Segir náin tengsl á milli hatursglæpa, vændis, kvenhaturs og útlendingahaturs

Þing­maður Vinstri grænna segir að hinsegin fólk sem fellur undir hatt fleiri minni­hluta­hópa sé útsett­ara fyrir ofbeldi en annað hinsegin fólk og því sé aldrei hægt að gefa afslátt í mála­flokkum sem við­koma þessum hópum.

Jódís Skúladóttir þingmaður VG.
Jódís Skúla­dóttir þing­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

Málefni hinsegin fólks var ofar­lega í huga Jódísar Skúla­dóttur þing­mans Vinstri grænna á alþjóða­degi gegn hómó-, tví og trans­fó­bíu þann 17. maí síð­ast­lið­inn.

Í ræðu sinni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi sagði hún að í orða­bók væru þessi hug­tök, hómó-, tví og trans­fóbía, skil­greind sem öfga­kennd og órök­rétt óbeit eða and­styggð á sam- eða tví­kyn­hneigðum eða trans fólki.

„Að mörgu leyti er staða hinsegin fólks góð á Íslandi og fer batn­andi ár frá ári undir stjórn rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur. Það er mikið gleði­efni að Ísland hefur færst upp um fimm sæti á milli ára á regn­boga­korti ILGA-Europe og áfram höldum við með aðgerða­á­ætlun í mál­efnum hinsegin fólks 2022 til 2025 sem for­sæt­is­ráð­herra lagði fram á þessu þingi og tekur á mik­il­vægum rétt­ar­bótum fyrir hinsegin fólk,“ sagði hún.

Árið 2021 ofbeldisfyllsta ár gagnvart trans fólki frá því að mælingar hófust

Jódís bætti því við að staðan væri ekki alls staðar jafn góð og vildi hún sér­stak­lega varpa ljósi á alvar­lega stöðu trans fólks í heim­inum.

Hún benti á að á árinu 2021 hefðu 375 trans mann­eskjur verið myrtar í heim­inum og hækk­aði sú tala frá fyrra ári. Samkvæmt alþjóð­legri skýrslu sem gefin er út ár hvert, „Trans murder mon­itor­ing report“, er árið 2021 mann­skæð­asta og ofbeld­is­fyllsta ár gagn­vart trans fólki frá því að mæl­ingar hófust.

„En áttum okkur líka á sam­hengi hlut­anna. 96 pró­sent af þeim myrtu voru trans konur, af því að ofbeldi er líka kynjað, 58 pró­sent þeirra myrtu voru þolendur vændis, fjórir af hverjum tíu voru inn­flytj­endur. Morðin eru framin um allan heim. Ný til­felli frá Grikk­landi, Kasakstan og Malaví voru til­kynnt árið 2021, en Suður-Ameríka sker sig sér­stak­lega úr hvað varðar fjölda og eru 33 pró­sent allra morða á trans fólki framin í Brasilíu,“ sagði hún.

Vakti hún athygli þing­manna á þess­ari stöðu og sagði að aldrei væri hægt að aðskilja þau nánu tengsl sem væru á milli hat­urs­glæpa, vændis, kven­hat­urs, ras­isma, útlend­inga­hat­urs og svo fram­vegis.

„Hinsegin fólk sem fellur undir hatt fleiri minni­hluta­hópa er útsett­ara fyrir ofbeldi en annað hinsegin fólk og því getum við aldrei gefið afslátt í neinum af þessum mála­flokkum,“ sagði hún að lokum.

Þing­mað­ur­inn upp­skar „heyr heyr“ úr þing­sal við lok ræð­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár