Hugsi eftir fundinn með Bankasýslunni – „Við þurfum væntanlega að endurskoða lögin“

Formaður fjár­laga­nefndar segir það áhyggju­efni að Banka­sýsla rík­is­ins hafi ekki getað aflað upp­lýs­inga um fjár­festa sem gerðu til­boð í bréfin í Íslands­banka og höfðu jafn­vel skuld­sett sig fyrir kaupum.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, er formaður fjárlaganefndar.
Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, er for­maður fjár­laga­nefndar. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir þing­maður Vinstri grænna og for­maður fjár­laga­nefndar segir að fund­ur­inn með Banka­sýsl­unni í morgun hafi verið upp­lýsandi á margan hátt. En þrátt fyrir það liggi ekki ennþá fyrir hvort, í gegnum allt þetta ferli, heil­brigðir við­skipta­hættir hafi verið við­hafðir, hvort reglur hafi verið brotnar ein­hvers staðar á leið­inni eða hvað.

Þetta kom fram í máli hennar undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Hún benti á í upp­hafi ræðu sinnar að Banka­sýslan hefði sann­ar­lega verið stofnuð á sínum tíma til að vera í arms­lengd frá fram­kvæmd­ar­vald­inu og þegar henni er treyst fyrir sölu á eign eins og Íslands­banka væri auð­vitað mjög mik­il­vægt að fólk upp­lifði að því væri hægt að treysta.

„Það er alveg aug­ljóst að það hefur ekki gengið. Upp­lýs­inga­gjöfin hefði þurft að vera mun ítar­legri og betri til okkar allra. Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans er að skoða hátt­semi þeirra fimm inn­lendu sölu­að­ila sem Banka­sýslan valdi til að vinna að útboð­inu á Íslands­banka. Þar er m.a. undir hvort um hags­muna­á­rekstra sé að ræða, hvort starfs­menn sumra sölu­ráð­gjafa hafi sjálfir tekið þátt í útboð­inu eða ein­hverjir nákomnir. Þetta eru stórar spurn­ingar sem við þurfum að fá svör við.

En við verðum líka að horfast í augu við það að við þurfum vænt­an­lega að end­ur­skoða lögin og það liggur þegar fyrir að end­ur­skoða aðkomu Alþingis að eign­ar­haldi rík­is­ins á fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Í morgun fannst mér það áhyggju­efni að Banka­sýslan gæti ekki aflað upp­lýs­inga um fjár­festa sem gerðu til­boð í bréfin og höfðu jafn­vel skuld­sett sig fyrir kaup­unum. Það eitt og sér vekur líka upp spurn­ingar um það hvort breyta þurfi lög­unum. Við þurfum alla vega að hafa þetta í huga að mínu mati,“ sagði hún.

Fjármálaráðherra mætir fyrir nefndina á föstudaginn

Bjarkey sagð­ist einnig vera hugsi eftir þennan fund, ekki síst varð­andi valið á til­boðs­gjöfum af því að í reglu­gerð ESB væri kveðið á um tvo fjár­festa, það er A- og B-fag­fjár­festa og í ljósi alls sem upp hefði komið mætti velta því fyrir sér hvort ekki væri skyn­sam­legt að hafa þar ein­ungis þá sem falla undir A-fjár­festa. Það hefði tak­markað minni spá­menn.

„Það hefði hugs­an­lega getað haft áhrif á verð, um það ætla ég ekki að spá, en ég held að það hefði verið heppi­legra. Við í fjár­laga­nefnd höldum áfram að leita upp­lýs­inga í mál­inu og um aðkomu allra í því sam­hengi. Á föstu­dag­inn mun fjár­mála­ráð­herra mæta fyrir nefnd­ina og sitja fyrir svörum og svo þegar nið­ur­staða Rík­is­end­ur­skoð­unar og Fjár­mála­eft­ir­lits liggur fyrir er ekki ólík­legt að nefndin taki málið fyrir aftur,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár