Bjarni: Efnahagsstefna Viðreisnar bara tómt blað

Þing­maður Við­reisnar segir að ný og end­ur­bætt fjár­mála­stefna rík­is­stjórn­ar­innar sé ekki skýr varð­andi áætl­anir hennar. Hann spyr hvort skref rík­is­stjórn­ar­innar séu hrein­lega ekki of lítil. Fjár­mála­ráð­herra gefur lítið fyrir þessa gagn­rýni.

Bjarni Benediktsson og Jón Steindór.
Bjarni Bene­dikts­son og Jón Steindór. Mynd: Samsett mynd

Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar, og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, tók­ust á í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag.

Þing­mað­ur­inn spurði ráð­herra meðal ann­ars hvort skref rík­is­stjórn­ar­innar í aðgerðum í efna­hags­málum væru ekki ein­fald­lega of lítil, taktur þeirra of hægur. Bjarni svar­aði og sagð­ist ekki heyra Jón Steindór koma með „eitt ein­asta mál hér upp í ræðu­stól. Það er ekki frekar en að maður gat fundið eitt ein­asta mál í nýrri efna­hags­stefnu Við­reisnar. Það er bara ekki eitt ein­asta mál til­tekið – það er bara tómt blað.“

Jón Steindór sagði að á þessu ári hefði Alþingi sam­þykkt breyt­ingu á fjár­mála­stefnu tvisvar sinnum. Breyt­ingin sem sam­þykkt var í gær gæfi til kynna að rík­is­stjórnin ætl­aði að dreifa við­brögðum sínum jafnt til næstu þriggja ára.

Spyr hvers vegna verið sé að draga aðgerðir á langinn

„Horfur í efna­hags­málum eru slæmar og flestir spá­að­ilar sam­mála um að við erum að horfa fram á erf­iðan vetur þar sem atvinnu­leysi muni aukast. Hag­fræð­ingar eru sam­mála um að aðgerðir til að mæta sam­drætt­inum verði að koma fram núna.

Að dreifa þeim fram á næstu ár dregur ekki bara úr áhrifum þeirra núna heldur eykur líkur á verð­bólgu þegar atvinnu­lífið tekur við sér aftur,“ sagði Jón Steindór.

Fyr­ir­tækin þyrftu hrein­lega súr­efni á að halda til að við­halda ráðn­inga­sam­böndum sínum við laun­þega. Fyr­ir­tækin og sveit­ar­fé­lögin þyrftu enn fremur mögu­leika á hvata til þess að ráða til sín fólk eða við­halda virkni fólks­ins.

„Ný og end­ur­bætt fjár­mála­stefna rík­is­stjórn­ar­innar er ekki skýr um planið. Allt sem er hvetj­andi fyrir störf er af hinu góða. Það er ekki bara það mann­lega í stöð­unni heldur ábyrgt efna­hags­lega. Það þarf að auð­velda fólki að skapa sér tæki­færi og tekjur, lækkar álögur á vinnu­veit­endur og skapa fyr­ir­tækjum hvata til þess að ráða fólk.

Ef rík­is­stjórnin er að veðja á að áfallið sé tíma­bundið eins og fjár­mála­ráð­herra segir sjálfur hvers vegna þá að draga aðgerðir á lang­inn? Hvers vegna ekki að bregð­ast hraðar við? Hvers vegna lagði ráð­herra fram fjár­mála­stefnu sem var ekki fram­þyngri en raun ber vitni?“ spurði hann.

„Eru skref rík­is­stjórn­ar­innar ekki ein­fald­lega of lítil, taktur þeirra of hægur?“

Allt sem ríkisstjórnin hefur kynnt til sögunnar á þessu ári gengið mjög vel

Bjarni svar­aði og benti á að ein­ungis hefði verðir búið að end­ur­skoða fjár­mála­stefn­una einu sinni á þessu ári en tvisvar á kjör­tíma­bil­inu. „En í þess­ari stefnu erum við að draga upp breiðu lín­urnar. Við erum að fjalla um heild­ar­af­kom­una, við erum að fjalla um skulda­þró­un­ina og við erum að segja að hvers vegna þörf sé á end­ur­skoðun stefn­unnar. Hvað hafi breyst í horfum hér inn­an­lands varð­andi hag­vöxt, atvinnu­sköpun og svo fram­vegis. En við erum ekki að takast á við þær spurn­ingar sem hátt­virtur þing­maður ber hér fram og snúa að því hvernig við getum nákvæm­lega örvað, hvaða lausnir við getum komið með að borð­inu. Það höfum við verið að gera í öðrum þing­málum hér fyrr á árinu og munum næst taka sér­stak­lega fyrir í fjár­mála­á­ætl­un­inni og í fjár­lög­unum.“

Hann sagði að það sem rík­is­stjórnin hefur kynnt til sög­unnar á þessu ári hefði gengið mjög vel. „Hluta­bóta­leiðin hefur verið hér á þessum þing­dögum til umræðu og fram­leng­ing hennar og við sjáum að það er úrræði sem hefur gagn­ast mjög vel. En það er fjöl­margt annað sem sjaldnar er rætt um sem hefur einnig skipt máli: Frestun á gjald­dögum skilur eftir fjár­muni hjá fyr­ir­tækj­unum sem þau geti betur ein­beitt sér að því að fást við aðstæður. Breyt­ingar á skatta­reglum – þannig að fyr­ir­tæki sem áttu eða höfðu vænt­ingar um að þurfa að greiða til rík­is­ins skatt á þessu ári vegna hagn­aðar á árinu 2019 – leiða til þess að þeir pen­ingar verða eftir inn í fyr­ir­tækj­unum og geta gagn­ast í rekstr­inum.

Fjár­fest­inga­á­tak rík­is­stjórn­ar­innar er sömu­leiðis að koma að gagni. Það kemur ofan á annað átak sem við höfum sér­stak­lega lagt upp með í sam­göngu­málum og kemur inn á fjöl­breytt svið mann­lífs­ins á Íslandi, allt frá sam­göngum yfir í grunn­rann­sóknir – ýmis­legt sem snertir sam­keppn­is­sjóð­ina og margt fleira. Hér er í raun og veru spurt: Af hverju gerum við ekki meira hraðar?“

Bjarni spurði á móti: „Hvað er það sem hátt­virtur þing­maður er að kalla eftir að gert verði sér­stak­lega? Sumir tala um að hið opin­bera eigi að stór­auka enn fremur fjár­fest­ingu sína, það gæti komið til álita að bæta eitt­hvað í, en ég held að við ættum að beina sjónum okkur að hinu raun­veru­lega vanda­máli sem er fall í fjár­fest­ingu einka­geirans.“

Ríkisstjórnin farin að undirbúa sig fyrir næstu kosningar?

Jón Steindór kom aftur í pontu og sagði: „Ósam­hverf og óskýr stefna. Hætta er á laus­ung í stjórn opin­berra fjár­mála með nýrri fjár­mála­stefnu ef hag­vöxtur verður meiri en búist var við. Þetta eru ekki mín orð heldur fjár­mála­ráðs. Það sem við erum að tala um er ein­fald­lega það að það þarf að sjá til þess að það sé hægt að halda uppi umsvifum í sam­fé­lag­inu þegar mest þarf á því að halda og það er á næstu örfáum mán­uðum. Ef að veð­mál rík­is­stjórn­ar­innar og spá­að­ila er rétt um það að þetta verði stutt og snarpt. Það læð­ist hins vegar að manni sá grunur að það gæti verið að rík­is­stjórnin sé klók og hún sé þegar farin að und­ir­búa sig fyrir næstu kosn­ingar og ætli þá að eiga í vas­anum mál til þess að fjár­magna kosn­inga­lof­orð sem verða sett fram á næsta vetri.“

Orð sem hafa ekkert innihald

Bjarni svar­aði og sagði að honum fynd­ist Jón Steindór hræra saman í eina skál mjög ólíkum hlutum. „Annars vegar því hvernig við beitum lögum um opin­ber fjár­mál til þess að veita aðhald og auka aga við stjórn opin­berra fjár­mála – sem er það sem að fjár­mála­ráð var að tjá sig um og lesið var upp hér í ræðu­stól – og hins vegar því ein­stöku aðgerðir sem það eru. Við erum ekki beint að fjalla um þær í fjár­mála­stefn­unni, þess­ari end­ur­gerðu. Eða hvaða ein­stöku aðgerðir það eru.“

Hann sagð­ist ekki heyra Jón Steindór koma með „eitt ein­asta mál hér upp í ræðu­stól. Það er ekki frekar en að maður gat fundið eitt ein­asta mál í nýrri efna­hags­stefnu Við­reisnar. Það er bara ekki eitt ein­asta mál til­tekið – það er bara tómt blað. Það er bara fyr­ir­sögnin að þetta sé efna­hags­stefnan og að það þurfi að gera eitt­hvað en það bara er ekk­ert inni­hald. Það er ekk­ert inni­hald.“

Þingmenn létu í sér heyra í þing­sal við þessi orð og má vænta að það hafi verið þing­menn Við­reisnar sem mót­mæltu þessum orðum.

Bjarni hélt áfram: „Við köllum eftir því þegar menn koma og segja að það þurfi að fara ein­hverja aðra leið að menn lýsi þá upp um þá leið og leggi á borðið ein­hverjar raun­veru­legar til­lögur. Ein­hverjar raun­veru­legar til­lögur sem val­kost en standi ekki hér og gagn­rýni það sem er verið að gera með ein­hverjum almennum orðum sem hafa nákvæm­lega ekk­ert inni­hald.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár