Lilja: Fjármála- og efnahagsráðherra þegar byrjaður að axla ábyrgð

Við­skipta­ráð­herra telur að Bjarni Bene­dikts­son sé þegar byrj­aður að axla ábyrgð á söl­unni á Íslands­banka með því að óska eftir því að Rík­is­end­ur­skoðun skoði málið.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Lilja D. Alfreðs­dóttir menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra segir að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra hafi einnig haft áhyggjur af fram­kvæmd sölu rík­is­ins á hlut í Íslands­banka í mars síð­ast­liðnum. Hún segir jafn­framt að Bjarni sé nú þegar far­inn að bera ábyrgð á mál­inu með því að óska eftir því að Rík­is­end­ur­skoðun skoði málið.

Þetta kom fram í máli hennar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Halldóra Mogensen þing­flokks­for­maður Pírata spurði hana hvort hinir ráð­herr­arnir hefðu tekið hana alvar­lega þegar hún viðr­aði áhyggjur sínar á fundum ráð­herra­nefndar um efna­hags­mál.

Halldóra hóf fyr­ir­spurn sína á því að segja að umræðan um ábyrgð og traust hefði verið hávær síð­ustu daga. Ábyrgð í stjórn­málum væri grund­völlur trausts og traust almenn­ings væri for­senda stöð­ug­leika.

„Traustið er límið sem heldur sam­fé­lag­inu saman. Þetta held ég að hæst­virtur ráð­herra viti vel og henni sé umhugað um að traust ríki um störf hennar og rík­is­stjórn­ar­innar. En þrátt fyrir þetta þá virð­ast stjórn­ar­lið­arnir flestir stað­ráðnir í því að firra fjár­mála­ráð­herra ábyrgð, ábyrgð sem maður hefði haldið að ætti að vera veiga­mikið atriði í máli þar sem traust almenn­ings er í húfi. Í kjöl­far banka­söl­unnar kom þó í ljós að ekki hefði ríkt ein­hugur innan rík­is­stjórn­ar­innar um fyr­ir­komu­lag útboðs­ins,“ sagði hún.

Rifjaði Halldóra upp að Lilja hefði sagt í fjöl­miðla­við­tölum að á fundi ráð­herra­nefndar um efna­hags­mál hefði hún gagn­rýnt fyr­ir­komu­lagið, til dæmis á þeim for­sendum að gæði fram­tíð­ar­eigna ættu að fá for­gang fram yfir verð og að vanda ætti sér­stak­lega til verka í ljósi hruns­ins.

„Við­skipta­ráð­herra virð­ist hafa verið sann­spá því afar margt fór úrskeiðis við þessa sölu. Við seldum brösk­urum með vafa­sama for­tíð bréfin á afslætti, inn­herjar og starfs­menn Íslands­banka fengu aðgang að við­skipt­unum, sölu­að­ilar fengu sjálfir að kaupa, faðir fjár­mála­ráð­herra tók þátt og svo mætti lengi telja,“ sagði Halldóra og bætti því við að aðfinnslur sem við­skipta­ráð­herra flagg­aði í ráð­herra­nefnd­inni væru mik­il­vægar, sér­stak­lega í ljósi þess að ráð­herra­nefnd­inni væri ætlað að vera vett­vangur sam­ráðs og sam­ræm­ingar við end­ur­skoðun fjár­mála­kerf­is­ins.

„Aðkoma og athuga­semdir við­skipta­ráð­herra hljóta því að vega þungt í allri ákvarð­ana­töku,“ sagði hún og spurði hvernig Katrín og Bjarni hefðu brugð­ist við gagn­rýnum sjón­ar­miðum Lilju í ráð­herra­nefnd­inni. „Voru þau tekin alvar­lega? Hvers vegna var ekki tekið mark á rétt­mætum áhyggjum og for­spá við­skipta­ráð­herra?“ spurði hún.

Mikilvægt að vanda sig – og huga að mikilvægi traustsins

Lilja svar­aði og sagði að hún væri henni hjart­an­lega sam­mála um traustið. „Traust er lík­lega eitt mik­il­væg­asta og mesta hreyfi­afl sam­fé­laga, það er ef ekki er traust er mjög erfitt að vinna að fram­fara­málum. Þetta á við um að það þarf að ríkja traust innan rík­is­stjórna, það þarf að vera traust hér inni í þing­sal og það þarf að ríkja gott traust svo við getum unnið saman. Við getum líka litið til þeirra sam­fé­laga þar sem ríkir lítið traust. Þeim gengur bara frekar illa.“

Þannig væri það hár­rétt hjá Halldóru að traustið væri afar mik­il­vægt.

„Ég get upp­lýst þingið um að þau höfðu líka þessar áhyggjur. Það var þannig að það kemur til­laga frá Banka­sýslu rík­is­ins um að þessi aðferð sé til þess fallin að hámarka verð á þess­ari eign og þessi aðferð sé sú sem sé alls staðar beitt um allan heim. Ég verð bara að við­ur­kenna það að ég hafði ákveðnar efa­semdir um þetta, sér­stak­lega í ljósi þess að hér varð risa­stórt fjár­mála­hrun og traustið í íslensku sam­fé­lagi fór. Það er gríð­ar­lega alvar­legt og þús­undir fjöl­skyldna misstu heim­ili sín og áttu um mjög sárt að binda. Þess vegna var afskap­lega mik­il­vægt að við myndum vanda okkur og huga að mik­il­vægi trausts­ins,“ sagði Lilja.

Hvernig á fjármálaráðherra að axla ábyrgð?

Halldóra kom aftur í pontu og sagði að það væri áhuga­vert að heyra við­skipta­ráð­herra segja að fjár­mála­ráð­herra hefði deilt áhyggjum hennar af því ferli sem var ákveðið að fara í.

„Þessi til­laga Banka­sýsl­unnar, það var ákveðið að fara þá leið þrátt fyrir áhyggjur allra sem sitja í þessum hóp, þess­ari ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál. Nú voru fleiri en ein til­laga. Það hlýtur að sæta furðu að ákvörðun hafi verið tekin um að fara þessa leið á meðan allir þrír ráð­herr­arnir höfðu áhyggjur af því og nið­ur­stöð­unni af því,“ sagði hún og vís­aði í við­tal við Morg­un­blaðið þar sem Lilja benti „rétti­lega á“ að póli­tíska ábyrgðin lægi vænt­an­lega hjá þeim stjórn­mála­mönnum sem ákvarð­an­irnar tóku, að ekki væri hægt að skella skuld­inni alfarið á stjórn­endur Banka­sýsl­unnar.

Halldóra spurði Lilju hvernig fjár­mála­ráð­herra, sem hefði valið að fara þessa leið þrátt fyrir áhyggjur sínar og ann­arra ráð­herra sem sátu í ráð­herra­nefnd, bæri að axla ábyrgð á nið­ur­stöð­unni af sínum ákvörð­unum.

„Við öll tökum þetta auðvitað til okkar“

Ráð­herr­ann svar­aði í annað sinn og sagði að sú umræða sem hefði átt sér stað í þing­sal og hjá stjórn­ar­and­stöð­unni, og þau sterku við­brögð sem væru við þess­ari sölu, væri einmitt dæmi um það hversu upp­lýst íslenskt sam­fé­lag væri og að ráð­herra­nefndin hefði jafn­vel van­metið hversu stutt væri frá fjár­mála­hrun­inu.

„Ég tel að við öll tökum þetta auð­vitað til okkar,“ sagði hún.

Hún sagði að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra væri þegar byrj­aður að axla ábyrgð með því að óska eftir því að Rík­is­end­ur­skoðun skoði málið. „Við sjáum að Seðla­banki Íslands fer strax inn í málið og er að skoða hvort eitt­hvað hafi farið úrskeiðis er varðar sölu og ein­staka aðila. Það hvarflar ekki að mér að fara eitt­hvað nánar út í það fyrr en ég sé hvað kemur út úr þeirri rann­sókn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár