Leita gulls án leyfis í Þormóðsdal

Iceland Resources hóf rann­sókn­ar­bor­anir til gull­leitar í Þor­móðs­dal í sumar þrátt fyrir að Mos­fells­bær hefði ekki gefið út leyfi til fram­kvæmd­anna. Fyr­ir­tækið bor­aði í „góðri trú“ um að það væri sam­eig­in­legur skiln­ingur að ekk­ert slíkt leyfi þyrfti.

Á myndinni sjást gámar í Þormóðsdal sem Mosfellsbær hefur spurt landeigandann, Landbúnaðarháskóla Íslands, út í. Skólinn kannast ekki við gámana.
Á mynd­inni sjást gámar í Þor­móðs­dal sem Mos­fells­bær hefur spurt land­eig­and­ann, Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands, út í. Skólinn kann­ast ekki við gámana. Mynd: Mynd úr fundargerð skipulagsnefndar

Skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæjar gerir „alvar­legar athuga­semdir við fram­göngu og rök­semd­ar­færslu“ fyr­ir­tæk­is­ins Iceland Resources ehf. í sam­skiptum sínum við sveit­ar­fé­lagið. Fyr­ir­tækið hefur hafið rann­sókn­ar­bor­anir í þeim til­gangi að leita að gulli í Þor­móðs­dal án þess að fram­kvæmda­leyfi hafi verið útgefið af sveit­ar­fé­lag­inu. Aðilar hafa deilt allan ágúst­mánuð um málið. Mos­fells­bær hefur ítrekað óskað eftir frek­ari gögnum til að taka afstöðu til þess hvort að gefið verði út fram­kvæmda­leyfi en fyr­ir­tækið hefur sagt að slíks leyfis sé ekki þörf yfir höfuð. Fyrir liggi rann­sókn­ar­leyfi frá Orku­stofnun sem og starfs­leyfi frá Heil­brigð­is­eft­ir­liti Kjós­ar­svæðis.

En þetta er ekki nóg segir bær­inn og bendir á að sam­kvæmt reglu­gerð um fram­kvæmda­leyfi sé það hlut­verk leyf­is­veit­anda að meta hvort þörf sé á slíku leyfi eða ekki, þ.e. hvort fram­kvæmd sé meiri­háttar eða óveru­leg.

Skipu­lags­nefnd, sem fjall­aði um málið á fundi sínum fyrir helgi, þar sem sam­skipti bæj­ar­ins við fyr­ir­tækið voru lögð fram, metur að upp­lýs­ingar þær sem fram komu í bréfi Iceland Resources ehf. til Heil­brigð­is­nefndar Kjós­ar­svæðis í byrjun júní séu ekki þess eðlis að hægt sé að meta áhrif fram­kvæmda á umhverfið. Því hafi verið óskað eftir frek­ari gögnum.

„Í sam­ræmi við yfir­lits­mynd, sem barst 13.08.2021, er ljóst að um mik­inn fjölda bor­hola er að ræða og ekki hefur því verið lýst hvernig farið verður með tæki á milli staða svo ekki verði sjá­an­legt rask á landi þar sem aðgengi er ekki til staðar.“

Skipu­lags­nefndin áréttar svo að hvorki sam­kvæmt aðal­skipu­lagi Mos­fells­bæjar né öðrum sam­þykktum áætl­unum séu áform um fram­kvæmdir á svæð­inu, „hvort sem um er að ræða bygg­ingar, vega­gerð eða námu­vinnslu af neinu tagi“.

Gerir nefndin þá kröfu til Iceland Resources ehf. að sam­an­tekt á upp­lýs­ingum og gögnum sem lýsa verk­inu frekar ber­ist henni sem erindi til umfjöll­unar.

Samskiptin rakin

„Til­kynn­ing um rann­sókn­ar­bor­anir í Þor­móðs­dal“ var yfir­skrift bréfs sem Þórdís Björk Sig­ur­björns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Iceland Resources, sendi heil­brigð­is­nefnd Kjós­ar­svæðis 10. júní. Í því er nefnd­inni til­kynnt um „fyr­ir­hug­aðar rann­sókn­ar­bor­anir“ á svæð­inu og sagt að þær séu í sam­ræmi við rann­sókn­ar­leyfi Orku­stofn­unar.

Það rann­sókn­ar­leyfi var útgefið á fyr­ir­tækið Melmi ehf. árið 2004 því þetta er ekki í fyrsta sinn sem áhugi vaknar á gull­leit í Þor­móðs­dal. Hann má reyndar rekja allt til árs­ins 1905 er til­rauna­bor­anir í sama til­gangi voru þar gerðar. Leyfið sem Melmi fékk var gefið út til leitar og rann­sókna á málmum og síðar fram­lengt af til árs­ins 2023. Þetta rann­sókn­ar­leyfi hefur fyr­ir­tækið Iceland Resources nú yfir­tekið.

Þórdís fór í bréfi sínu stutt­lega yfir hina áform­uðu fram­kvæmd og skrif­aði að rann­sókn­irnar myndu „engin áhrif“ hafa á umhverfið eða breyta ásýnd svæð­is­ins sem krefð­ist aðkomu Skipu­lags­stofn­unar. Þá sagði að fram­kvæmd­irnar myndu hefj­ast 15. júlí. „Þetta til­kynn­ist hér með,“ skrif­aði Þórdís og sagð­ist veita nán­ari upp­lýs­ingar, væri þess óskað.

Þann 9. ágúst óskaði Mos­fells­bær eftir „full­nægj­andi gögnum um fyr­ir­hug­aðar rann­sókn­ar­bor­anir“. Þar kom fram að bænum þætti „þónokkrum spurn­ingum“ ósvarað til að hægt væri að skera úr um hvort að fram­kvæmdin þarfn­að­ist fram­kvæmda­leyfis.

Í svar­bréfi fyr­ir­tæk­is­ins nokkrum dögum síðar fylgdi m.a. fyrr­nefnt bréf til heil­brigð­is­nefndar Kjós­ar­svæðis, sem einnig hafði degi síðar verið sent Mos­fellsbæ. „Að mati félags­ins voru umræddar vís­inda­rann­sóknir ekki leyf­is­skyldar,“ stóð þar m.a. og að haft hefði verið sam­ráð við land­eig­endur um umgengni. Þó hafi þótt rétt að „upp­lýsa við­kom­andi sveit­ar­fé­lag, Mos­fellsbæ“ um hinar fyr­ir­hug­uðu rann­sóknir.

Þann 4. ágúst gaf Heil­brigð­is­eft­ir­lit Kjós­ar­svæðis út tíma­bundið starfs­leyfi til gull­leitar með „léttum belta­bor“ í Þor­móðs­dal. En ekk­ert fram­kvæmda­leyfi var þó í höfn og er ekki enn.

Kröfðust þess að framkvæmdir yrðu stöðvaðar

Full­trúar bæj­ar­yf­ir­valda áttu fund með full­trúum fyr­ir­tæk­is­ins 19. ágúst og ítrek­uðu að vegna þess að form­legt erindi, þar sem áformum fyr­ir­tæk­is­ins væri lýst með ítar­legrum hætti, hefði aldrei borist umsókn um fram­kvæmda­leyfi. Þau gögn sem lögð hefðu verið fram væru ekki full­nægj­andi til að sveit­ar­fé­lagið gæti tekið afstöðu.

Á þessum sama fundi kom jafn­framt fram að fyr­ir­tækið hefði þegar hafið fram­kvæmdir og að bær­inn gerði „veru­legar athuga­semdir við slíkt“, líkt og rakið er í ítar­legu bréfi Jóhönnu B. Hansen, fram­kvæmda­stjóra umhverf­is­sviðs Mos­fells­bæjar, til Iceland Resources sama dag og fund­ur­inn var hald­inn. Á fund­inum var svo gerð sú krafa að allar fram­kvæmdir yrðu stöðv­aðar taf­ar­laust.

Í bréfi frá lög­manni Iceland Resources ehf. þann 26. ágúst til bæj­ar­stjóra segir að fyr­ir­tækið hafi verið í „góðri trú“ um að rann­sókn­irnar væru ekki fram­kvæmda­leyf­is­skyldar og var í því sam­bandi m.a. vísað til sím­tals við skipu­lags­full­trúa 24. júní „þar sem tekið var fram, án athuga­semda, að félagið liti svo á“ að slíkt leyfi þyrfti ekki fyrir rann­sókn­unum. Þá var á það bent að rann­sókn­irnar væru í sam­ræmi við rann­sókn­ar­leyfi Orku­stofn­unar.

Fleira átti svo eftir að ger­ast áður en ágúst­mán­uður var úti. Þann 30. ágúst sendi Árni Jón Sig­fús­son, bygg­inga­full­trúi Mos­fells­bæjar, Theodóru Ragn­ars­dóttur, rekstr­ar­stjóra Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands tölvu­póst, en háskól­inn er eig­andi jarð­ar­innar Þor­móðs­dals.

„Sæl Theodóra,

eins og fram kom í sím­tali okkar fyrr í dag óskar emb­ætti bygg­ing­ar­full­trúa Mos­fells­bæjar eftir upp­lýs­ingum um gáma sem komið hefur verið fyrir í Þor­móðs­dal, land­eign­ar­númer L123813, á svæði sem merkt er með rauðum hring á loft­mynd hér að neðan. Gott væri að fá upp­lýs­ingar um á hvers vegum gám­arnir eru og hvort þeim hefur verið komið fyrir með vit­und og sam­þykki land­eig­anda og í hvaða til­gangi.

Bent skal á grein 2.6.1 í bygg­ing­ar­reglu­gerð nr. 112/2012 sem fjallar um stöðu­leyfi. Þar er m.a. kveðið á um að sækja þurfi um stöðu­leyfi ef gámar standa lengur en tvo mán­uði utan þeirra svæða sem sér­stak­lega eru skipu­lögð og ætluð til geymslu slíkra lausa­fjár­muna.

Með kveðju,

Árni Jón Sig­fús­son

Bygg­inga­full­trúi.“

Theodóra svarar sam­dæg­urs:

„Sæll Árni

Við vitum ekki á hvers vegum þessir gámar eru og höfum ekki fengið neinar beiðnir um heim­ild fyrir þeim.

Bestu kveðjur,

Theodóra“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár