Rafbyssumálið í Reykjanesbæ: Atburðarásin rakin

Maðurinn sem kviknaði í þegar lögreglan skaut hann með rafbyssu, er íslenskur fjölskyldu­maður búsettur í Reykja­nesbæ. Lögmaður mannsins segir það hefði dugað að beita duft­slökkvitæki og að meðalhófs hafi ekki verið gætt í störfum lögreglu.

Reykjanesbær
Reykja­nes­bær Atvikið átti sér stað í kirkju­garð­inum í Reykja­nesbæ.

Það var rétt rúmlega níu um morguninn síðasta mánudag sem Ísak Berglindarson sá fáklæddan mann hlaupa undan fjórum lögreglu­mönnum í kirkju­garðinum í Reykja­nesbæ. Ísak var eina sjónar­vitnið að atvikinu en hann var þá á heimleið eftir að hafa farið með bíl sinn í viðgerð.

Ísak sá þá 42 ára gamlan íslenskan fjölskyldu­mann, sem var skotinn af lögreglu með rafbyssu. Í kjölfarið kviknaði í honum. Hann liggur nú þungt haldinn á sjúkra­húsi í Noregi samkvæmt lögmanni hans, Vilhjálmi Þ. Vilhjálms­syni, sem segist ekki geta staðfest að kveikt hafi verið á búkmyndavélum lögreglunnar þegar atvikið átti sér stað, þar sem þær upplýsingar liggi ekki fyrir að svo stöddu. Hann vill að Héraðs­saksóknari endur­heimti mynd­bandið en embættið hefur tekið málið til rann­sóknar.

Maðurinn sem um ræðir fór í langa aðgerð í gær og hefur verið haldið sofandi frá því atvikið átti sér stað, en hann er með brunasár um 50 prósent …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár