Sumir fjölmiðlar algerlega að visna „í skugga Ríkisútvarpsins“

Þing­maður Mið­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra ræddu RÚV og einka­rekna fjöl­miðla á þing­inu í dag.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Það má segja að Rík­is­út­varpið sé ein­stofna, stórt tré sem er með ræt­urnar í rík­is­sjóði og lögum um inn­heimtu gjalds­ins en allir aðrir fjöl­miðlar séu eins og litlar plöntur sem fá ekki á sig sól­ina af því að Rík­is­út­varpið er með svo langar greinar. Þær plöntur eru aðeins að fölna og margar hverjar að visna alger­lega í skugga Rík­is­út­varps­ins.“

Þetta sagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, spurði ráð­herr­ann meðal ann­ars hvort sú hug­mynd kæmi til greina að leyfa greið­endum nef­skatts vegna RÚV að ráð­stafa til­teknu hlut­falli af honum til einka­rek­inna miðla.

„Hér vil ég gera stöðu fjöl­miðla, sér­stak­lega einka­rek­inna, að umtals­efni. Í dag liggur fyrir hjá hæst­virtum fjár­mála­ráð­herra sem flestum ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum ber að greiða til Rík­is­út­varps­ins með milli­lend­ingu í rík­is­sjóði úr 17.900 krónum á ári í 18.300 krónur. Þetta er það sem í dag­legu tali er kall­aður nef­skatt­ur­inn til RÚV,“ sagði Bergþór í fyr­ir­spurn sinni.

Hann benti á að í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar væri reiknað með að útgjöld til Rík­is­út­varps­ins yrði um rúmar 4.500 þús­und millj­ónir og ofan á það bætt­ust tekjur Rík­is­út­varps­ins af aug­lýs­ingum og kostun. „Á sama tíma er lagt til að hart­nær fjögur hund­ruð millj­ónir fari til einka­rek­inna miðla í gegnum umdeil­an­legt styrkja­kerfi sem meðal ann­ars mun kalla fram aukið opin­bert eft­ir­lit með fjöl­miðlum.“

Bergþór spurði fjár­mála­ráð­herra hver afstaða hans væri til þess að leyfa greið­endum nef­skatts­ins að ráð­stafa til­teknu hlut­falli af nef­skatti sínum til einka­rek­inna miðla. „Þetta væri til dæmis hægt að gera á skatta­skýrslu hvers árs og ef að við byrj­uðum til að mynda á því að gjald­endur fengu að ráð­stafa 10 pró­sent af skatt­stofni sínum til einka­rek­inna miðla, þá væri það rétt um 450 millj­ónir á ári – sem fer býsna nærri þeirri tölu sem á með frum­varpi hæst­virtum mennta­mála­ráð­herra að færa til einka­rek­inna miðla. Þarna væri hægt að hugsa sér sem svo sem dæmi þar sem menn gætu valið þrjá miðla og þá gæti ein­hver valið að styðja Frétta­blaðið, ein­hver Morg­un­blaðið, ein­hver DV, ein­hver Stundina, ein­hver Kjarnann, ein­hver Fótbolta.net og svo fram­vegis.“

Hann spurði Bjarna enn fremur hvort hann sæi þessa leið sem færa til þess að styðja við inn­lenda einka­rekna fjöl­miðla með ein­földum hætti.

Hugmyndin vekur upp margar grundvallarspurningar um RÚV

Bjarni svar­aði og sagði að honum fynd­ist þetta vera áhuga­verð hug­mynd en að hún væri ekki á dag­skrá rík­is­stjórn­ar­innar. „Ég held að hún ein og sér myndi vekja upp margar grund­vall­ar­spurn­ingar sem við þyrftum fyrst að taka afstöðu til, nefni­lega spurn­ing­una: Eigum við að reka almanna­út­varp og hvernig eigum við að fjár­magna það? Það er ágætt að fá þá umræðu. Sitt sýn­ist hverjum um umfang þeirrar starf­semi, þótt mér þyki sem breið sam­staða sé um að almanna­út­varp þurfi að gegna ákveðnu lyk­il­hlut­verki. Þetta snýst sömu­leiðis ekki bara um grund­vall­ar­spurn­ing­una hvort við eigum að reka slíkt útvarp heldur líka hvernig við eigum að gera það og fjár­magna það.“

Hann sagð­ist hafa verið þeirrar skoð­unar að ákveðið rof hefði átt sér stað í þeirri teng­ingu sem Bergþór nefndi, „sem er fram­lag hvers og eins ein­stak­lings og lög­að­ila á Íslandi til þessa rekst­urs, með því að við hættum að inn­heimta gjaldið sér­stak­lega. Það voru eflaust ýmsar praktískar ástæður fyrir því en ég held að það hafi slitnað þetta sam­band sem oft er mik­il­vægt að sé til staðar, að fólk viti að það sé að leggja eitt­hvað af mörkum, borgar í hverjum mán­uði og svo fram­vegis. Ég held að það sé líka galli á þessu fyr­ir­komu­lagi sem við erum með núna. Ef hér er ein­hver hag­sveifla og það fjölgar til dæmis fyr­ir­tækjum í land­inu, þá aukast sjálf­krafa fram­lögin til Rík­is­út­varps­ins án þess að það sé ein­hver rök­bundin nauð­syn til þess eða hægt sé að færa fyrir því rök að það eitt að stofnuð eru 1.000 ný fyr­ir­tæki eða 1.000 nýjar kenni­tölur á fyr­ir­tækja­skrá eigi að leiða til þess að verk­efnum Rík­is­út­varps­ins fjölgi ein­hvern veg­inn eða verði umfangs­meiri. Þarna held ég að sé ákveðin rök­leysa í fyr­ir­komu­lag­inu.“

Eftir sæti að það þyrfti að halda áfram að ræða þá stöðu sem Rík­is­út­varpið er í gagn­vart fjöl­miðla­mark­aðnum að öðru leyti og telur Bjarni að aug­lýs­ing­arnar séu stór þáttur sem þurfi að taka til frek­ari umræðu.

Spurði hvort hægt væri að minnka umsvif RÚV með einhverjum hætti

Bergþór lýsti yfir ánægðu með vilja fjár­mála­ráð­herra til þess að opna þetta sam­tal og þessa umræðu. „Það eru auð­vitað margar leiðir til þess að styðja við inn­lenda einka­rekna fjöl­miðla. Ein þeirra væri til dæmis að afnema virð­is­auka­skatt af áskrift­ar­tekjum svo hér sé einu dæmi kastað fram. Það væri hægt að eiga við trygg­ing­ar­gjald starfs­manna og fleira slíkt.

En aðeins varð­andi svar hæst­virts ráð­herra þá er staðan auð­vitað þannig að með núver­andi tekjum af nef­skatti og síðan aug­lýs­inga- og kost­un­ar­tekjum sjáum við að Rík­is­út­varpið hefur til ráð­stöf­unar ein­hvers staðar í námunda við 6.000 millj­ónir, sýn­ist mér, á næsta ári. Slík tala kippir auð­vitað úr sam­bandi öllum sann­gjörnum sam­keppn­is­sjón­ar­miðum, ef svo má segja, gagn­vart hinum einka­reknu miðlum sem standa í slags­málum á þessum mark­aði,“ sagði hann.

Þá spurði Bergþór ráð­herr­ann, ef sjón­ar­miðið væri að hér á landi ætti að reka almanna­út­varp með ein­hverjum hætti, hvort hann teldi ekki væri hægt að minnka það að ein­hverju marki frá því sem væri í dag.

Stígur varla inn á frjálsan fjölmiðil án þess að menn spyrji hvort ekki sé hægt að auka andrými frjálsu fjölmiðlanna

Bjarni kom aftur í pontu og sagði að vissu­lega væri Rík­is­út­varpið alls ekki hafið yfir gagn­rýni hvað varðar umfangið í starf­sem­inni.

„Það má segja að Rík­is­út­varpið sé ein­stofna, stórt tré sem er með ræt­urnar í rík­is­sjóði og lögum um inn­heimtu gjalds­ins en allir aðrir fjöl­miðlar séu eins og litlar plöntur sem fá ekki á sig sól­ina af því að Rík­is­út­varpið er með svo langar greinar. Þær plöntur eru aðeins að fölna og margar hverjar að visna alger­lega í skugga Rík­is­út­varps­ins.

Ég held því að mikið rúm sé fyrir umræðu um aug­lýs­inga­mark­að­inn sem er meg­in­upp­spretta tekju­lindar fyrir einka­rekna fjöl­miðla. Maður stígur varla inn á frjálsan fjöl­miðil án þess að menn hefji við mann umræðu, áður en útvarps­þátt­ur­inn byrjar, eða hvað það nú er, um það hvort ekki sé hægt að auka and­rými frjálsu fjöl­miðl­anna til að bjarga sér sjálfum. Það er nú mjög í anda sjálf­stæð­is­stefn­unnar að hjálpa mönnum til sjálfs­hjálpar,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár