Telja að ríkisstjórnin þurfi að móta stefnu um fæðuöryggi á Íslandi

Þingmenn Mið­flokks­ins leggja til að rík­is­stjórnin skipi starfs­hóp til að móta stefnu um fæðu­ör­yggi á Íslandi.

Níu þing­menn og vara­þing­maður hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um fæðu­ör­yggi á Íslandi. Ef hún yrði sam­þykkt þá væri rík­is­stjórn­inni falið að skipa starfs­hóp til að móta stefnu um fæðu­ör­yggi á Íslandi. Í starfs­hópnum ættu sæti full­trúar Bænda­sam­taka Íslands, Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, Neyt­enda­sam­tak­anna og Samtaka versl­unar og þjón­ustu. Starfs­hóp­ur­inn bæri að skila nið­ur­stöðum sínum eigi síðar en 1. des­em­ber næst­kom­andi.

Fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar er Þor­grímur Sig­munds­son, vara­þing­maður Miðl­flokks­ins, og með honum eru átta aðrir þing­menn Mið­flokks­ins.

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni kemur fram að mik­il­vægt sé, nú sem áður, að tryggja fæðu­ör­yggi í land­inu. Rík­is­stjórnin þurfi að móta stefnu um fæðu­ör­yggi á Íslandi ef til þess kæmi að landið lok­að­ist fyrir vöru­flutn­ingum. Innviðir verði að geta stað­ist neyð­ar­á­stand hvenær sem er, til að mynda vegna eld­goss eða heims­far­ald­urs. „Hið mikla óvissu­á­stand sem nú er uppi sýnir hve nauð­syn­legt er að hafa áætlun á tak­teinum til að tryggja fæðu­ör­yggi lands­manna,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Umræðan ekki ný af nálinni

Þá kemur fram að umræða um fæðu­ör­yggi sé ekki ný af nál­inni. Árið 1996 hafi Matvæla- og land­bún­að­ar­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna staðið að ríkja­þingi um fæðu­ör­yggi. Þar hafi verið sam­þykkt svo­nefnd Róm­ar­yf­ir­lýs­ing þar sem segir að fæðu­ör­yggi sé tryggt þegar allir hafa raun­veru­legan og efna­hags­legan aðgang hvenær sem er að heil­næmum og nær­ing­ar­ríkum mat í nægi­legu magni sem gerir þeim kleift að lifa virku og heilsu­sam­legu lífi. Til að tryggja fæðu­ör­yggi þurfi hver þjóð að gera áætlun eftir efnum og ástæðum til að ná mark­miðum sínum um fæðu­ör­yggi, og vinna um leið með öðrum þjóðum nær og fjær við að skipu­leggja sam­eig­in­legar aðgerðir til að leysa úr við­fangs­efnum sem ógna fæðu­ör­yggi.

„Hér á landi hefur lengi verið kallað eftir stefnu um fæðu­ör­yggi þjóð­ar­innar. Á bún­að­ar­þingi árið 2009 var sam­þykkt ályktun um að brýnt væri að fæðu­ör­yggi þjóð­ar­innar yrði tryggt. Í athuga­semdum með álykt­un­inni var lögð áhersla á að gera heild­stæða áætlun um hvernig það mætti gera, því að ekki væri alltaf hægt að treysta á að unnt yrði að flytja inn mat­væli eða aðföng til mat­væla­fram­leiðslu,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Í skýrslu nefndar um land­notkun frá árinu 2010 til sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra kom fram að það væri umhugs­un­ar­efni fyrir eyþjóð á borð við Íslend­inga hvernig tryggja mætti stöð­ug­leika fæðu­fram­boðs fyrir þjóð­ina til lang­frama, enda yrðu allir aðdrættir erf­ið­leikum háðir við neyð­ar­að­stæður sökum fjar­lægðar frá mörk­uðum og birgjum, að því er fram kemur í grein­ar­gerð þing­mann­anna. Nefndin hafi talið rétt að stjórn­völd hrintu af stað stefnu­mótun um hvernig fæðu­ör­yggi þjóð­ar­innar yrði tryggt til fram­tíðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár