Leggja fram frumvarp um vernd uppljóstrara

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum í morgun að frum­varp for­sæt­is­ráð­herra til laga um vernd upp­ljóstr­ara verði lagt fram á Alþingi sem stjórn­ar­frum­varp.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum í morgun að frum­varp Katrínar Jak­obs­dóttur, for­sæt­is­ráð­herra, til laga um vernd upp­ljóstr­ara verði lagt fram á Alþingi sem stjórn­ar­frum­varp.

Þetta kemur fram í vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Markmið frum­varps­ins er að á Íslandi gildi skýr lög­gjöf um vernd upp­ljóstr­ara sem taki mið af ábend­ingum alþjóða­stofn­ana og for­dæmum þeirra nágranna­ríkja sem fela í sér bestu fram­kvæmd­ina á þessu sviði.

Frum­varpið var upp­haf­lega samið af nefnd um umbætur á lög­gjöf á sviði tján­ingar-, fjöl­miðla- og upp­lýs­inga­frelsis sem for­sæt­is­ráð­herra skip­aði þann 16. mars 2018. Ákvæði þess gilda um starfs­menn sem greina í góðri trú frá upp­lýs­ingum eða miðla gögnum um brot á lögum eða aðra ámæl­is­verða hátt­semi í starf­semi vinnu­veit­enda þeirra.

Í frum­varp­inu er greint á milli innri og ytri upp­ljóstr­unar og miðað við að hið síð­ar­nefnda sé jafnan ekki heim­ilt nema hið fyrr­nefnda hafi verið reynt til þrautar og um sé að ræða brot sem varðar fang­els­is­refs­ingu eða í húfi séu afar brýnir almanna­hags­munir.

Í frum­varp­inu er kveðið á um að miðlun upp­lýs­inga eða gagna, að upp­fylltum skil­yrðum frum­varps­ins, telj­ist ekki brot á þagnar- eða trún­að­ar­skyldu starfs­manns, leggi hvorki refsi- né skaða­bóta­byrgð á hann og geti ekki heldur leitt til stjórn­sýslu­við­ur­laga eða íþyngj­andi úrræða að starfs­manna­rétti. Þá er lagt sér­stakt bann við því að láta hvern þann sæta órétt­látri með­ferð sem miðlað hefur upp­lýs­ingum eða gögnum sam­kvæmt fram­an­sögðu. Lögð er sönn­un­ar­byrði á atvinnu­rek­anda á þann hátt að ef líkur eru leiddar að órétt­látri með­ferð skal hann sýna fram á að sú sé ekki raunin og greiða skaða­bætur ef það tekst ekki.

Mælt er fyrir um að veita skuli starfs­mann­inum gjaf­sókn komi til ágrein­ings fyrir dómi um það hvort miðlun hans á gögnum eða upp­lýs­ingum hafi sam­rýmst skil­yrðum frum­varps­ins.

Loks er lagt til að lög­festar verði heim­ildir til að greina rík­is­end­ur­skoð­anda og Vinnu­eft­ir­liti rík­is­ins frá upp­lýs­ingum, sam­bæri­legar þeirri heim­ild sem nú er að finna í 18. grein laga um umboðs­mann Alþingis, sem bætt­ist við lögin árið 2018.

Við­horf til upp­ljóstrana í atvinnu­lífi breyst

Bent var á í minn­is­blaði sem starfs­hópur um efl­ingu trausts í stjórn­málum og stjórn­sýslu sendi til for­sæt­is­ráð­herra þann 12. apríl árið 2018 að á síð­ustu ára­tugum hefði við­horf til upp­ljóstr­ara og upp­ljóstrana í atvinnu­lífi og opin­beru lífi breyst tölu­vert. Í stað höf­uð­á­herslu á holl­ustu við vinnu­veit­anda, sam­starfs­fólk og vinnu­stað, hefðu skyldur borg­ar­ans við sam­fé­lagið hlotið meira vægi. Það væri almennt við­ur­kennt að mik­il­vægt er að starfs­fólk fyr­ir­tækja og stofn­ana væri reiðu­búið til að benda á og afhjúpa ólög­lega þætti í starf­semi – og þætti sem fela í sér veru­leg frá­vik frá góðu sið­ferði eða ógna hags­munum almenn­ings og sam­fé­lags­ins með skýrum og óum­deil­an­legum hætti.

Sam­kvæmt minn­is­blað­inu vant­aði hér á landi laga­lega vernd fyrir ein­stak­linga í atvinnu­líf­inu sem koma á fram­færi upp­lýs­ingum af þessu tagi þótt mikil umræða hefði verið um gagn­semi slíkrar laga­setn­ingar á und­an­förnum árum. OECD hefði í til­mælum sínum til íslenskra stjórn­valda mælt sér­stak­lega með slíkum ákvæðum í tengslum við erlend mútu­brot.

Lög af þessu tagi væru lík­leg til að styðja þá sem hafa gert árang­urs­lausar til­raunir til að koma upp­lýs­ingum á fram­færi á sínum starfs­vett­vangi við sam­starfs­fólk og yfir­menn. Vit­neskjan um að sam­fé­lagið mæti þá ein­stak­linga sem eru til­búnir að láta borg­ara­legar skyldur við sam­fé­lagið ganga framar með­virkni gæti til lengri tíma ein­ungis aukið gagn­sæi í stjórn­sýslu, atvinnu­lífi og við­skiptum og leitt til heil­brigð­ari starfs­hátta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár