmt Önnu Sigrúnu þarf fjögur og hálft starfsí­gildi til að manna eitt gjör­gæslu­rými. Enn fremur þurfa hjúkr­un­ar­fræð­ingar að hafa sér­menntun til að geta unnið á deild­inni, en slík menntun tekur að minnsta kosti tvö ár.

Hún segir að hægt sé að fjölga gjör­gæslu­rýmum tíma­bundið með því að fá mann­skap frá skurð­stofum Land­spít­ala og svæf­ing­ar­deildum, en slík til­færsla leiði hins vegar til að skurð­að­gerðum sé frestað. Land­spít­al­inn hafi svo fengið aðstoð frá hjúkr­un­ar­fæð­ingum frá Klíník­inni í Ármúla sem hjálp­aði til, en einnig náði spít­al­inn að fá til sín fyrrum starfs­menn með við­eig­andi hæfni, tíma­bundið.

Þó bætir hún við að Land­spít­al­inn stefni að því að fjölga reglu­legum gjör­gæslu­rýmum sínum úr 14 í 15 á næst­unni, auk þess sem fjórum hágæslu­rýmum, þar sem sjúk­lingar þurfa ekki jafn­mikla ummönnun, verður bætt við á næsta ári.

Anna Sigrún segir að flösku­háls­inn í þessu öllu saman sé lít­ill fjöldi sér­mennt­aðra hjúkr­un­ar­fræð­inga. „Hjúkr­un­ar­fræð­ingar eru eins og úran­íum, bara mjög tak­mörkuð auð­lind,“ bætir hún við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár