Þorsteinn Már hættir í stjórn 14 fyrirtækja

Fyrr­ver­andi for­stjóri Samherja er búinn að segja sig úr stjórnum alls 14 fyr­ir­tækja í Bret­landi. Hann hefur nú sagt sig úr að minnsta kosti 17 stjórnum auk þess sem hann hefur stigið til hliðar sem for­stjóri.

Þor­steinn Már Bald­vins­son, einn aðal­eig­enda Samherja og fyrr­ver­andi for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, hefur sagt sig úr stjórnum alls 14 fyr­ir­tækja í Bret­landi.

Frá þessu er greint á vef Fiski­frétta. Þar segir að um sé að ræða eft­ir­far­andi fyr­ir­tæki: Onward Fishing Company Limited, Boyd Line Limited, Lionman Limited, Uk Fis­heries Limited, Marr Mana­gement Limited, J. Marr (Fishing) Limited, Kirkella Limited, Jacinta Limited, Armana Limited, Collins (Seafoods) Limited, Seagold Limited, Wraggs Seafoods Limited, Onward Invest­ment Limited og Collins Seafoods Richmond Limited.

Þegar Fiski­fréttir könn­uðu stöðu mála hjá bresku fyr­ir­tækja­skránni fyrir viku síðan var Þor­steinn Már enn stjórn­andi í öllum fyr­ir­tækj­unum.

Ástæða þess að Þor­steinn Már stígur til hliðar er Sam­herj­a­málið, en fyrir tveimur vikum opin­ber­uðu Kveikur og Stundin að Samherji hefði greitt ætl­aðar mútur, stundað meint pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu í tengslum við veiðar sam­stæð­unnar í Namibíu. Samherji er meðal ann­ars sagður hafa greitt alls 1,4 millj­arða króna í mútur hið minnsta fyrir aðgengi að ódýrum kvóta. Þiggj­end­urnir voru tveir ráð­herrar í Namibíu, sem báðir hafa sagt af sér, og tveir aðrir ein­stak­lingar tengdir þeim.

Þor­steinn Már, sem var sagður vera beinn þátt­tak­andi í öllum aðgerðum Samherja í mál­inu, steig til hliðar sem for­stjóri Samherja skömmu eftir opin­ber­un­ina og hefur síðan þá einnig farið úr stjórnum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sem Samherji á stóran hlut í í Færeyjum, Noregi og Íslandi.

Greint var frá því fyrr í dag að breska versl­un­ar­keðjan Sains­bury´s kaupir ekki lengur fros­inn fisk af dótt­ur­fé­lagi Sam­herja í Bret­landi. Ákvörðun um að slíta því við­skipta­sam­bandi var þó tekin áður en að Kveikur og Stundin opin­ber­uðu meintar mútu­greiðsl­ur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu Sam­herja í tengslum við veiðar fyr­ir­tæk­is­ins í Namib­íu.

Frá þessu er greint á frétta­síð­unni Undercurrent News sem sér­hæfir sig í fréttum af sjáv­ar­út­vegs­mál­um. Þar kemur enn fremur að Marks and Spencer (M&S), hinn stóra versl­un­ar­keðjan sem hefur keypt fisk af starf­semi Ice Fresh Seafood, dótt­ur­fé­lags Sam­herja, í Grimsby, fylgist mjög vel með þróun mála í mútu­mál­inu.

Rannsókn stendur yfir á málum tengdum Samherja í Namibíu, Noregi og á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár