Íslendingar strauja kreditkortin mun meira en í fyrra

Íslendingar eyddu sjö prósent meira á kredit­kortunum sínum í september síðastliðnum en í sama mánuði árið áður. Alls var velta þeirra innanlands sex prósent hærri en á sama tíma fyrir ári. Aukning á eyðslu Íslendinga erlendis var enn meiri. Hún var ellefu prósent meiri í september 2014 en í sama mánuði árið 2013. Þetta kemur fram í Valitor-vísi­tölunni sem var birt í morgun.

Innanlands eyddu Íslendingar níu prósent meira af kreditkorta­heimildum sínum í áfengis­verslunum og fjögur prósent meira í matvöru- og stór­verslunum. Bensín­kostnaður sem greitt var fyrir með kredit­kortum dróst hins vegar saman um sex prósent milli ára.

Þróunin á ekki að koma mikið á óvart. Einka­neyslu Íslendinga hefur aukist mikið á skömmum tíma og innflutningur á marg­víslegum varningi sömuleiðis. Viðbúið er að einka­neyslan muni aukast enn meira á komandi misserum þegar aðgerð stjórn­valda, sem nefnist leið­réttingin, þar sem mögulegt verður að fá fé úr ríkis­sjóði til að lækka höfuðstól verð­tryggra húsnæðis­lána, er ekk enn farin að hafa áhrif á efnahag þjóðarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár