Megi ekki segja hlutina eins og þeir eru

Formaður Við­reisnar segir að rík­is­stjórnin verði að horfast í augu við og taka alvar­lega þær verð­hækk­anir sem framundan séu, háa vexti, verð­bólgu og óvissu sem teng­ist kjara­samn­ingum hausts­ins.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar gerði efna­hags­mál að umtals­efni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Benti hún í upp­hafi ræðu sinnar að tvær fréttir hefðu birst í morgun, önnur var um kynn­ingu fjár­mála­á­ætl­unar stjórn­valda og hin um að verð­bólgan hefði ekki mælst meiri síðan 2010.

„Horfur í verð­lags­þróun hafa því ekki verið sér­lega góðar og spár grein­ing­ar­að­ila, þegar maður fer yfir þær, eru heldur ekki bjart­sýnar. Síðustu mán­uði hefur verð­bólgan hækkað umtals­vert og er nú um 6,7 pró­sent á árs­grund­velli sam­kvæmt nýjum tölum Hag­stof­unnar og það með miklum kostn­aði, eins og við þekkjum, fyrir almenn­ing sem sér fram á hækk­andi greiðslu­byrði lána sinna og er nú nóg fyrir samt síð­ustu vikur, greiðslu­byrði sem er þegar mörgum allt of íþyngj­andi, ekki síst þegar fast­eigna­verð hefur hækkað upp úr öllu valdi sam­hliða þessu,“ sagði hún.

Þor­gerður Katrín sagði að slíkar tölur hefðu ekki sést síðan árið 2010. „Grein­ing­ar­deildir bank­anna spá svo áfram­hald­andi verð­bólgu­hækkun. Þar er gert ráð fyrir hátt í 7 pró­sent verð­bólgu núna næst í júní og verð­hækk­anir á elds­neyti og á fast­eigna­mark­aði eru bara lík­legar til að mála upp enn svart­ari mynd en stjórn­völd þora að við­ur­kenna. Það var eft­ir­tekt­ar­vert að heyra fjár­mála­ráð­herra lýsa verð­bólg­unni á Íslandi. Hún væri minni en í útlöndum þegar hús­næð­islið­ur­inn væri tek­inn út, þessi heima­til­búna bóla okkar Íslend­inga sem ýtir verð­bólg­unni áfram. Það má ekki segja hlut­ina eins og þeir eru.“

Nefndi hún einnig að gert væri ráð fyrir áfram­hald­andi skulda­söfnun til árs­ins 2026, sem ylli miklum áhyggjum, og rík­is­sjóður yrði áfram með halla árið 2027.

„Vaxta­gjöld rík­is­sjóðs eru nú þegar einn stærsti útgjalda­lið­ur­inn og þeir fjár­munir væru að sjálf­sögðu betur nýttir í annað en nákvæm­lega þetta sem nú blasir við. Við þurfum að átta okkur á því að þessi mynd, þessi óvissa sem við búum við, miklar verð­hækk­anir, miklu hærri vextir, verð­bólga núna í hæstu hæðum í langan tíma, sam­hliða því að við stöndum frammi fyrir mik­illi óvissu sem teng­ist kjara­samn­ingum hausts­ins, er eitt­hvað sem rík­is­stjórnin verður að horfast í augu við og taka alvar­lega. Mér finnst miður að sjá ekki fram á þá miklu alvöru í fjár­mála­á­ætl­un­inni sem við munum ræða á næst­unni,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár