Margt gæti skýrt að miklu meira sé greitt fyrir síld í Noregi en hér

Verð­lags­stofa skipta­verðs birti á dög­unum sam­an­burð á síld­ar­verðum í Noregi og á Íslandi, sem sýndi að hrá­efn­is­verð síldar var að með­al­tali 128 pró­sentum hærra í Noregi en hér á landi á árunum 2012-2019, á meðan að afurða­verðið var svipað.

Sjómenn hafa á undanförnum árum ítrekað kvartað til Verðlagsstofu skiptaverðs yfir því hve lágt hráefnaverðið á uppsjávartegundum er á Íslandi.
Sjómenn hafa á und­an­förnum árum ítrekað kvartað til Verð­lags­stofu skipta­verðs yfir því hve lágt hrá­efna­verðið á upp­sjáv­ar­teg­undum er á Íslandi. Mynd: EPA

Sjómenn hafa lengi talið að pottur sé brot­inn í verð­lags­málum á upp­sjáv­ar­teg­undum hér á landi, að sögn Val­mundar Val­munds­sonar, for­manns Sjó­manna­sam­bands Íslands. Nýlegur sam­an­burður frá Verð­lags­stofu skipta­verðs sýnir að með­al­hrá­efn­is­verð norsk-íslenskrar síldar var að með­al­tali 128 pró­sentum hærra í Noregi en á Íslandi á árunum 2012-2019.

Þessi mikli verð­munur segir þó ekki mikla sögu einn og sér. Ýmsir fyr­ir­varar eru settir fram af hálfu Verð­lags­stofu um að ólíkir þættir kunni að leiða til mis­mun­andi verð­lagn­ingar hrá­efnis og afurða á milli landa. Val­mundur segir að það sé þó „eig­in­lega slá­andi hvað það er lít­ill munur á afurða­verði út úr Noregi og Íslandi,“ í ljósi þess hve mik­ill munur er á hrá­efn­is­verði.

Val­mundur segir að það vanti frek­ari upp­lýs­ingar um það hvernig ágóð­inn af veið­unum í Noregi skipt­ist á milli útgerða og vinnslna. Þar í landi þurfa útgerðir og vinnslur lögum sam­kvæmt að vera aðskildar ein­ingar, alla­vega á papp­ír­unum. Sjó­manna­sam­bandið hefur reynt að kalla eftir upp­lýs­ingum um þetta að utan, en það hefur gengið erf­ið­lega, að sögn for­manns­ins.

Í verð­sam­an­burði Verð­lags­stofu sést að mun­ur­inn á hrá­efn­is­verði síld­ar­innar hefur lækkað á und­an­förnum árum og fór niður í 51 pró­sent í fyrra, en mesti mun­ur­inn var árið 2015 þegar hrá­efn­is­verðið var að með­al­tali 186 pró­sentum hærra í Noregi en á Íslandi.

Val­mundur segir að íslenskir sjó­menn sjái margir hverjir ofsjónir yfir þeim mikla mun sem sé til staðar á milli Noregs og Íslands í hrá­efn­is­verði á síld, mak­ríl og kolmunna, þegar þeir sjálfir búi við það að semja við útgerð­irnar um verðin, sem síðan ráða því hversu hár hlutur þeirra er. Oft sé ekki um miklar eig­in­legar samn­inga­við­ræður að ræða.

„Á meðan að kerfið er eins og það er hér þá þurfa kall­arnir að standa í lapp­irnar og það getur verið erfitt fyrir ein­hverja eina áhöfn hér að segja: Við viljum nýjan samn­ing,“ segir Val­mundur. Sjómenn hafa á und­an­förnum árum ítrekað kvartað yfir því til Verð­lags­stofu hve lágt hrá­efna­verðið er á Íslandi.

Slíkar umkvart­anir og umræða sem skap­ast hefur um verð á upp­sjáv­ar­fiski í sam­fé­lag­inu eru ástæð­urnar sem Verð­lags­stofa segir að hafi verið fyrir því að stofn­unin fór að skoða upp­sjáv­ar­verð í Noregi sér­stak­lega og setja það í sam­hengi við inn­lent verð.

SFS kvörtuðu til umboðsmanns Alþingis vegna samanburðar

Þann 21. ágúst 2019 birti Verð­lags­stofa slíkan sam­an­burð á mak­ríl­verði á vef sínum. Þar kom fram að á árunum 2012-2018 var greitt að með­al­tali 227 pró­sent meira fyrir mak­ríl til vinnslu í Noregi en á Íslandi. Í sam­an­burð­inum voru engar skýr­ingar gefnar á því hvað gæti mögu­lega skýrt þennan mikla verð­mun á afl­anum.

Í kjöl­farið upp­hófst tölu­verð umræða í sam­fé­lag­inu um mak­ríl­verð og kall­aði Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness eftir opin­berri rann­sókn á verð­lagn­ingu upp­sjáv­ar­afla hjá fyr­ir­tækjum sem væru með veiðar og vinnslu á sömu hendi. Jens Garðar Helgason for­maður Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi svar­aði í sam­tali við RÚV og sagði að í raun væri Verð­lags­stofa skipta­verðs að „bera saman epli og app­el­sínur,“ Norðmenn væru með allt aðra gæða­vöru í hönd­unum en Íslend­ingar.

Aftur hófst umræða um mak­ríl­verðið síðan í des­em­ber í fyrra þegar Kári Stef­áns­son for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar vakti máls á sam­an­burði Verð­lags­stofu í grein á Vísi og bar þungar sakir á útgerð­ar­menn. Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir fram­kvæmda­stjóri SFS svar­aði Kára í grein í Frétta­blað­inu skömmu síðar og sagði fram­setn­ingu for­stjór­ans ekki stand­ast skoðun.

Á ein­hverjum tíma­punkti ákváðu SFS að kvarta undan þessum verð­sam­an­burði Verð­lags­stofu á mak­ríl til umboðs­manns Alþingis, á þeim grunni að með því að bera íslenskt fisk­verð saman við norskt hefði stofn­unin farið út fyrir lög­bundið hlut­verk sitt. Umboðs­maður Alþingis komst að þeirri nið­ur­stöðu að svo hefði ekki verið.

Umboðs­maður kom þó inn á það í bréfi sínu til Verð­lags­stofu, sem stofn­unin vísar til á vef sínum, að mik­il­vægt væri að les­endur verð­sam­an­burðar væru með­vit­aðir um að ólíkar for­sendur kynnu að búa að baki verð­myndun erlendis. Auk þess væri mik­il­vægt að við birt­ingu upp­lýs­inga að setja þær fram með skýrum hætti með við­eig­andi skýr­ingum.

Birta samanburð og nefna ótal þætti sem gætu verið að skekkja myndina

Í ljósi þessa seg­ist Verð­lags­stofa telja til­efni til þess að halda áfram að birta verð­upp­lýs­ingar frá öðrum löndum, í sam­hengi við inn­lent verð, „þannig að það gagn­ist útvegs­mönnum, sjó­mönnum og fisk­kaup­endum sem best“ og í hinum nýlega birta síld­ar­sam­an­burði eru raktir margir ólíkir þættir sem gætu leitt til mis­mun­andi verð­lagn­ingar milli landa, ólíkt því sem var í mak­ríl­sam­an­burð­inum í fyrra.

Verð­lags­stofa tekur þó enga afstöðu til þess hvaða ástæður eru fyrir þessum mis­muni á íslenskum hrá­efn­issverðum og norskum, en nefnir að dæmi hafi verið tekin um að upp­bygg­ing fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfis, staða gjald­mið­ils, milli­færslur í formi nið­ur­greiðslu og gjald­töku hins opin­bera, gæði hrá­efnis og mark­aðs­að­gangur geti haft áhrif.

„Einnig er lík­legt að mis­mun­andi samn­ingar útgerða og sjó­manna, ásamt mis­mun á laga- og reglu­verki sam­an­burð­ar­þjóða hafi þýð­ingu í þessu sam­bandi, til dæmis er varðar sölu­fyr­ir­komu­lag hrá­efnis og sam­þætt­ingu veiða og vinnslu,“ segir í sam­an­burði Verð­lags­stofu, sem vekur síðan sér­stak­lega athygli á að ekki er um að ræða sam­an­burð á launum sjó­manna.

En eftir standa íslenskir sjó­menn og aðrir sem fylgj­ast með og eru litlu nær, rétt eins og eftir að rætt var um mak­ríl­verðin í fyrra. Þá sagði Unn­steinn Þrá­ins­son for­maður Félags mak­ríl­veiði­manna í sam­tali við Fiski­fréttir að hann vildi það væri farið í saumana á þessum málum.

„Þjóðin á heimt­ingu á því að vita hvort pottur sé brot­inn. Það er líka slæmt fyrir sjáv­ar­út­veg­inn að liggja undir ásök­unum sem á end­anum eru ef til vill algjör­lega til­hæfu­lausar. Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa útskýrt málið út frá sínum bæj­ar­dyrum séð en það hefur ekki dugað til þess að sann­færa þjóð­ina. Við þurfum bara að sjá tölur á blaði sem sýnir hvernig málið er vaxið,“ sagði Unn­steinn.

Formaður Sjó­manna­sam­bands­ins er á sama máli nú. „Það er kom­inn tími til að menn grafi ofan í þessi mál og sjái hvað er í gangi,“ segir Val­mundur, í sam­tali við Kjarnann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár