Grikkir óska formlega eftir neyðaraðstoð - Tsipras mætti á Evrópuþingið

Grísk stjórn­völd óskuðu í dag formlega eftir fjárhags­aðstoð í gegnum sérstakan neyðar­lánasjóð evru­ríkjanna, hið svokallaða Evrópska stöðugleika­kerfi. Endurnýjuð, formleg ósk Grikkja var mikilvæg fyrir næstu skref í lausn að miklum efnahags­vanda ríkisins en leiðtogar annarra evruríkja hafa talað opinskátt um að framtíð Grikk­lands í evru­samstarfinu hangi á bláþræði og ráðist mögulega á næstu dögum. Vonir stóðu til að Grikkir myndu leggja fram ný drög að samkomu­lagi milli þeirra og kröfuhafa í gær. Ekkert varð að því en búist er við að nýtt tilboð verði lagt fram á föstudag og rætt á leiðtoga­fundi evru­ríkjanna um helgina. Hætt var við fund fjármála­ráðherra evru­ríkjanna sem átti að fara fram í dag.

Seðla­banki Evrópu hefur varað grísk stjórn­völd við því að náist ekki samkomulag næst­komandi sunnudag þá sé bankinn nauð­beygður til þess að hætta fjárhags­saðstoð til grískra banka. Seðla­banki Evrópu hefur á síðustu mánuðum lagt um 89 milljarða evra í gríska fjármála­kerfið til þess að koma í veg fyrir bankahrun. Aðstoð seðla­bankans til handa Grikkjum hefur verið af skornum skammti undan­farnar vikur, á meðan ekki hefur náðst samkomulag við kröfuhafa um eftirgjöf og endur­greiðslu skulda gríska ríkisins.

Orðaskipti á Evrópuþinginu

Alexis Tsipras, forsætis­ráðherra Grikk­lands, talaði á Evrópu­þinginu í Strasbourg í morgun, auk Donald Tusk, forseta ESB og Jean-Claude Junker, forseta framkvæmda­stjórnar ESB. Viðbrögð við komu Tsipras í Evrópu­þingið voru blendin en hann sagði meðal annars trúa því að ríkis­stjórn hans gæti mætt skuld­bindingum sínum, bæði Grikk­landi og evru­svæðinu í hag. Vilji Tsipras og ríkis­stjórnar hans er að halda áfram evru­samstarfinu. Tusk talaði sem fyrr fyrir samkomu­lagi milli deilu­aðila og sagði meðal annars að án þess stæði Grikkland frammi fyrir banka­krísu og mögulegum banka­gjaldþrotum. Á því myndu allir tapa.


Samkvæmt umfjöllun The Guardian urðu nokkuð hörð orða­skipti milli þingmanna Evrópu­þingsins í kjölfarið, meðal annars vegna hryðjuverka­ummæla fyrrum fjármála­ráðherra Grikk­lands. Þá hvatti hinn breski Nigel Farage, leiðtogi UKIP hreyfingarinnar, Tsipras til þess að yfirgefa evru­samstarfið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár