Umdeild gjaldskylda við Reykjanesvita: „Þetta er bara slóði“

Samkvæmt lóða­leigu­samn­ingi hefur fyr­ir­tækið Reykja­nes Aurora heim­ild til að inn­heimta bíla­stæða­gjöld í 500 metra rad­íus við Reykja­nes­vita þrátt fyrir að leigja aðeins hluta af því landi. Eig­and­inn segir að reynt hafi verið á gjald­heimt­una fyrir dómi og hún úrskurðuð honum í vil. „Þetta er búið að vera vand­ræða­mál,“ segir Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar.

Ekki bílastæði
Ekki bíla­stæði Áminning um gjald­skyldu var stað­sett ofan á hraun­hellu við lista­verkið Geir­fugl­inn á Reykja­nesi, and­stætt nið­ur­stöðu dóm­stóla. Skiltið var fært af staðnum eftir að Heim­ildin fór að grennsl­ast fyrir um stað­setn­ingu þess. Mynd: Golli

etta er ekki í nógu góðu lagi, ég skal alveg við­ur­kenna það,“ segir Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar, við Heim­ild­ina um bíla­stæða­mál við Reykja­nes­vita. Þar hefur sveit­ar­fé­lagið leigt land til að tryggja aðgengi ferða­fólks að nátt­úr­unni, en einka­að­ilar hafa inn­heimt gjald af þeim sem fara þangað. Svæðið fellur innan Reykja­nes jarð­vangs, sem er við­ur­kenndur af Menn­ing­ar­mála­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNESCO) og hefur ríkið greitt tugi millj­óna til upp­bygg­ingar á stígum og þjón­ustu­húsi.

Gjald­skyldu var fyrst komið á á svæð­inu árið 2021. Hlé var gert á henni í þónokkurn tíma og hófst hún aftur í fyrra. Í dag kostar þús­und krónur fyrir fólks­bíl að keyra inn á svæðið og dvelja þar í meira en korter, jafn­vel þótt ein­göngu sé dvalið á landi sem leigt er af hinu opin­bera í þágu aðgengis almenn­ings og ferða­fólks. Þá segir á vef­síðu Parka að fólk eigi yfir höfði sér 1.960 króna van­greiðslu­gjald sé bíla­stæða­gjaldið ekki greitt á innan við sól­ar­hring. 

Má rukka bílastæðagjöld í 500 metra radíus um vitann

Fyr­ir­tækið Reykja­nes Aurora, sem er í eigu Rúnars Más Sig­ur­vins­sonar, hefur rúm­lega þriggja hekt­ara land nálægt vit­anum á leigu frá land­eig­endum og renna bíla­stæða­gjöldin til þess. „Á þessu svæði hefur eng­inn verið rukk­aður um van­greiðslu­gjöld,“ segir hann og bendir á að á svæð­inu renni bíla­stæða­gjöldin til upp­bygg­ingar á þjón­ustu. Á síð­asta ári opn­aði gesta­stofa við vit­ann, sem er rekin af Bláa lón­inu sem tekur meiri­hluta tekn­anna.

„Þetta eru ekki ein­hver mal­ar­stæði úti í haga sem veita enga þjón­ustu þar sem verið er að rukka allt og alla og leggja á ein­hver óhóf­leg van­greiðslu­gjöld. Þetta er mjög skýrt og rukkað eftir þeim samn­ingum sem eru fyr­ir­liggj­andi og þeirri þjón­ustu sem er verið að veita.“

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ADA
    Anna Dóra Antonsdóttir skrifaði
    Mér varð að orði: hver á brimið? Ég fór upp að vitanum eins og áður til að horfa á sjónarspil hafsins - en nei gjaldskylda. Ég sneri frá.
    0
  • MSB
    Margrét S. Björnsdóttir skrifaði
    Þvílíkt rugl-
    5
    • Margrét Sólveig Ólafsdóttir skrifaði
      Já græðgin er svo mikil, menn búa til holótt malarstæði og græða milljónir af innlendum og erlendum ferðamönnum, sem stoppa þarna.
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár