Alls 661 óstaðsettir í hús í Reykjavík

Þeim sem eru skráðir óstað­settir í hús í Reykja­vík fjölg­aði um nálægt fjórð­ung í fyrra. Frá byrjun árs 2014 hefur þeim fjölgað um 74 pró­sent.

Óstað­settum í Reykja­vík, þeim sem eru ekki með skráð lög­heim­ili eða býr á göt­unni, fjölg­aði um 74 pró­sent á frá byrjun árs 2014 og fram að síð­ustu ára­mótum. Þeir eru nú 661 tals­ins og hafa aldrei verið fleiri. Í fyrra fjölg­aði þeim um 23,7 pró­sent alls. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Hagstofu Íslands um mann­fjölda eftir byggð­ar­kjörnum.

Íbúum í Reykja­vík hefur fjölgað um 3,7 pró­sent frá byrjun árs 2014 og fram til síð­ustu ára­móta. Alls bjuggu 124.847 manns í höf­uð­borg­inni í byrjun þessa árs sam­kvæmt töl­unum. Á sama tíma­bili fjölg­aði íbúum Hafn­ar­fjarðar um 7,5 pró­sent, íbúum Garða­bæjar um 10,6 pró­sent og íbúum Kópavogs um 13,5 pró­sent.

Flestir búa í 105

Fjöl­menn­asta hverfi borg­ar­innar, sam­kvæmt skil­grein­ingu Hag­stof­unnar, er Vest­ur­bær-Syðri, þar sem búa 10.831. Íbúum þar hefur fjölgað um 3,4 pró­sent frá því í byrjun árs 2014. Næst fjöl­menn­asta hverfið er Efra-Breið­holt. Þar bjuggu 9.481 í upp­hafi árs 2018 og hafði íbúum þar fjölgað um 7,5 pró­sent frá byrjun árs 2014. Í þriðja sæti var Selja­hverfið með 8.502 íbúa. Þar hefur fjölgað um 3,3 pró­sent frá byrjun árs 2014.

Í tölum Hagstofu Íslands er einnig hægt að sjá fjölda íbúa eftir póst­núm­erum. Þar sést að flestir höf­uð­borg­ar­búa búa í póst­núm­eri 105, eða 17.229 tals­ins. Þeim hefur fjölgað um 6,2 pró­sent á þessu sveita­stjórn­ar­kjör­tíma­bili. Innan þess póst­núm­ers er meðal ann­ars að finna Hlíðar, hluta Laug­ar­dals, Álfta­mýri og Múla­hverfið. Póst­núm­erið teygir sig auk þess alla leið niður að Snorra­braut og Norð­ur­mýrin er því einnig innan þess póst­núm­ers.

Næst fjöl­menn­asta póst­núm­erið er 112, eða Graf­ar­vogur. Þar búa 16.931 og íbúum þar hefur fækkað um eitt pró­sent á kjör­tíma­bil­inu.

í þriðja sæti er póst­númer 101, sem nær yfir mið­borg­ina og hluta vest­ur­bæj­ar­ins.

Þar búa 15.692 manns eða tæpu pró­senti færri en bjuggu þar í byrjun árs 2014.

Öll íbúafjölgun vegna útlendinga

Kjarninn hefur áður greint frá því að öll íbúa­fjölgun í Reykja­vík í fyrra var vegna erlendra rík­is­borg­ara sem fluttu til borg­ar­inn­ar. Erlendum rík­is­borg­urum sem búa í höf­uð­borg­inni fjölg­aði um 3.140 í fyrra og eru nú 15.640 tals­ins.

Í þeirri umfjöllun kom einnig fram að erlendum íbúum höf­uð­borg­ar­innar hefur fjölgað um 70 pró­sent frá því í byrjun árs 2012

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár