Lán Lífeyrissjóðs verzlunarmanna til sjóðsfélaga drógust saman í fyrra

Mikill við­snún­ingur varð á því hvers konar lán sjóðs­fé­lagar Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna sótt­ust í að taka hjá sjóðnum á síð­asta ári. Þá voru breyti­leg verð­tryggð lán 42 pró­sent allra tek­inna lána, en voru 18 pró­sent árið áður.

Sjóðsfélögum bjóðast ýmist verðtryggð eða óverðtryggð lán sem geta verið á breytilegum eða föstum vöxtum.
Sjóðs­fé­lögum bjóð­ast ýmist verð­tryggð eða óverð­tryggð lán sem geta verið á breyti­legum eða föstum vöxtum. Mynd: Pexels

Ný lán Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna til sjóðs­fé­laga sinna dróg­ust saman um 7,1 millj­arða króna á síð­asta ári. Á árinu 2017 lánað sjóð­ur­inn sjóðs­fé­lögum sínum alls 33,5 millj­arða króna í nýjar lán­veit­ingar en í fyrra nam heild­ar­upp­hæð slíkra lán­veit­inga 26,4 millj­örðum króna.

Þetta kemur fram í upp­lýs­ingum sem Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna hefur veitt Kjarn­anum.

Líklegt er að sam­drátt­ur­inn skýrist að hluta af þeirri ákvörðun sjóðs­ins að lækka veð­hlut­fall lána sinna úr 75 í 70 pró­sent vorið 2017. Á sama tíma breytti sjóð­ur­inn útlána­reglum sínum þannig að ekki var lengur miðað við mats­verð fast­eignar við útreikn­ing veð­láns, heldur fast­eigna­mat, nema þegar um lán­veit­ingu í tengslum við fast­eigna­við­skipta. Þetta þýddi að ekki var lengur hægt að end­ur­fjár­magna lán hjá sjóðnum miðað við mark­aðsvirði heldur ein­ungis miðað við fast­eigna­mat, sem er oft­ast nær umtals­vert lægra, að minnsta kosti á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Með þessu var sjóð­ur­inn að stíga á brems­una og að reyna að hægja á útlána­veit­ingum sínum, en útlán sjóðs­ins hafa verið á meðal þeirra hag­stæð­ustu sem í boði eru fyrir þá sem upp­fylla skil­yrði Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna fyrir lán­töku.

Breyting á eftirspurn eftir lánaflokkum

Í tölum frá Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna kemur einnig fram að umtals­verð breyt­ing hefur orðið á þeim lána­flokkum sem við­skipta­vinir sjóðs­ins eru að velja sér.

Árið 2017 voru til að mynda verð­tryggð lán með föstum vöxtum vin­sæl­asti kost­ur­inn, en 44 pró­sent allra nýrra veittra lána á því ári voru þess eðlis. Á sama tíma voru óverð­tryggð lán 38 pró­sent og verð­tryggð lán á breyti­legum vöxtum ein­ungis 18 pró­sent.

Í fyrra varð algjör við­snún­ingur á þessu. Þá voru verð­tryggð lán á breyti­legum vöxtum lang­vin­sæl­asti lána­flokk­ur­inn, en 42 pró­sent allra nýrra lána Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna á árinu 2018 voru slík lán. Lán á föstum verð­tryggðum vöxtum dróg­ust mjög saman og voru ein­ungis 33 pró­sent nýrra veittra lána. Óverð­tryggðu lánin nán­ast helm­ing­uð­ust í krónum talið og voru 25 pró­sent veittra lána.

Ástæðan fyrir þessu er meðal ann­ars sú að breyti­legir verð­tryggðir vextir sjóðs­ins hafa lækkað skarpt und­an­farin miss­eri á sama tíma og verð­bólga hefur haldið lág, að minnsta kosti í íslensku til­liti, yfir margra ára tíma­bil.

Hækka vexti á breytilegum verðtryggðum lánum

Kjarninn greindi frá því á mánu­dag­inn 27. maí að Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna hefði ákveðið að hækka breyti­lega vexti verð­tryggðra lána til sjóðs­fé­laga frá og með 1. ágúst næst­kom­andi úr 2,06 pró­sentum í 2,26 pró­sent.

Vextir sjóðs­ins nú eru þeir lægstu sem standa íbúða­kaup­endum á Íslandi til boða. Eftir breyt­ing­una munu bæði Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn (2,15 pró­sent) og Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn (2,18 pró­sent) bjóða sínum félögum upp á lægri breyti­leg vaxta­kjör á verð­tryggðum lán­um.

Í stað­inn fyrir að ávöxt­un­ar­krafa ákveð­ins skulda­bréfa­flokks stýri því hverjir vext­irnir eru mun stjórn sjóðs­ins ákveða þá. Frá þessu er greint í frétt á vef Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna í síð­ustu viku. Þar kom einnig fram að vextir sjóðs­ins á föstum verð­tryggðum vöxtum frá og með föstu­deg­inum 24. maí úr 3,6 pró­sentum í 3,4 pró­sent. Vextir á slíkum lánum hald­ast óbreyttir út láns­tím­ann.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, hefur sagt að ákvörðun líf­eyr­is­sjóðs­ins um að hækka vext­ina sé blaut tuska framan í verka­lýðs­hreyf­ing­una. Hann hefur þegar kallað eftir skrif­legum skýr­ingum vegna máls­ins og segir von á form­legum við­brögðum í þess­ari viku. „Þau við­brögð munu ekki fara fram­hjá neinum,“ segir Ragnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár