Umdeildasta snjallsímaforrit heims

Stundum getur verið algjört helvíti að fá leigubíl í París. Það er vesen að hringja, það er erfitt að fara út á götu og góma bíl; þeir eru oft lausir en stoppa samt ekki fyrir manni. Leigu­bílarnir eru of fáir, ferða­mennirnir of margir eða eitthvað. Stundum bara skil ég ekki franska kerfið. Margir þeirra taka ekki greiðslu­kort, svo eru leigu­bílstjórarnir oftar en ekki pirraðir, fúlir og tala enga ensku.

Þess vegna kom það fáum á óvart að netþjónustan og smáforritið Uber skyldi slá í gegn í París, en það gerir notendum kleift að redda sér fari með einfaldari og ódýrari hætti. Forritið leitar uppi Uber-bíl í nágrenninu sem er kominn til þín innan stundar. Samt er allt brjálað. Sérstak­lega í París, en þar hafa komið upp óeirðir og áflog undarfarna mánuði.

Óeirðir í París


Söng­konan og rokkekkjan Courtney Love er ein af þeim sem notar Uber á ferða­lögum sínum og lenti nán­ast í lífs­hættu í París í síð­ustu viku á leið sinni út á flug­völl þegar æstir leigu­bíl­stjórar réð­ust að Uber-bíl hennar með bar­eflum. Hún tístaði á Twitter um þetta allt saman og sagð­ist örugg­ari í Bagdad en í París. „Hvar er lög­reglan?“ tístaði hún í mik­illi örvænt­ingu þegar rúður voru brotnar, bíll­inn beyglaður og brot­inn.

Enn og aftur kom til átaka í París milli óeirða­lögreglu og leigu­bílstjóra út af Uber. Þeir lokuðu aðgangi að lestar­stöðvum og flug­völlum, götum og hrað­brautum. Brenndu hjólbarða, réðust á frétta­menn og tókust á við lögreglu­menn í miklu stíði þar sem táragas og kylfur dönsuðu í loftinu. Franskir leigu­bílstjórar þefuðu uppi hundruð Uber-bíla og lögðu í rúst.

Já, þeir kunna enn að mótmæla þarna í París! Nú voru leigu­bílstjórarnir að mótmæla Uber sem þeir segja ólöglegt, en að yfirvöld geri ekkert til þess að sporna við því. Þótt þeir anni varla eftir­spurn á sumrin (París er vinsælasti ferðamanna­staður heims) þá segja þeir Uber vera grafa undan tilvist sinni.

Þetta olli borgar­búum og mörgum ferða­mönnum tölu­verðum óþægindum, margir misstu af flugi eða lest, og þess vegna virðast fáir hafa samúð með leigu­bílstjórum. Sumir segjast jafnvel frekar nota Uber eftir öll þessi læti.

Frá nýlegum óeirðum í París vegna Uber. Hér hafa franskir leigu­bílstjórar velt við Uber-bíl. Mynd: EPA

Löglegt eða ólöglegt?


Sama er uppi á ten­ingnum um allan heim. Leigu­bíl­stjórar eru fúlir út af Uber. Fyr­ir­tækið er starf­rækt í Asíu, Evrópu, Ástralíu og Ameríku. Það var stofnað í San Fransisco og for­stjór­inn, Travis Kalanick, er með fjöl­mörg kæru­mál á bak­inu. Leigu­bíl­stjórar og leigu­bíla­fyr­ir­tæki eru auð­vitað hundóá­nægð með það að þurfa að greiða him­inhá gjöld fyrir atvinnu- og starfs­leyfi, akst­urs­gjöld, taka sér­stök próf og upp­fylla ýmis­konar örygg­is­á­kvæði á meðan Uber-bíl­stjórar sleppa mest megnis við það. Þetta sé ójafn leikur.

Frá nýlegum óeirðum í París vegna Uber. Hér hafa franskir leigubílstjórar velt við Uber-bíl. Mynd: EPA
Frá nýlegum óeirðum í París vegna Uber. Hér hafa franskir leigu­bíl­stjórar velt við Uber-bíl. Mynd: EPA

Uber hefur gert samninga við marga bílstjóra og smærri leigubíla­fyrirtæki sem sinna þjónustunni og keyra um á sérstökum Uber-bílum. Þeir þurfa vissulega að uppfylla ákveðin skilyrði en falla samt ekki undir sama hatt og venju­legir leigu­bílar. Allar greiðslur eru rafrænar á netinu og ýmsir saka því Uber um að stunda svarta og algjör­lega ólöglega starfsemi. Þetta sé leigubíla­fyrirtæki sem brjóti allar reglur.

Samskipti við frönsk yfirvöld er ein löng laga­flækja. Um áramótin var gefin út sú tilskipun að Uber væri með öllu ólöglegt í Frakk­landi. Uber-bílstjórar hafa verið hand­teknir og lögreglan hefur gert rassíu á skrif­stofur fyrir­tækisins í París. Samt sem áður starfar Uber; það er auðvitað mun ódýrara að panta sér einn Uber en leigubíl. Sama er að gerast í London þar sem Uber hefur slegið í gegn.

Uber virðist vera á gráu svæði þegar kemur að lögum. Það er auðvitað alls ekki bannað að þiggja eða bjóða far; enginn lög geta í raun bannað fólki að þiggja þóknun eða deila kostnaði þegar kemur að akstri. Ágreinungurinn snýst um það hvort Uber sé leigubíla­fyrirtæki eða ekki. Forsvars­menn fyrir­tækisins neita því. Þetta sé frekar samvinnu­fyrirtæki. Uber hikar því ekki við að halda áfram þrátt fyrir handtökur, árásir og fleira. Dómstólar hafa heldur ekki útkljáð þetta mál endanlega – það er enn lagaleg óvissa um þetta allt saman.

Travis Kalanick, forstjóri Uber. Mynd: EPA

Heimurinn breytist


Vegna óeirð­anna í síð­ustu viku í París sendi Uber frá sér til­kynn­ingu og sagð­ist harma árásir og ofbeldi. Það hafi verið sorg­legt að fylgj­ast með slíku. Um hálf milljón manns notar Uber að stað­aldri í Frakk­landi. Uber virð­ist því vera komið til þess að vera – hvað sem leigu­bíl­stjórar eða yfir­völd gera.

Travis Kalanick, forstjóri Uber. Mynd: EPA
Travis Kalanick, for­stjóri Uber. Mynd: EPA

Fyrir­tækið vill gera allt til þess að tryggja öryggi farþega og þess vegna biðlar það til mótmælenda að reyna að forðast allt ofbeldi. Það segist samt skilja reiði leigu­bílstjóranna á tímum hækkandi atvinnu­leysis. Uber er nýr veruleiki, nýtt tækifæri fyrir alla til þess að taka upp hagkvæmara og betra fyrir­komulag; bæði fyrir farþega og líka bílstjóra.

Uber er bandarískt snjall­símaforrit, bandarísk uppfinning. Höfuð­stöðvarnar eru í San Fransisco. Hugmyndin er í samræmi við hippa­hugsjónir borgarinnar – að reyna að minnka bíla­umferð og mengun, auk lífsgæði og minnka eyðslu. Uber starfar nú í 58 löndum í 300 borgum um allan heim. Margir hafa stælt Uber og til eru ýmiskonar snjall­símaforrit sem sinna sömu þjónustu. Þetta hefur verið kallað „Uber-væðingin“ sem er á mikilli siglingu um allan heim. Þó að Uber sé fimma ára sprota­fyrirtæki og bannað víða, er samt talið að veltan á þessu ári verði í kringum 10 milljarða dollara. Þetta er angi af byltingu sem gengur út á samvinnu-hugsjón; að fólk deili bílum, húsum, tækjum og jafnvel mat – allt í gegnum snjall­símatæknina sem tengir fólk saman.

Hugmyndin fæddist í París


Það er kald­hæðn­is­leg stað­reynd í tengslum við öll þessi mót­mæli að hug­myndin að Uber fædd­ist í París þegar for­stjór­inn, Travis, var á ráð­stefnu 2008 og lenti í vand­ræðum með að ná í leigu­bíl. Þegar hann var loks­ins kom­inn aftur heim til sín í Síli­kondal­inn, hófst hann handa við að þróa for­ritið og hafa sam­band við fjár­festa.

París var síðan fyrsta borg utan Banda­ríkjanna þar sem Uber kom á markað 2011. Eftir að starfsemi fyrir­tækisins var bönnuð í Frakk­landi kom útspilið UberPool í nóvember 2014 með ögn breyttari áherslum. Í síðustu viku voru tveir helstu yfirmenn Uber í Frakk­landi hand­teknir af lögreglunni sakaðir um að stunda ólöglega og hættulega starfsemi – bæði fyrir umferð og almenna borgara.

Mótmæli, óeirðir, ákærur, handtökur og fleira gera því Uber að umdeildasta snjall­símaforriti heims.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár