„Háþrýstiþvo burt sannleikann um vanvirðingu þeirra við þjóðarviljann“

Þingmenn Pírata gagn­rýndu á Alþingi í dag þá ákvörðun stjórn­valda að háþrýsti­þvo vegg­inn rétt hjá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu þar sem nýbúið var að rita með stórum stöfum: „Hvar er nýja stjórn­ar­skráin?“

Vegglistaverk þar sem letrað var „Hvar er nýja stjórnarskráin?“ hefur verið háþrýstiþvegið af veggnum við Skúlagötu.
Vegg­lista­verk þar sem letrað var „Hvar er nýja stjórn­ar­skráin?“ hefur verið háþrýsti­þvegið af veggnum við Skúla­götu. Mynd: Stjórnarskrárfélagið

„Það er tákn­rænt að þegar stjórn­völd kom­ast ekki lengur upp með það að sópa nýju stjórn­ar­skránni undir teppið þá bein­línis háþrýsti­þvo þau burt sann­leik­ann um van­virð­ingu þeirra við þjóð­ar­vilj­ann.“

Þetta sagði þing­maður Pírata, Jón Þór Ólafsson, undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag. Vísar þing­mað­ur­inn í þá ákvörðun stjórn­valda að þvo vegg­lista­verk, sem málað var á vegg við bíla­stæði milli Sölv­hóls­vegar og Skúla­götu, tveimur dögum eftir að verkið var full­klárað. Áletr­unin „Hvar er nýja stjórn­ar­skráin?“ sem máluð var á vegg­inn er nú horfin.

Jón Þór benti á að veggur sem staðið hefur óáreittur árum saman, þak­inn veggjakroti, væri „skyndi­lega orð­inn for­gangs­verk­efni í Stjórn­ar­ráð­inu. Það hefur ekki hvarflað að stjórn­völdum eina ein­ustu sek­úndu að hreinsa vegg­inn. Það þurfti ekki nema eina sak­lausa spurn­ingu: Hvar er nýja stjórn­ar­skráin? Hvar er hún?“ spurði hann.

Telur forsætisráðherra skulda þjóðinni útskýringar

Þá sagði að Jón Þór að Fen­eyja­nefnd Evr­ópu­ráðs­ins hefði skilað um dag­inn áliti á þeim „slitr­óttu breyt­ingum á stjórn­ar­skránni sem hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra ætlar að leggja til. Þar er lýð­ræð­is­legu ferli við gerð til­lagna stjórn­laga­ráðs sér­stak­lega fagnað og sagt berum orðum að rík­is­stjórnin verði að útskýra mál sitt ítar­lega ef bregða á út frá þeirri leið. Ekki með því að segja bara að þeim finn­ist eitt­hvað annað heppi­legra heldur þarf að útskýra efn­is­lega af hverju til­lögur stjórn­laga­ráðs eru þeim óþægi­legar, hvað það er við lýð­ræð­is­leg­ustu stjórn­ar­skrár­ritun mann­kyns­sög­unnar frá þjóð­fund­inum 2010 til þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar 2012 sem er þeim á móti skapi.“

Hann telur að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra skuldi þjóð­inni aug­ljósar skýrar og sann­fær­andi útskýr­ingar á leið sinni og ástæðu þess að vikið sé í veiga­miklum atriðum frá til­lögum stjórn­laga­ráðs sem sam­þykktar voru í ráð­gef­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu 2012. „Annars getið þið, kjós­endur, tekið upp kjör­seð­il­inn eftir ár og spúlað út af Alþingi í bind­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu þá sem virða ekki ráð­gef­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu ykkar,“ sagði hanni.

Ekki allt veggjakrotið þvegið – einungis spurningin „Hvar er nýja stjórnarskráin?“

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, gerði málið einnig að umræðu­efni í ræðu sinni á þing­inu í dag. Vísaði hann í frétt á Vísi frá því fyrr í dag þar sem segir að rekstr­ar­fé­lagi Stjórn­ar­ráðs­ins hafi borist ábend­ing frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu um áletrun sem máluð hafði verið á vegg við hús­næði ráðu­neyt­is­ins um helg­ina. Þar er haft eftir fram­kvæmda­stjóra rekstr­ar­fé­lags Stjórn­ar­ráðs­ins:

„Við tókum við núna síðla sum­ars og gerðum þá samn­ing við ráðu­neytið um að sjá um hús­næðið og lóð­ina í kring og í þeim samn­ingi felist að þrífa allt óum­beðið veggjakrot. Og þetta var fyrsta veggjakrotið sem kom eftir að við tókum við.“

„Við fengum bara ábend­ingu frá ráðu­neyt­inu um að þarna væri búið að krota. Við erum með eft­ir­lits­kerfi og örygg­is­vörslu í kringum húsin. Þannig að þetta bara kom í ljós, að búið væri að mála á vegg­inn.“

Björn Leví sagði á þing­inu að veggjakrotið hefði hins vegar ekki verið þrifið, bara spurn­ingin um hvar nýja stjórn­ar­skráin væri. Það sæist á mynd sem tekin var stuttu áður.

„Það er fullt af veggjakroti þarna rétt við hlið­ina sem ein­hvern veg­inn fór alger­lega fram hjá þessum góðu háþrýsti­þvottaspúl­urum. Þá veltir maður fyrir sér hvort þetta hafi verið fyrsta veggjakrotið sem þeir tóku eftir. Ef þeir hefðu litið örlítið lengra til vinstri hefðu þeir séð fullt af veggjakroti,“ benti hann á.

Hann lauk ræðu sinni á því að segja að Íslend­ingar væru „dálítið í þeirri aðstöðu að rík­is­stjórnin er veggur sem stendur í vegi fyrir breyt­ingum á stjórn­ar­skrá sam­kvæmt nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Ég vil bara spyrja þess­arar ein­földu spurn­ingar: Af hverju er ekki búið að spúla þeim vegg í burtu?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár