Innan við helmingur ungra Bandaríkjamanna er mjög stoltur af þjóðerni sínu

Einungis 43 prósent Bandaríkja­manna undir þrítugu eru „mjög stolt“ af þjóðerni sínu, samkvæmt nýrri Gallup könnun. Þá eru aðeins 53 prósent aðspurðra í öllum aldurs­flokkum mjög stolt af því að vera Bandaríkja­menn samkvæmt könnuninni. Það er lægsta hlutfall „mjög stoltra“ Bandaríkja­manna frá því að Gallup hleypti slíkri könnun af stokkunum, en það var árið 2001 í lok síðara kjör­tímabils Bill Clinton fyrr­verandi Bandaríkja­forseta. Frétta­miðillinn Quartz greinir frá málinu.

Eftir hryðjuverka­árásirnar á tvíbura­turnanna í New York þann 11. september árið 2009, í tíð George W. Bush þáverandi forseta Banda­ríkjanna, fór þjóðarsolt landa hans í hæstu hæðir eftir að Bandaríkjaher réðst inn í Írak. Um það leyti, eða árið 2003, sögðu 70 prósent aðspurðra að þau væru mjög stolt af því að vera Bandaríkja­menn. Frá því að Barack Obama settist á stól Bandaríkja­forseta hefur hlutfall „mjög stoltra“ Bandaríkja­manna verið tæplega 60 prósent og farið minnkandi.

Mjög stoltir ekki mjög stoltir lengur

Minnkandi hlutfall „mjög stoltra“ Bandaríkja­manna skýrist einkum af því eldri kynslóðin, ekki síst frá Suður­ríkjum Banda­ríkjanna, og Repúblikanar eru líklegastir til að segjast vera mjög stoltir af þjóðerni sínu. Þessi hópur hefur nú búið við forseta sem hefur ekki sömu pólitísku skoðanir og hann.


Þá er talið að frjáls­lyndir, og ekki síst ungir kjósendur, séu mjög uggandi vegna ítrekaðra atvika þar sem laganna verðir hafa myrt þeldökka á síðustu árum. Sá hópur veltir vöngum yfir því hversu langt samfélagið sé komið í barátt­unni gegn kynþátta­mismunun, þrátt fyrir að hafa þeldökkan forseta í Hvíta húsinu.

Flöktandi stærð

Að því sögðu, skal geta þess að umrædd Gallup skoðana­könnun var framkvæmd í byrjun júní, eða skömmu eftir ákvarðanir Hæstaréttar Banda­ríkjanna um að lögleiða hjónabönd samkyn­hneigðra og standa vörð um heilbrigðis­áætlun Barack Obama, hina svokölluðu Obamacare. Vel má vera að tíðindin kunni að hafa ýtt undir þjóðernis­stolt Bandaríkja­manna tíma­bundið. Þá var skoðana­könnunin til að mynda framkvæmd fyrir voða­verkin í Charlestone þar sem níu svartir kirkju­gestir voru myrtir með köldu blóði.


Gallup bendir á að þjóðernis­stolt sé ekki ráðandi persónu­einkenni, heldur flökti til og frá með hliðsjón af kringum­stæðum hverju sinni. Það fari jafnan upp á við á erfiðum tímum, eins og eftir hryðju­verkin 9. september árið 2001, og í aðdrag­anda stríðanna í Afganistan og Írak.


Af þeim 53 prósentum aðspurðra í könnun Gallup, sem sögðust mjög stolt af þjóðerni sínu, eru 64 prósent þeirra eldri borgarar og 61 prósent eru frá Suður­ríkjum Banda­ríkjanna. Þá er hlutfall „mjög stoltra“ Bandaríkja­manna lægst í vestur­ríkjum Banda­ríkjanna, eða 46 prósent.


Þá eru 47 prósent Demókrata mjög stolt af þjóðerni sínu, á móti 68 prósentum Repúblikana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár