Leggja til að settar verði nýjar reglur um hagsmunaskráningu þingmanna

Starfs­hópur um efl­ingu trausts í stjórn­málum og stjórn­sýslu sendi minn­is­blað til for­sæt­is­ráð­herra í gær.

Katrín Jakobsdóttir og Jón Ólafsson.
Katrín Jak­obs­dóttir og Jón Ólafsson. Mynd: Bára Huld Beck

Lagt er til að yfir­stjórn Alþingis og for­sæt­is­ráð­herra setji nýjar reglur um hags­muna­skrán­ingu þing­manna sem gildi einnig um ráð­herra sem eru ekki þing­menn og sem taki einnig til skulda, sem og hags­muna nán­ustu fjöl­skyldu.

Þetta kemur fram í minn­is­blaði sem starfs­hópur um efl­ingu trausts í stjórn­málum og stjórn­sýslu sendi til for­sæt­is­ráð­herra í gær.

Jafn­framt er lagt til að séð verði til þess að innra eft­ir­lit þings­ins tryggi að allir þeir sem regl­urnar eiga við um, gefi þessar upp­lýs­ingar reglu­lega og að við­ur­lög séu fyrir hendi sem beita má þá sem gefa rangar eða ófull­nægj­andi upp­lýs­ingar.

Í þriðja lagi er lagt til að við­eig­andi aðilum verði falið að und­ir­búa laga­frum­varp um vernd upp­ljóstr­ara sem tryggi að hið opin­bera veiti þeim sem skýra frá ólög­legu eða sið­lausu athæfi fyr­ir­tækja og stofn­ana laga­lega vernd gegn hvers kyns hefnd­ar­að­gerðum. Stefnt verði að því að leggja frum­varpið fram í upp­hafi þings sem kemur saman haustið 2019. Starfs­hóp­ur­inn lýsir sig reiðu­bú­inn til að aðstoða við gerð frum­varps­ins.

Kröfur aukast

Í minn­is­blað­inu kemur fram að í nágranna­löndum okkar hafi reglur um hags­muna­skrán­ingu ráð­herra, æðstu emb­ætt­is­manna og kjör­inna full­trúa þró­ast í þá átt að gerðar eru meiri kröfur um að þeir sem gegna slíkum störfum veiti upp­lýs­ingar um eigin fjár­hags­mál­efni og nátengdra aðila.

Hér á landi hafa um skeið gilt reglur um hags­muna­skrán­ingu þing­manna og upp­lýs­inga­skyldu ráð­herra. Núgild­andi reglur kveða á um að þing­menn skrái upp­lýs­ingar um laun­aða starf­semi, fjár­hags­legan stuðn­ing, gjafir, utan­lands­ferðir og eft­ir­gjöf eft­ir­stöðva skuldar, eignir og sam­komu­lag við fyrr­ver­andi eða verð­andi vinnu­veit­anda.

Eftirfylgni engin

Bent er á að eft­ir­fylgni með þessum reglum hafi hins vegar verið engin af hálfu þings­ins og þing­mönnum hafi í raun verið í sjálfs­vald sett hvort þeir hlíta þeim. Það sé helst ef fjöl­miðlar hafa farið að graf­ast fyrir um hags­muna­skrán­ing­una að þrýst­ingur skap­ast á þing­menn að fara eftir regl­unum. Ráð­herrar lúti sömu reglum og þing­menn um hags­muna­skrán­ingu jafn­vel þótt þeir sitji ekki á þingi.

Vandinn við núver­andi fyr­ir­komu­lag er tví­þættur, að mati starfs­hóps­ins. Annars vegar varði hann skort á eft­ir­fylgni og almennt form­leysi við að fram­fylgja settum reglum. Hins vegar varði hann regl­urnar sjálfar, því þær þurfa að vera víð­tæk­ari en nú er.

Íslensk stjórnvöld hvött til að setja ítarlegri reglur

Í til­mælum sem fram hafa komið í úttekt­ar­skýrslum GRECO hafa íslensk stjórn­völd verið hvött til að setja ítar­legri reglur og betur útfærðar. Þessi til­mæli eru end­ur­tekin í skýrslu um síð­ustu úttekt GRECO sem fram fór síð­ast­liðið haust en loka­gerð hennar birt­ist í gær.

„Þar er ann­ars vegar bent á að ekki fáist full mynd af fjár­hags­legum tengslum og hags­munum fólks nema skuldir þess séu teknar með í reikn­ing­inn og enn fremur að það sé mik­il­vægt að upp­lýs­ingar um nán­ustu fjöl­skyldu, það er maka og börn á fram­færi, fylgi með. Upp­lýs­ingar um fjár­hag maka og barna þurfa þó ekki nauð­syn­lega vera opnar almenn­ingi. Eins leggur GRECO mikla áherslu á eft­ir­fylgni því ljóst er að eigi reglur af þessu tagi að virka þurfa menn að horfast í augu við að það hafi afleið­ingar, form­legar eða óform­legar, að hlíta þeim ekki,“ segir í minn­is­blað­inu.

Vantar lög um vernd uppljóstrara

Bent er enn fremur á að á síð­ustu ára­tugum hafi við­horf til upp­ljóstr­ara og upp­ljóstrana í atvinnu­lífi og opin­beru lífi breyst tölu­vert. Í stað höf­uð­á­herslu á holl­ustu við vinnu­veit­anda, sam­starfs­fólk og vinnu­stað, hafi skyldur borg­ar­ans við sam­fé­lagið hlotið meira vægi. Það sé almennt við­ur­kennt að mik­il­vægt er að starfs­fólk fyr­ir­tækja og stofn­ana sé reiðu­búið til að benda á og afhjúpa ólög­lega þætti í starf­semi – og þætti sem fela í sér veru­leg frá­vik frá góðu sið­ferði eða ógna hags­munum almenn­ings og sam­fé­lags­ins með skýrum og óum­deil­an­legum hætti.

Samkvæmt minn­is­blað­inu vantar hér á landi laga­lega vernd fyrir ein­stak­linga í atvinnu­líf­inu sem koma á fram­færi upp­lýs­ingum af þessu tagi þótt mikil umræða hafi verið um gagn­semi slíkrar laga­setn­ingar á und­an­förnum árum. OECD hefur í til­mælum sínum til íslenskra stjórn­valda mælt sér­stak­lega með slíkum ákvæðum í tengslum við erlend mútu­brot.

Lög af þessu tagi eru hins vegar lík­leg til að styðja þá sem hafa gert árang­urs­lausar til­raunir til að koma upp­lýs­ingum á fram­færi á sínum starfs­vett­vangi við sam­starfs­fólk og yfir­menn. Vit­neskjan um að sam­fé­lagið meti þá ein­stak­linga sem eru til­búnir að láta borg­ara­legar skyldur við sam­fé­lagið ganga framar með­virkni getur til lengri tíma ein­ungis aukið gagn­sæi í stjórn­sýslu, atvinnu­lífi og við­skiptum og leitt til heil­brigð­ari starfs­hátta.

Starfs­hóp­ur­inn mælir með því að strax verði haf­inn und­ir­bún­ingur að nýju frum­varpi til heild­ar­laga um vernd upp­ljóstr­ara sem tekur til­lit til þeirra umræðna sem áður hafa farið fram á þingi um slík lög og umsagna sem bár­ust í tengslum við fyrri frum­vörp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár