Gríska stjórnin afgreiðir samkomulag - 13 milljarða evra niðurskurður í vændum

Gríska ríkis­stjórnin samþykkti á neyðar­fundi undir kvöld drög að samkomu­lagi við kröfuhafa sína. The Guardian greinir frá því að þar sé gert ráð fyrir frekari 13 milljarða evra niður­skurði í ríkis­fjármálunum, en að Grikkir muni óska eftir 50 milljarða evra neyðar­láni. Hér er hægt að fylgjast með umfjöllun Guardian.

Ljóst er að niður­skurðurinn mun koma hart niður á hagkerfi landsins, sem hefur verið í mikilli kreppu um árabil, og þá hefur lokun gríska banka­kerfisins ekki hjálpað til. Þá er talið að niður­skurðurinn í ríkis­fjármálunum verði svo blóðugur og muni koma svo hart niður á þegnum Grikk­lands að til greina komi að veita landinu frekari fjárhags­aðstoð í mannúðar­skyni.

Samkvæmt heimildum The Guardian er stefnt að því að kynna samkomu­lagið fyrir kröfu­höfum gríska ríkisins í kvöld, en fresturinn sem Grikkjum var gefinn til að koma fram með raunhæfa áætlun og samkomulag rennur út á næstu klukku­stundum.

Þá hefur grískum þing­mönnum verið sagt að vera í viðbragðs­stöðu, því að öllum líkindum muni gríska þingið þurfa að koma saman á morgun til að samþykkja samkomulags­pakkann við kröfu­hafana.

Samkvæmt áætlun verða tæknileg atriði samnings­draganna yfirfarin af Alþjóða­gjaldeyris­sjóðinum (AGS), Evrópu­sambandinu og Seðla­banka Evrópu á föstudag, fjármála­ráðherrar evru­ríkjanna munu yfirfara samninginn á laugardag og leiðtogar evru­ríkjanna funda á sunnudag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár