Sprenging í fjölgun útlendinga í Reykjavík í fyrra

Erlendum rík­is­borg­urum sem búa í Reykja­vík fjölg­aði um 25 pró­sent á árinu 2017. Þeir eru nú 12,4 pró­sent íbúa höf­uð­borg­ar­innar á meðan að útlend­ingar eru fjögur pró­sent íbúa í Garðabæ. Erlendum rík­is­borg­urum fjölg­aði um 41 pró­sent Í Reykja­nesbæ.

Öll íbúa­fjölgun í Reykja­vík í fyrra var vegna erlendra rík­is­borg­ara sem fluttu til borg­ar­innar. Borg­ar­búum fjölg­aði um 2.800 á árinu 2017 og voru 126.100 um nýliðin ára­mót. Erlendum rík­is­borg­urum sem búa í höf­uð­borg­inni fjölg­aði á saman tíma um 3.140 og erum nú 15.640 tals­ins. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofa Íslands birti í byrjun viku.

Þar kemur einnig fram að erlendum íbúum höf­uð­borg­ar­innar hefur fjölgað um 70 pró­sent frá byrjun árs 2012.

Tveir af hverjum þremur á höfuðborgarsvæðinu búa í Reykjavík

Í Reykja­vík bjuggu 9.190 erlendir rík­is­borg­arar í byrjun árs 2012. Þeim fjölg­aði jafnt og þétt næstu ár og í lok árs 2016 voru þeir 12.500. Þá hafði þeim fjölgað um 36 pró­sent á fimm árum.

[links]Í fyrra varð hins vegar spreng­ing. Þá fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum í Reykja­vík um 3.140 tals­ins, eða um 25 pró­sent á einu ári, og eru nú 15.640. Alls fjölg­aði íbúum Reykja­víkur um 2.800 á síð­asta ári og því er ljóst að íslenskum rík­is­borg­urum sem bjuggu í höf­uð­borg­inni fækk­aði á milli ára en öll aukn­ing á íbúa­fjölda er til komin vegna erlendra rík­is­borg­ara sem þar hafa sest að.

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu búa 23.200 erlendir rík­is­borg­ara og þeim fjölg­aði um 4.280 á árinu 2017. Það þýðir að erlendum rík­is­borg­urum sem búa í Kópavogi, á Sel­tjarn­ar­nesi, í Garðabæ, Hafn­ar­firði, Mos­fellsbæ og í Kjósa­hreppi fjölg­aði sam­tals um 1.140 á síð­asta ári. Því er ljóst að tveir af hverjum þremur erlendum rík­is­borg­urum sem sett­ust að á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í fyrra búa í Reykja­vík, en einn þriðji í nágranna­sveit­ar­fé­lög­unum. Það búa 126.100 manns í Reykja­vík en 96.490 sam­tals í öðrum sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

[adspot]Alls eru erlendir rík­is­borg­arar sem búa á Íslandi 37.950 tals­ins. Það þýðir að 41 pró­sent allra erlendra rík­is­borg­ara hér­lendis búa í Reykja­vík og þar eru útlend­ingar 12,4 pró­sent íbúa. Í Garðabæ, því sveit­ar­fé­lagi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem er með lægst hlut­fall erlendra rík­is­borg­ara á meðal íbúa, búa 640 slíkir. Þeir eru sam­tals fjögur pró­sent af íbúum sveit­ar­fé­lags­ins.

41 prósent fjölgun í Reykjanesbæ

Það eru fleiri sveit­ar­fé­lög en Reykja­vík sem finna mjög fyrir fjölgun erlendra rík­is­borg­ara.

Um síð­ustu ára­mót bjuggu 3.650 erlendir rík­is­borg­arar í Reykja­nesbæ. Þeim fjölg­aði um 1.070 á síð­asta ári, eða um 41 pró­sent. Alls búa 16.350 í Reykja­nesbæ, sem þýðir að 22,3 pró­sent íbúa sveit­ar­fé­lags­ins eru erlendir rík­is­borg­arar. Íbúum þess fjölg­aði sam­tals um 1.117 á árinu 2017. 96 pró­sent þeirrar fjölg­unar er vegna erlendra rík­is­borg­ara sem fluttu í sveit­ar­fé­lagið.

[box]Ástæðan er fyrst og síð­ast sú mikla aukn­ing í umsvifum sem orðið hefur á Kefla­vík­ur­flug­velli sem stað­settur er á Suð­ur­nesj­um. Ferða­mönnum sem heim­sækja Íslands hefur endað fjölgað úr um 500 þús­und árið 2010 og í um 2,3 millj­ónir í fyrra, sam­kvæmt spám.

Í nýlegri sam­an­tekt sem unnin var fyrir bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar um stöðu og horfur í sveit­ar­fé­lag­inu, var lögð fram spá um að störfum á Kefla­vík­­­ur­flug­velli myndi fjölga um 2.513 á næstu fjórum árum. Þau þarf að óbreyttu að manna með erlendum rík­­is­­borg­­urum sem flytja hing­að, annað hvort einir eða með fjöl­­skyldum sín­um, í ljósi þess að atvinnu­leysi hér­lendis er sára­lítið og í raun ríkir skortur á vinnu­afli.

Því má búast við að erlendum íbúum Reykja­­nes­bæjar fjölgi um mörg þús­und í nán­­ustu fram­­tíð og verði að minnsta kosti 30 pró­­sent íbúa sveit­­ar­­fé­lags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár