Orkan sem átti að fara í kísilbræðslu í Helguvík nýttist í annað

Ekki var virkjað sér­stak­lega á sínum tíma til að útvega kís­il­ver­inu í Helguvík orku. Lands­virkjun samdi við þáver­andi eig­endur verk­smiðj­unnar um afhend­ingu 35 MW eða 300 gíga­vatt­stunda árlega.

Kísilverksmiðjan í Helguvík hefur ekki verið starfrækt frá haustinu 2017. Félagið sem rak hana varð gjaldþrota árið 2018.
Kís­il­verk­smiðjan í Helguvík hefur ekki verið starf­rækt frá haustinu 2017. Félagið sem rak hana varð gjald­þrota árið 2018. Mynd: Úr frumatsskýrslu

Lands­virkjun afhenti kís­il­ver­inu í Helguvík orku þegar það tók til starfa, en ekki var virkjað sér­stak­lega til að útvega þá orku. Samn­ing­ur­inn kvað á um 35 mega­vött eða 300 gíga­vatt­stundir.

Þetta segir Ragn­hildur Sverr­is­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Lands­virkj­unar. Arion banki, sem á kís­il­verk­smiðj­una í Helguvík, greindi frá því í gær að við­ræðum um mögu­leg kaup PCC á verk­smiðj­unni hefði verið slitið. Samhliða hefði bank­inn sagt upp raf­orku­samn­ingi við Lands­virkjun enda fram­leiðsla kís­ils for­senda samn­ings­ins.

Það er þó ekki þannig að með upp­sögn­inni verði allt í einu 35 MW af orku á lausu í raf­orku­kerfi okkar. „Þau ár sem liðin eru frá því að verk­smiðj­unni var lokað hefur sú orka, sem ann­ars hefði farið til hennar, verið nýtt á annan hátt og verður það áfram,“ segir Ragn­hildur. „Ákvæði um kaup­skyldu kís­il­vers­ins tóku aldrei gildi og því var engin kvöð á Lands­virkjun að hafa til­tæka orku fyrir kís­il­verið, enda ljóst að ef það yrði end­ur­ræst og kallað eftir orkunni yrði aðdrag­andi þess langur.“

Langri áfallasögu senn að ljúka?

Áfalla­saga kís­il­vers­ins í Helguvík er löng og hófst áður en kynt var upp í fyrsta og eina ljós­boga­ofni þess. Skipu­lags­stofnun gaf álit sitt á mati á umhverf­is­á­hrifum 100 þús­und tonna árs­fram­leiðslu félags­ins Stakks­brautar 9 ehf. á kísli í Helguvík í Reykja­nesbæ árið 2013. Umhverf­is­stofnun veitti félag­inu starfs­leyfi rúmu ári síðar. Starfs­leyfið var svo flutt yfir á félagið Sameinað Sílikon hf.

Mann­virki verk­smiðj­unnar voru byggð á árunum 2014-2016. Þegar þau hófu að rísa fóru að renna tvær grímur á íbúa Reykja­nes­bæjar. Áttu húsin virki­lega að vera svona stór og áber­andi? Í mats­skýrsl­unni sagði að verk­smiðjan myndi „varla verða sjá­an­leg frá Keflavík“ og á myndum sem fylgdu litu þau allt öðru­vísi út.

Þegar farið var að graf­ast fyrir um málið kom í ljós að hluti hús­anna er þrettán metrum hærri en mats­skýrslan og deiliskipu­lag gerði ráð fyrir og aðrir hlutar átta metrum hærri. „Mannleg mis­tök“ eru sögð hafa orðið til þess að teikn­ingar sem húsin voru byggð eftir voru stimpl­aðar og þar með sam­þykktar hjá starfs­manni Reykja­nes­bæjar.

Kís­il­verið var gang­sett 11. nóv­em­ber árið 2016 með einum ljós­boga­ofni sem fékk nafnið Ísabella. Fljót­lega fóru íbúar í nágrenn­inu að finna óþef. Þegar í byrjun des­em­ber var slökkt á ofn­inum og til­kynnti Umhverf­is­stofnun Sam­ein­uðu Sílikoni hf. að hann yrði ekki ræstur á ný fyrr en hún hefði metið yfir­stand­andi úrbætur.

Ísabella var óstöðug allt frá upp­hafi og átti ítrekað eftir að hiksta og hósta með til­heyr­andi mengun þar til yfir lauk. Það kom alvar­lega niður á fólki sem bjó í nágrenn­inu sem og bæj­ar­fé­lag­inu er stólað hafði á tekjur frá fyr­ir­tæki sem var orðið gjald­þrota rúmu ári eftir að fyrstu neist­arnir voru bornir að ofn­inum.

Helsti lán­ar­drott­inn fyr­ir­tæk­is­ins, Arion banki, fékk svo að finna fyrir því og end­aði að lokum með verk­smiðj­una í fang­inu. Bankinn hafði allt þar til nú þá stefnu að gera end­ur­bætur á verk­smiðj­unni, auka fram­leiðslu­get­una og selja hana. Skipu­lags­stofnun gaf út álit sitt á umhverf­is­mats­skýrslu bank­ans, þar sem áformuð stækkun í allt að fjóra ljós­boga­ofna var metin, í lok síð­asta árs.

Skömmu eftir að mati á umhverf­is­á­hrifum lauk hófust form­legar við­ræður við PCC, eig­anda kís­il­vers­ins á Bakka, um mögu­leg kaup á verk­smiðj­unni. Þeim hefur eins og fyrr segir nú verið slitið.

Hvað tekur við?

Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, segir að bank­inn telji nú „full­reynt“ að rekin verði kís­il­verk­smiðja í Helguvík. Haldið verður áfram að reyna að selja inn­við­ina en þá til flutn­ings eða til aðila sem finna mun henni nýtt hlut­verk og að þar verði ann­ars konar starf­semi en kís­ilfram­leiðsla. Í til­kynn­ingu bank­ans sagði að við­ræður væru þegar hafnar við nokkra aðila, inn­lenda og erlenda, í þessu sam­bandi.

En í hvaða geirum eru þessir aðilar sem verið er að ræða við og vilja finna inn­við­unum í Helguvík nýtt hlut­verk? Annars konar málm­bræðslu? Eða ein­hverju allt öðru?

„Þær við­ræður eru í raun ekki komnar á þann stað að það sé tíma­bært að ræða hvers eðlis sú starf­semi gæti verið,” segir Haraldur Guðni Eiðsson, for­stöðu­maður sam­skipta­sviðs Arion banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár