Leggj­a enn og aftur fram frum­­varp um refs­ing­ar við tálm­un

Umdeilt tálm­un­ar­frum­varp hefur verið lagt fram á ný á Alþingi.

Sjö þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa lagt fram frum­varp um refs­ingar við tálmun eða tak­mörkun á umgengni. Sam­bæri­legt frum­varp var fyrst lagt fram fyrir nokkrum árum en hlaut ekki afgreiðslu. Þá var það lagt fram að nýju í sept­em­ber á síð­asta ári með breyt­ingum en náði ekki fram að ganga. Fyrri til­raunir vöktu hörð við­brögð og gagn­rýndu margir frum­varpið.

Ef frum­varpið verður sam­þykkt þá varðar það sektum eða fang­elsi allt að fimm árum tálmi for­eldri hinu for­eldr­inu eða öðrum sem eiga umgengn­is­rétt sam­kvæmt úrskurði, dómi, dómsátt for­eldra eða samn­ingi þeirra stað­festum af sýslu­manni að neyta umgengn­is­réttar, eða tak­marki hann. Brot gegn ákvæð­inu sæti aðeins opin­berri rann­sókn að und­an­geng­inni kæru barna­verndar til lög­reglu.

Fyrsti flutn­ings­maður er Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Með honum eru Ásmundur Frið­riks­son, Bryndís Har­alds­dóttir, Jón Gunn­ars­son, Njáll Trausti Frið­berts­son, Óli Björn Kárason og Páll Magn­ús­son, öll þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Segir í grein­ar­gerð­inni með frum­varp­inu að sam­kvæmt barna­lögum og barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna eiga börn rétt á að þekkja og umgang­ast báða for­eldra sína. Í barna­lögum sé sér­stak­lega tekið fram að barn eigi rétt á að umgang­ast með reglu­bundnum hætti það for­eldra sinna sem það býr ekki hjá og þegar for­eldrar búa ekki saman hvíli sú skylda á báðum að grípa til þeirra ráð­staf­ana sem við verði komið til að tryggja að þessi réttur sé virtur. Jafn­framt sé tekið fram að for­eldri sem barn býr ekki hjá eigi í senn rétt og beri skylda til að rækja umgengni við barn sitt. Enn fremur komi fram að for­eldri sem barn býr hjá sé skylt að stuðla að því að barn njóti umgengni við hitt for­eldrið nema hún sé and­stæð hag og þörfum barns­ins að mati dóm­ara eða lög­mælts stjórn­valds. Með umgengni er átt við sam­veru og önnur sam­skipti.

Þá segir jafn­framt í grein­ar­gerð­inni að þrátt fyrir að skýrt sé kveðið á um umgengn­is­skyldur for­eldra, svo sem skyldu þess for­eldris sem barnið býr hjá til að stuðla að umgengni þess við hitt for­eldrið, geti orðið mis­brestur á fram­kvæmd ákvæð­is­ins. Dæmi séu ann­ars vegar um að það for­eldri sem barn býr hjá (lög­heim­il­is­for­eldri) tálmi alfarið eða tak­marki veru­lega að barn umgang­ist hitt for­eldrið (umgengn­is­for­eldri) og hins vegar sé að finna dæmi um að umgengn­is­for­eldri tálmi eða tak­marki umgengni barns við lög­heim­il­is­for­eldri þegar umgengni á að ljúka og for­eldrar fari með því gegn úrskurði, dómi, dómsátt eða samn­ingi aðila.

„Úrræði í barna­lögum eru þau að sýslu­maður getur, að kröfu þess sem rétt á til umgengni, skyldað þann sem fer með for­sjá eða umsjá barns­ins að láta af tálm­unum að við­lögðum dag­sektum, sbr. 48. gr. barna­laga. Flutn­ings­menn telja að þetta úrræði hafi ekki virkað til að tryggja þennan mik­il­væga og lög­bundna rétt barns­ins. Þessi máls­með­ferð hjá sýslu­manni getur verið bæði tíma­frek og kostn­að­ar­söm.

Tálmi for­sjár­maður umgengni þrátt fyrir úrskurð um dag­sektir og fjár­nám getur dóm­ari, að kröfu þess sem rétt á til umgengni við barn, úrskurðað að umgengni verði komið á með aðför í eitt skipti eða að umgengni á vissu tíma­bili verði komið á með aðfar­ar­gerð, sbr. 50. gr. lag­anna. Flutn­ings­menn telja að umgengni sem er komið á með aðför komi ekki endi­lega í veg fyrir áfram­hald­andi tálm­anir og því geti reynt á að fara þurfi oftar en einu sinni í slíkt dóms­mál. Slíkur mála­rekstur er þannig tíma­frekur og kostn­að­ar­samur auk þess að vera mjög íþyngj­andi fyrir alla sem að máli koma, ekki síst barnið,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Hægt er að lesa grein­ar­gerð­ina í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár