„Við erum einfaldlega að tala um réttlæti“

Þing­maður Við­reisnar skorar á dóms­mála­ráð­herra og rík­is­stjórn­ina að stytta máls­með­ferð­ar­tíma í dóms­málum. Hún bendir á að það sé stórt skref að stíga fram og leggja fram kæru í kyn­ferð­is­brota­málum – og að biðin eftir mála­lokum sé þung­bær og kvíða­vald­andi.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

„Öll þekkjum við þann veru­leika að lágt hlut­fall kyn­ferð­is­brota­mála ratar fyrir dóm. Að það er stórt skref að stíga fram og leggja fram kæru. Að biðin eftir mála­lokum er þung­bær og kvíða­vald­andi. Og þá má þetta ekki bara að ger­ast að svona fari.“

Þetta sagði Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar, undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Hún skorar á dóms­mála­ráð­herra og rík­is­stjórn­ina að gera betur. „Ekki af því að við séum endi­lega að tala fyrir harðri refsipóli­tík, heldur vegna þess að við erum ein­fald­lega að tala um rétt­læti. Málið snýst um rétt­læti.“

Þorbjörg Sigríður sagði að því miður væru dómar í kyn­ferð­is­brota­málum reglu­lega mild­aðir vegna þess að máls­með­ferð­ar­tími hefði þótt of langur. Í ein­hverjum til­vikum hefði máls­með­ferð­ar­tími orðið til þess að dómar fyrir þessi alvar­legu brot væru alfarið skil­orðs­bundnir.

Gagnrýnin beinist að stjórnvöldum

„Við ræðum mikið um inn­viði hér í þessum sal. Og mig langar til að ræða inn­viði. Og rétt­læti. Löggæsla, ákæru­vald og dóm­stólar eru grunn­stoðir og mik­il­vægir inn­viðir, þessar stofn­anir sem almenn­ingur hefur til að leita réttar síns. Það eru þess vegna hags­munir okkar allra að þessar stofn­anir séu bæði fag­legar og skjót­virkar,“ sagði hún.

Gagnrýni hennar beind­ist ekki að dóm­stólum eða ákæru­valdi. „Dóm­stólar dæma út frá þeirri reglu að verði máls­með­ferð óhóf­lega löng af ástæðum sem sak­born­ingi er ekki um kennt, þá geti það haft áhrif á refs­ingu. Þannig eru leik­regl­urnar. Ákæru­valdið býr við þær aðstæður að mála­fjöldi eykst ár frá ári en það sama gildir um ekki um fjölda starfs­manna. Nú liggur til dæmis fyrir að málum hjá ákæru­vald­inu fjölg­aði um 40 pró­sent á síð­asta ári. Þess vegna þarf að styrkja þessa inn­viði með fleiri starfs­kröftum. Mér sýn­ist hins vegar sem ekki sé gert ráð fyrir neinni sér­stakri aukn­ingu hér.

Gagnrýni mín bein­ist að stjórn­völdum sem gera ekki betur gagn­vart brota­þolum en þetta,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár