Sjálfstæðisflokkur geti ekki tekið þátt í stjórn sem haldi áfram að ríkisvæða heilbrigðiskerfið

Óli Björn Kárason segir að rík­is­rekin fjöl­miðlun grafi „undan borg­ara­legum öflum“. Ekki síst þess vegna verði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn að spyrna við fótum í mál­efnum RÚV.

Óli Björn Kárason er formaður efnahags- og viðskiptanefndar og þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Óli Björn Kárason er for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Mynd: Bára Huld Beck

„Það þarf ekki mikla inn­sýn eða skiln­ing á stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins til að átta sig á því að flokk­ur­inn getur ekki tekið þátt í rík­is­stjórn sem heldur áfram að rík­i­s­væða heil­brigð­is­kerfið, kemur í veg fyrir sam­þætt­ingu og sam­vinnu sjálf­stætt starf­andi þjón­ustu­að­ila og hins opin­bera – tekur hags­muni kerf­is­ins fram yfir hags­muni sjúkra­tryggðra (okkar allra) og und­ir­býr þannig jarð­veg fyrir tvö­falt heil­brigð­is­kerfi, sem er eitur í beinum hvers sjálf­stæðis- manns.“

[links]Þetta skrifar Óli Björn Kárason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar, í grein sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í morgun. Svandís Svav­ars­dóttir – heil­brigð­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks – hefur legið undir ámæli frá þeim sem styðja aukin einka­rekstur í heil­brigð­is­kerf­inu fyrir að hafa toga það af krafti í hina átt­ina, í átt að frek­ari rík­is­rekstri, á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili.

Í grein sem hún skrif­aði á Kjarn­anum í lok apríl sagði hún meðal ann­ars að mark­mið þeirrar heil­brigði­stefnu sem hún hefur inn­leitt sé að skapa heil­brigð­is­þjón­ustu, þar sem rétt þjón­usta er veitt á réttum stað og er aðgengi­leg óháð efna­hag. Tilefni skrif­ana var mikil gagn­rýni sér­fræði­lækna á það að stjórn­völd vildu ekki semja við þá upp á nýtt á sömu for­sendum og áður þar sem það sé ekki raun­hæft. „Því er haldið fram að þetta sé skref í þá átt að skapa tvö­falt heil­brigð­is­kerfi. Ekkert er jafn fjarri lagi,“ skrif­aði heil­brigð­is­ráð­herra.

Segir ríkisrekna fjölmiðum grafa „undan borgaralegum öflum“

Óli Björn fer yfir fleiri skil­yrði sem hann telur að séu fyrir hendi svo að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn geti tekið þátt í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi að loknum kosn­ingum í sept­em­ber. Hann segir að með sama hætti geti þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks ekki rétt­lætt stuðn­ing við rík­is­stjórn sem haldi sjálf­stæðum fjöl­miðlum í hel­greipum, þar sem hags­munir ríkis- fyr­ir­tækis gangi framar öllu öðru. „Rík­is­rekin fjöl­miðlun gengur þvert á hug­myndir hægri manna og grefur undan borg­ara­legum öflum. Ekki síst þess vegna verður Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn að spyrna við fótum – loks­ins gæti ein­hver sagt.“

[adspot]Óli Björn, ásamt Brynjari Níels­syni, þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, lögðu fram frum­varp fyrr á þessu ári sem lagði til að RÚV verði tekið af aug­lýs­inga­mark­aði í tveimur skrefum. Það átti, að þeirra mati, að gera til að styrkja stöðu einka­rek­inna fjöl­miðla og gera RÚV kleift að ein­beita sér að menn­ing­ar­hlut­verki sínu. Ekki átti að bæta RÚV tekju­tapið með neinum hætti. Frum­varpið var ekki afgreitt.

Frum­varpið var lagt fram eftir að Lilja Alfreðs­dótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, fól þremur full­trúum rík­is­stjórn­ar­flokk­anna í febr­úar að rýna lög um RÚV og gera til­lögur að breyt­ingum sem lík­legar eru til að sætta ólík sjón­ar­mið um starf­semi og hlut­verk þess. Páll Magn­ús­son var full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í þeim hópi, sem átti að skila af sér nið­ur­stöðu eigi síðar en 31. mars. Nú, þremur mán­uðum síðar, bólar ekk­ert á þeirri nið­ur­stöðu.

Jákvætt viðhorf til atvinnulífsins skilyrði

Óli Björn lenti í fjórða sæti í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks í Kraganum nýverið og mun því skipa bar­áttu­sæti flokks­ins þar, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er nú með fjóra þing­menn í kjör­dæm­inu.

Hann telur fleira til í grein­inni sem þurfi að taka afstöðu til áður en að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ákveður hvort hann taki þátt í myndun nýrrar rík­is­stjórnar. „Upp­bygg­ing mennta­kerf­is­ins er eitt. Skyn­sam­leg og sjálf­bær nýt­ing nátt­úru­auð­linda annað. Jákvætt við­horf til atvinnu­lífs­ins er skil­yrði. Að gera launa­fólki kleift að taka með beinum hætti þátt í rekstri fyr­ir­tækja er mik­il­vægt og byggja þannig fleiri stoðir undir fjár­hags­legt sjálf­stæði heim­il­anna, er lyk­ill­inn að hjarta sjálf­stæð­is­manna. Og fleira skiptir miklu, en verður ótalið að þessu sinni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár