„Íslenska ríkið á að skila þessum peningum strax“

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar telur að það hafi verið bjarn­ar­greiði fyrir öryrkja þegar stjórn­völd leyfðu fólki að taka út sér­eign­ar­sparnað í COVID-far­aldr­inum. Hann bendir á að sér­stök fram­færslu­upp­bót­ 300 öryrkja hafi verið skert í fyrra vegna þessa.

Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar.
Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar gerði úttekt sér­eign­ar­sparn­aðar í COVID-far­aldr­inum að umtals­efni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni.

„Það er nú ekki algengt að öryrkjar eigi digra vara­sjóði og þeir sem eiga ein­hvern sér­eign­ar­sparnað veigra sér yfir­leitt við að taka hann út, enda skerðir hann sér­stöku fram­færslu­upp­bót­ina hjá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins um 65 pró­sent, sem þýðir að sá sem tekur út 400.000 krónu sér­eign­ar­sparnað borgar 129.000 krónur í skatt. Það er ofan á 260.000 krónu skerð­ingu hjá Trygg­inga­stofnun. Eftir standa 11.000 krónur af þessum 400.000 krónum,“ sagði hann.

Rifjaði Jóhann Páll upp að þegar heims­far­ald­ur­inn skall á hefði verið opnað fyrir þann mögu­leika, með sér­stöku bráða­birgða­á­kvæði, að fólk yngra en 60 ára gæti tekið út sér­eign­ar­sparnað.

„Þetta átti ekki að hafa nein áhrif á greiðslur frá Trygg­inga­stofnun sam­kvæmt ákvæð­inu. Það var alveg á hreinu. Á þessum for­sendum tóku mörg hund­ruð öryrkjar út sér­eign­ar­sparnað í góðri trú. Fólk gerði þetta af ýmsum ástæðum,“ sagði hann.

Tölvan segir nei

Jóhann Páll sagð­ist hafa talað við konu sem hefði neitað sér um tann­lækn­is­þjón­ustu í mörg ár, nauð­syn­legar tann­við­gerðir, en hún hefði loks­ins greitt fyrir þær með því að taka út sér­eign­ar­sparn­að­inn sinn – eftir að stjórn­völd hefðu í raun hvatt fólk til að gera það í COVID.

„Hvað gerð­ist svo?“ spurði hann. „Jú, þessar greiðslur frá Trygg­inga­stofnun, sér­staka fram­færslu­upp­bótin, voru samt skertar. Þetta var bjarn­ar­greiði. 300 öryrkjar lentu í þessu í fyrra. Mörgum þeirra hefur verið neitað um leið­rétt­ingu á þeim for­sendum að vörslu­að­ilar sparn­að­ar­ins hafi ekki skráð úttekt­ina í réttan reit í skatt­fram­talið og við því sé bara ekk­ert að gera. Svo vísa stofn­anir hver á aðra. Tölvan segir nei.“

Þing­mað­ur­inn hefur lagt fram fyr­ir­spurnir til félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­sonar, um þetta mál og krafið þá skýr­inga á því hvort, hvernig og hvenær verði leyst úr þessu. „Afstaða okkar í Sam­fylk­ing­unni er skýr. Íslenska ríkið á að skila þessum pen­ingum. Íslenska ríkið á að skila þessum pen­ingum strax,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár